Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 32
2 brúðkaup Helgin 5.-8. apríl 2012 U ndirbúningur húðar-innar hefst löngu fyrir ætlað brúðkaup. Um mánuði fyrir stóra dag- inn er æskilegt að hreinsa húðina á hverjum degi með hreinsimjólk og andlitsvatni. Kristjana Rúnarsdótt- ir förðunarfræðingur hjá Lancôme leiðir lesendur Fréttatímans í allan sannleika um förðun og undirbún- ing húðar brúðarinnar fyrir stóra daginn: Galatéis Douceur hreinsimjólk- in er fyrir eðlilega húð og hentar bæði á andlit og augu sem er þægi- legt. Andlitsvatn er mikilvægt til að ljúka hreinsun húðarinnar. Nota má Tonique Éclat eða Tonique Douceur allt eftir húðgerð. Tvisvar til þrisv- ar í viku er svo gott að nota korna- skrúbb eins og Éxfoliance Clarté og rakamaskann Hydra Intense með. Maskinn er gelkenndur og gefur húðinni raka ásamt ferskum ljóma. Á daginn mæli ég með Génifi- que dagkreminu sem er létt krem. Það gerir húðina stinnari og stíf- ari. Génifique næturkremið þéttir húðina, gefa góða næringu og raka. Génifique augnkremið er nauðsyn- legt kvölds og morgna þar sem það dregur úr baugum, veitir raka og sléttir augnsvæðið. Ég byrjaði á að setja á húðina góð- an raka, Génifique æskuvaka sem er fyrirbyggjandi og þéttir. Gott krem er nauðsynlegt því erfítt er að gera húðina fullkomna ef undirlagið er ekki gott. Undirfarði Effet Miracle farðagrunnur fyrir ferska förðunaráferð. Þú færð sam- stundis óaðfinnanlega og fullkomna húð en þessi farðagrunnur lýsir upp húðlitinn, dregur úr opnum húðhol- um, sléttir úr hrukkum og fínum línum, jafnar áferð húðar, dregur úr gljáa og dregur úr þurrki ásamt því að minnka húðlýti. Hann er til í tveimur mismunandi litum – með bleikum tóni og orange tóni. Farði Teint Idole Ultra 24H farðinn varð fyrir valinu á húðina. Hann endist vel á húðinni og er smitfrír. Hann er borinn á með förðunarbursta sem gerir áferðina eðlilegri, þú þarft minna af farðanum og burstinn nær vel í kringum nef og augu. Hyljari Touch Miracle hyljari var settur á þau svæði sem þarf að lýsa eins og undir augu, við nef og undir auga- brúnir. Touch Miracle hyljarinn er ekki þessi venjulegi hyljari því hann er hægt að nota sem ljómapenna sem og hyljara. Ljómi Uppáhalds varan mín þessa dagana er Éclat Miracle ljóma serumið. Það gefur svo eðlilega og ferska áferð á húðina. Ég set Éclat Miracle undir augabrúnir, á efri hluta kinnbeina, kringum varir og húðin fær þetta „extra“ sem þarf fyrir stóra daginn og myndatökur. Kinnalitur Á kinnarnar notaði ég Blush sub- til nr 6. Hann er ferskjulitaður sem mér finnst algjört æði fyrir brúði. Augu Á augun notaði ég Baby Nu augn- skugga pallettu sem er ný hjá Lan- côme. Hún inniheldur 4 náttúru- lega liti sem henta einstaklega vel fyrir brúðarförðun. Fyrir förðunina notaði ég Éclat Miracle ljóma ser- umið í bland við augnskuggana til að ná meiri ljóma og léttari áferð. Eyeliner nota ég til að móta augn- línuna. Til að setja eyeliner á eins einfalt og hægt er byrja ég á miðju augnloki og dreg út í átt að ytri augnkrók. Klára línuna með einni stroku sem byrjar í innri augnkrók og sameinast línunni. Ef konur eru óöruggar með eyeliner er frábært að byrja að móta augnlínuna með augnblýanti alveg eins og þú vilt hafa eyeliner línuna og setja svo eyelinerinn ofan í. Einnig er hægt að byrja á að setja maskarann og setja svo á sig eyeliner. Maskari Hypnôse Doll Eyes maskarinn er frábær fyrir brúðarförðun. Hann að- skilur augnhárin, lyftir frá rót og þykkir auk þess að greiða vel úr. Varir Rouge in LOVE varð auðvitað fyrir valinu á varirnar enda ný lína frá Lancôme. Ég notaði lit númer 340B því hann er bjartur, ferskur og al- veg tilvalinn í brúðarförðun. Þessir varalitir haldast extra vel á, með fullkominni þekju og góðum glans. Í Rouge in LOVE varalitalínunni eru 20 spennandi litir þannig að all- ar konur ættu að finna lit við hæfi. Lancôme var að koma með 22 nýja spennandi liti í naglalakki sem gam- an er að leika sér með. Lakkið eru þæilegt í notkun, því þú þarft bara eina áferð, ekki koma rákir eftir burstann, fljótt að þorna og er gel kennt. Ekki spillir fyrir að lakkið, í ýmsum gerðum, er á frábæru verði. Vérnis in LOVE naglalakk-línan inniheldur liti sem passa Rouge in LOVE varalitunum. Make-up: Kristjana Rúnarsdóttir Módel: Birgitta Pétursdóttir Förðun og húðin undirbúin Við brúðarförðun er leitast eftir að undirstrika náttúrlega fegurð brúðarinnar. Árið 2006 tók Kristjana Rúnarsdóttir þátt í keppni í make-up á vegum Lancôme í París. Aðeins einn frá hverju landi fyrir sig fær að taka þátt í keppni. Inntökuskilyrðin eru mjög ströng. Kristjana þurfti að senda myndamöppu, meðmæli ásamt mynd- bandi sem Lancômer þurfti að samþykkja. Það gekk svo vel að hún náði titlinum National Make-up artist Lancôme. National Make-up artistana er hægt að kalla út í make-up til að vinna með Make-up team Lancôme út um allan heim. Vegna þessa var Kristjana að farða Elettru Wiedemann þegar hún kom til landsins. Hjá Lancôme eru mjög strangar kröfur og þarf Kristjana að gangast undir próf hjá Lancôme í París einu sinni til tvisvar á ári. Standast þarf allar ströngu kröfurnar og prófin til að halda titlinum. Núna í apríl er Kristjana að fara til New York á námskeið. „Námskeiðin eru mikið stress en alveg þess virði,“ segir Kristjana Rúnarsdóttir National Make-up atrist hjá Lancôme á Íslandi. National Make-up artist Lancôme VERÐ FRÁ 6.990 kR. EINTAkIÐ Prentun frá A til Ö Hannaðu þína eigin myndabók á oddi.is Farðu inn á www.oddi.is og búðu til persónulega gjöf. Vegleg innbundin myndabók með þínum myndum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.