Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 14
D
raumalíf. Það er ekki
hægt að segja annað en
að Hulda Þórey Garð-
arsdóttir og Steindór
Sigurgeirsson haf i
skapað sér og börnum sínum fjórum
óhefðbundna umgjörð um sitt dag-
lega amstur. Reyndar má frekar segja
að þau hafi bolað hversdagslífinu
burt og breytt því í stöðugt ævintýri.
Þau Hulda, Steindór, Starri (15 ára),
Freyja (14 ára), Saga (þriggja) og
Vaka (eins ár) búa á 23 metra langri
tvíbytnu í Pak Sha Wan flóa í austur-
hluta Hong Kong. Í bátnum hefur fjöl-
skyldan búið í þrjú ár af þeim ellefu
árum sem hún hefur dvalið þarna
ytra. Þótt Steindór sé nú meira sem
gestur hjá eigin fjölskyldu, enda alltaf
með annan fótinn hér á klakanum,
þar sem þau halda því einnig heimili.
Hulda er nýjasti ræðismaður Íslands,
ein af fáum konum sem gegna því
hlutverki. Hún er konsúll Íslendinga
í Hong Kong og Macau.
Uppalin á Kópaskeri og býr í Hong
Kong. Hver hefði trúað því? „Ég fór
meira og minna að heiman þrettán,
fjórtán ára gömul í alls konar vistir.
Fyrst í sveit, svo heimavist að
Lundi í Öxar-
firði og Laugaskóla og svo í Mennta-
skólann við Hamrahlíð. En ég var allt-
af hjá mömmu og pabba með annan
fótinn.“ Hún kaus hjúkrunarnám við
Háskólann á Akureyri, vann í tvö ár
og sérmenntaði sig svo sem ljósmóð-
ir. Við útskrift var hún flogin út.
„Steindór, maðurinn minn, sá
möguleikann í því að vinna í Kína.
Hann var á þessum tíma að vinna
fyrir Sæplast og vildi vera nær þeim
markaði sem hann sá möguleika á.
Hann opnaði skrifstofuna sjálfur og
byggði upp og stýrði í nokkur ár þar
til Bjarki bróðir minn tók við taum-
unum.“
Og þannig er það. Hulda er um-
vafin fjölskyldu sinni í þessu ríflega
sjö milljóna manna sjálfsstjórnar-
héraði í Kína. Nú síðast flutti faðir
hennar, Garðar Eggertsson, út á eftir
þeim Steindóri. Yngri systir hennar,
Rebekka Kristín, og bróðir, Bjarki,
höfðu fyrr fylgt í fótspor þeirra. Sam-
tals eru þau fjórtán af tæplega fimm-
tíu Íslendingum sem búa í borginni
um þessar mundir. Yngsta systirin,
Petra, býr svo í Danmörku og móðir
hennar, Iðunn Antonsdóttir, er því ein
bundin skerinu; ekki Kópa-
Hulda Þórey Garðars-
dóttir er ein örfárra
kvenna sem gegnir
stöðu ræðismanns Ís-
lands. Hún er fjögurra
barna móðir, rekur
fæðingarþjónustu í
Hong Kong, stefnir á að
opna fæðingarheimili
í stórborginni en fyrst
verður að fá lögum
breytt. Hulda býður
gjarnan Íslendingum að
skyggnast inn í líf sitt og
á heimili fjölskyldunnar
sem er um borð í ríflega
tuttugu metra tvíbytnu
í Pak Sha Wan flóa á
nýja yfirráðasvæði Hong
Kong eftir samrunann
við Kína.
Konsúll
á lystisnekkju í Hong Kong
Við höfum það ósköp
gott. Hér er lífið afslapp-
að, notalegt og rólegt. Við
búum á þessum báti sem
er ágætis heimili. Við vit-
um aldrei í hvaða átt við
snúum þegar við vöknum
á morgnana. Við
erum frjáls og ekki
bundin rútínu
annarra.
skeri þó, heldur Íslandi.
Ætlar að opna fæðingarheimili
Hulda segir draum um líf í Hong
Kong hafa verið fjarri á uppvaxtar-
árunum. „Ég ætlaði að vera tamn-
ingamaður – temja hesta,“ segir
hún hressilega. Sældarlífið snýst þó
ekki um að sötra kokteil með sól-
ina í andlitinu á snekkju í Asíu. Auk
þess að vera fjögurra barna móðir
og konsúll á hún og rekur fæðingar-
þjónustuna Annerley, ásamt mág-
konu sinni, Kristrúnu Lind Birgis-
dóttur.
Kristrún fjárfesti nýlega í fyrir-
tæki Huldu. Hún er ekki aðeins
hennar hægri hönd í fyrirtækinu
heldur ætla þær að dreifa álaginu af
störfum konsúls sín á milli og nýta
starfsmenn fyrirtækis síns í þágu
þeirra sem til þeirra leita þegar á
þarf að halda. Þá verður Rebekka
þeim innan handar þegar leita þarf
að vinnu fyrir nýflutta Íslendinga.
Fyrir Huldu er þetta svo sem ekk-
ert nýtt verklag sem þarf að hrinda
í framkvæmd. Þau hjónin hafa
hjálpað mörgum sem sest hafa
að í Hong Kong og heimili
þeirra oft verið sem gistiheimili.
„Við Steindór höfum
staðið í
alls
Ísland togar í og fjölskyldan kemur oft heim frá
Hong Kong. Hún er einnig með heimili hér á landi,
enda rekur maður hennar Steindór fiskvinnslu hér
og er alltaf með annan fótinn á klakanum.
Sólon Íslandus á siglingu. Þau
Hulda og Steindór keyptu bátinn,
lengdu og gerðu upp eftir eigin
höfði. Snekkjan er 23 metrar
á lengd og útbúin til
hnattsigl-
ingar.
14 viðtal Helgin 5.-8. apríl 2012