Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Qupperneq 28

Fréttatíminn - 05.04.2012, Qupperneq 28
M iklar breytingar hafa orðið á lífi Margrétar Jóhönnu Pálma- dóttur, söngkonu og kórstjóra, á síðustu þremur árum og fleiri breytingar munu eiga sér stað á árinu. Breytingin sem varð í apríl árið 2009 var hins vegar alls ekki fyrirséð og Margrét í raun al- gjörlega óviðbúin því að móðir hennar, sem hún var aðskilin frá þegar hún var tveggja ára, stæði skyndilega inni á heimili hennar. „Mamma datt eiginlega bara niður úr skýjunum í fangið á okkur fjölskyld- unni,“ segir Margrét Jóhanna og brosir. Við hlið hennar situr móðir hennar, Ólöf Emma Kristjánsdóttir, sem er að verða 84 ára, en sú kona upplifði sárustu sorgir lífs síns þegar tvö barna hennar voru tekin af henni árið 1958. Ég hafði beðið Margréti að lofa mér að tala líka við móður hennar, en Ólöf Emma er farin að gleyma mörgu – eink- um því sem gerist í nútíðinni, en þegar hún segir mér frá fortíðinni dregur hún upp svo myndrænar lýsingar að það er engu líkara en ég sitji við hlið hennar á Ísafirði eða á símstöðinni á Borðeyri: „Við vorum átta systkinin og síðar ein fóstursystir sem bjuggum að Sólgötu 7 á Ísafirði,“ segir Olla mamma, eins og hún er kölluð á heimilinu. „Sólgata verður alltaf gatan mín. Þegar ég var sextán ára byrjaði ég að vinna sem símamær á Borðeyri, síðar starfaði ég sem símamær á Ísafirði og loks í Reykja- vík. Það var vegna þess að Sveinbjörn bróðir minn var símvirki og hafði kennt mér morsið og þess vegna fékk ég vinnu bæði á Landsímanum og Ritsímanum í Reykjavík og það fyrir tvöfalt kaup.“ Synt yfir Hrútafjörð Þegar Ólöf Emma var sautján ára synti hún yfir Hrútafjörðinn, eina konan sem það hefur gert og vinkona hennar sagði frá í grein í tilefni af 75 ára afmæli Ólafar: „Einn sólbjartan dag vorum við nokkrar stúlkur úti við, í blankalogni. Allt í einu þá tókum við eftir því, að Ólöfu vantaði í hópinn. Við fórum að gá að henni og sáum að hún hafði kastað sér til sunds, án þess að láta okkur hin- ar vita, og var Ólöf nú komin út á miðjan Hrútafjörðinn. Enginn var báturinn með henni og við vorum áhyggjufullar. En Ólöf komst með glans yfir fjörðinn og lenti í fjörunni hinum megin eftir að hafa mætt mörgum selum á leiðinni. Það varð uppi fótur og fit, náð í bát og Ólöf sótt. Ég man að það komu blaða- menn, til að fá viðtal við þessa dugmiklu konu, en hún vildi ekki gefa viðtal, þar sem hún var svo ung og feimin.“ Á þessum tíma þótti afar fínt að vera símamær og Ólöf segist hafa þurft að læra allt utan að. Hún þvertekur fyrir að þær hafi legið á línunni og hlustað og segir að þá hefði nú skjótt verið bundinn endir á starfið! „Mig langaði alltaf að læra að spila á píanó en fór aldrei í nám, en spilaði eftir eyranu. Gítar hefur verið mitt hljóðfæri alla tíð.“ Það sem hún segir mér hins vegar ekki er að í mörg ár átti myndlistin hug hennar allan og hún hélt sýningar í Hamragörðum, Eden og víðar. Þegar Ólöf var tvítug féll hún fyrir myndarlegum ungum símvirkja og eignaðist með honum soninn Ingvar Grétar, en leiðir unga parsins skildu. Nokkrum árum síðar hitti hún föður Margrétar, Pálma Héðinsson og þau gengu í hjónaband árið 1953: „Pálmi var óskaplega myndarlegur maður og það þótti nú ekki verra að hann var menntaður frá Stýrimanna- skólanum,“ segir Ólöf. „Við eignuðumst soninn Helga árið 1954 og svo Mar- gréti Jóhönnu, árið 1956. Við vorum tvær vinkonur sem óskuðum eftir pennavinum í Vikunni og Pálmi og vinur hans svöruðu og það endaði með hjónabandi.“ Fjölskyldan splundrast Í fimm ár voru Ólöf Emma og Pálmi gift, með þrjú börn, en eitthvað leiddi til þess að árið 1958 skildu þau og í kjöl- farið missti Ólöf börnin. „Margrét var bara tveggja ára og ég gat ekki náð henni,“ segir Ólöf og augu „Ég er svo glöð þegar ég sé kærleikann í verki. Þegar brotnar fjöl- skyldur ná að tengjast aftur, þá er verið að breyta því sem maður getur breytt. Margrét Jóhanna Ótrúlega fallegt að fá annað tækifæri í lífinu Margrét Jóhanna Pálmadóttir, söngkona og kórstjóri, var aðskilin frá móður sinni þegar hún var tveggja ára gömul. Árið 2009, rúmlega hálfri öld eftir að þeim var stíað í sundur, flutti móðir hennar, Ólöf Emma Kristjánsdóttir, til Íslands og heim til Margrétar eftir langa dvöl í Bandaríkjunum. Anna Kristíne hitti mæðgurnar og hlustaði á merkilega sögu þeirra. Ljósmyndir/Hari hennar fyllast af tárum. „Ég gat ekkert gert. Maðurinn minn og bróðir hans ákváðu þetta og Margrét ólst upp hjá bróðurnum Maríusi og konu hans Sigríði. En þau voru óskaplega góð við hana. Mar- grét er eina dóttir mín, ég eignaðist fjóra syni en bara eina telpu, hana Margréti Jóhönnu sem er skírð í höfuðið á mömmu minni sem var svo mikil vinkona mín.“ Margrét tekur við. „Það er einstaklega erfitt að slíta sundur heilu fjölskyldurnar ef ekki er sátt og samlyndi milli for- eldranna. Ég man ekkert eftir mömmu á Húsavík en fyrstu minningarnar mínar í lífinu tengjast þessum aðskilnaði. Eðli móður er að hafa börnin sín hjá sér, en börnin eru öðruvísi gerð og eru fljótari að aðlagast nýjum háttum.“ „Margrét var alltaf syngjandi,“ segir Ólöf. „Ef ég var að vaska upp kom hún trítlandi á litlu fótunum sínum og sagði: „Mamma, syngja!“ Þá lagði ég allt frá mér og við sungum saman.“ „Lögin hafa alltaf fylgt mér og söngvit- und mín hefði ekki örvast svona vel hefði mamma ekki sífellt verið að kenna mér ný lög,“ segir Margrét. Eins og mörg kíló á hjartanu eftir að börnin fóru Og það var mamma hennar sem kenndi henni að þekkja Jesú og leita til hans þegar eitthvað bjátaði á. „Ég er alin upp í mikilli trú og Jesú hefur alltaf vakað yfir mér,“ segir Ólöf. Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is „ ... ég fylgdist með henni alla tíð, í nám- inu hennar hér heima, í Vínarborg og á Ítalíu og er að springa af stolti þegar ég sæki tón- leikana sem hún stjórn- ar. Nú þarf ég aldrei að gráta oftar, ég er komin til hennar.“ Ólöf Emma Ísabella, sonar- dóttir Margrétar, er hrifin af langömmu sinni og hrifningin er gagnkvæm. 28 viðtal Helgin 5.-8. apríl 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.