Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 10

Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 10
UPPFÆRUM ÍSLAND AÐALFUNDUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2012 MIÐVIKUDAGINN 18. APRÍL Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA. Fundarstjóri er Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16 • Ávarp: Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins • Ávarp: Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands UPPFÆRUM STRAX • Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar Matorku • Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis • Marín Magnúsdóttir, eigandi Practical • Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands Netagerð og spjall • Vetur kvaddur og sumri fagnað. Digital Blur leikur uppfærða nútímatónlist. SKRÁNING Á WWW.SA.IS ÞJÓNUSTULANDIÐ FERÐAMANNALANDIÐ MATVÆLALANDIÐ LITLA ÍSLAND LAND SKÖPUNAR OG AFÞREYINGAR LAND IÐNAÐAR OG ORKUNÝTINGAR SJÁVARLANDIÐ HÁTÆKNILANDIÐ Ein milljón barna alvarlega vannærð UNICEF hefur hrundið af stað neyðarsöfnun fyrir átta Afríkuríki sem standa frammi fyrir því að gríðarlegur fjöldi barna þar glímir við alvarlega vannæringu. Söfnunin er á heimsvísu en stefnt er að því að safna um 120 milljónum dollara. Á standið er mjög slæmt í átta ríkjum. Í þremur þeirra, Máritaníu, Tsjad og Níger er hlutfall barna með alvarlega brá- ðavannæringu komið upp í fimmtán prósent, sem þýðir neyðarástand, og ef ekkert verður að gert fylgja hin fimm ríkin í kjölfarið. Við sjáum hvert stefnir,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í samtali við Fréttatímann. UNICEF hefur blásið til alheimsneyðarsöfnun- ar vegna ástandsins á hinu svokallaða Sahel-svæði í Vestur- og Mið-Afríku þar sem um ein milljón barna gæti látið lífið næstu mánuðina fái þau ekki aðstoð. „Þetta eru fátæk ríki – með þeim allra fátækustu í heiminum. Þau glíma við óblíð náttúruöfl þar sem miklir þurrkar verða og uppskeru- brestur, með skelfilegum afleið- ingum. Þetta er erfið staða en ekki ómöguleg. Það hefur sýnt sig að 95 prósent alvarlega vannærðra barna á Sahel-svæðinu lifa af ef þau fá að- stoð,“ segir Stefán Ingi. Aðspurður segir Stefán Ingi að UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hringi nú viðvörunarbjöll- um um allan heim og biðli til fólks að veita Sahel-svæðinu athygli. „Við byrj- uðum með neyðarsöfnun á þriðjudag- inn og munum halda málinu á lofti næstu daga og vikur. Við vonumst til að safna nægilegum peningum þann- ig að tækifæri gefist til að bjarga þeim barnslífum sem nú eru í hættu, fara í fyrirbyggjandi aðgerðir og minnka auk þess líkurnar á að neyðarástand eins og nú ríkir komi upp á svæðinu í framtíðinni. Undirtektir almennings hér á Íslandi hafa alltaf verið mjög góðar og fyrir það erum við afar þakklát. Við höfum séð hvernig UNI- CEF hefur tekist að bæta líf barna í Austur-Afríku og koma í veg fyrir dauðsföll vegna framlaga sem meðal annars komu frá Íslandi í fyrra. Við finnum fyrir miklum velvilja og það er sá velvilji sem gerir okkur kleift að halda þessu starfi áfram.“ Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is ... er hlutfall framhalds- skólanema haustið 2010 (fæddir 1991- 1994) sem segjast hafa fengið áfengi „hjá vinum sínum“ þegar þeir urðu ölv- aðir í fyrsta skipti. Heimild: Rannsóknir og greining. 47-51% Fylgst með íslausu ÖskjuvatniÖskjuvatn er íslaust sem þykir óvanalegt á þessum árstíma og gerist yfirleitt ekki fyrr en í lok júní eða byrjun júlí. Flugvél Landhelgis- gæslunnar, TF-SIF, flaug á þriðjudag- inn með vísindamenn yfir vatnið til að kanna aðstæður, að því er fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar. Óvenjuhlýtt var á landinu í mars, en önnur vötn á hálendinu, eins og Hágöngulón, og Mývatn, eru ekki orðin íslaus þrátt fyrir það. Vegna þessa þótti vísindamönnum Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar ástæða til að kanna Öskjuvatn nánar en notkunarmöguleikar flugvélarinnar á sviði almannavarna eru miklir þar sem meðal annars er unnt að greina breytingar á landslagi svo sem hæðar- línur í jöklum, eldfjöllum og snjóalögum með búnaði hennar. - jh/ Mynd Landhelgisgæslan Viðgerð Þórs dregst fram yfir páska Viðgerð varðskipsins Þórs í Noregi tefst fram yfir páska en þegar skipið fór utan var reiknað með því að það yrði afhent 2. apríl. Hrafnhildur Brynja, upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir verkið hafa gengið vel en skipt var aðra aðalvél skipsins. Örlítil seinkun hafi hins vegar orðið á viðgerðinni. Reiknað er með því að skipið verði komið til gæslustarfa á Íslands- miðum upp úr miðjum mánuði. Vinnan ytra er á ábyrgð Rolls Royce, framleiðanda véla skipsins. Landhelgisgæslan ber ekki kostnað af viðgerðinni. Varðskipið Ægir hefur verið við eftirlit og löggæslu í fjar- veru Þórs. - jh Vöruskipti í mars hagstæð um 5,1 milljarð Útflutningur í mars nam 54,4 milljörðum króna og innflutningur 49,3 milljörðum króna, samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofa Íslands sendi frá sér í gær. Vöru- skiptin í mars voru því hagstæð um 5,1 milljarð króna. - jh Hægt er að styrkja neyðarstarf UNICEF með því að hringja í söfnunarsímanúmerin: 908-1000 (1.000 krónur) 908-3000 (3.000 krónur) 908-5000 (5.000 krónur) Einnig er hægt að styrkja neyðarstarfið í gegnum heimasíðu UNICEF á Íslandi (www.unicef.is) eða með því að leggja inn á neyðarreikning samtakanna: 701-26- 102040 (kt. 481203-2950). UNICEF hefur látið útbúa þetta kort af ríkjunum átta. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF. Ljósmynd/Hari 10 fréttir Helgin 5.-8. apríl 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.