Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 31
Brúðkaup
Undirbúningur Skipulag Hefðir Veislan Helgin 6.-8. janúar 2012
bls. 8
Hringar
Tákn um ævarandi ást
– vandinn við að velja giftingahringa.
www.bluelagoon.is www. hreyfing.is www.bluelagoonspa.is
Gefðu ávísun á vellíðan og betri heilsu
hjá Bláa Lóninu, Hreyfingu og Blue Lagoon Spa
A
N
TO
N
&B
ER
G
U
R
E itt sterkasta tákn þeirra tengsla og trúfestu sem brúðarhjón heita hvort öðru á brúðkaupsdaginn er hringurinn. Giftingarhringurinn
byggir á sér mörg hundruð ára hefð og er
meira að segja vitað til þess að forn-Grikkir
hafi skiptst á hringum sem tákn um ævar-
andi ást tveggja einstaklinga. Giftingar-
hringar þekktust þó ekki hér á landi fyrr
en seint á 19. öld.
Þegar kaupa skal giftingarhringa er
ýmislegt sem hafa þarf í huga. Algengt er
að pör sem gifta sig nú til dags velji frekar
hefðbundna hringa úr gulli eða hvíta-
gulli en auðvitað er það mikilvægast að
hver og einn fái hring við sitt hæfi. Helstu
breytingar á giftingarhringum undanfarna
áratugi eru þær að hringarnir eru farnir að
kosta meira en meira er lagt í gæði og útlit
að mati margra gullsmiða. Vinsælt hefur
einnig verið að hafa hringana breiðari en
áður og vilja sumir meina að það fylgi efna-
hagsástandinu í þjóðfélaginu hversu breiðir
hringarnir eru.
Brúðkaup á öllum aldri
Samkvæmt nýjustu tölfræði giftir fólk sig
seinna ævinnar en áður tíðkaðist, bæði
vegna þess að í samfélaginu í dag er ekki
eins mikil áhersla lögð á að gifta sig áður
en fyrsta barnið kemur og svo verður
stöðugt algengara að fólk gifti sig oftar en
einu sinni. Margir eru því orðnir ráðsett-
ari og oftar en ekki með meiri pening á
milli handanna til að eyða í brúðkaupið og
kaupin á giftingarhringum. Áhersla er lögð
á að fá rétta hringinn sem mun duga út
ævina og líta margir til þess að hringurinn
sé praktískur og geti virkað við hvers-
dagslegar athafnir jafnt sem og til hátíðar-
brigða. Það er líka skemmtileg hefð að
grafa nafn makans innan í hringana og láta
sumir það ekki duga heldur bæta við ástar-
orðum eða jafnvel gælunöfnum. Með þessu
móti verður hringurinn persónulegur en
svo má líka útfæra lögun og útlit hringsins
eftir eigin höfði og eru flestir gullsmiðir án
efa tilbúnir til að fara eftir óskum verðandi
brúðhjóna við gerð hringanna.
Steinn ástarinnar
Demantar hafa verið að ryðja sér til rúms
sem vinsælustu steinarnir og velur barna-
fólk oft hringa með einum
demanti fyrir hvert barn
– séu þau til staðar. Aðrir
steinar, eins og rúbín sem
er stein ástarinnar, eiga
líka vel við í giftingarhring
og það eru ekki bara konurnar
sem velja að hafa steina í sínum hringum
heldur velja brúðgumarnir þá einnig. Oftar
en ekki eru þeir svo hafðir í stíl og á það vel
við því hringurinn táknar einmitt einingu
og ást.
Persónulegur skartgripur
Gaman getur einnig verið að láta breyta
gömlum skartgrip, sem hefur til dæmis
gengið í erfðir, í giftingarhring. Ef það er
hringur þá getur verið nóg að láta minnka
eða stækka hann nú
eða breyta honum
lítillega til að gera hann
persónulegan. Með þeim
hætti er haldið í gamla
skartgripinn sem oftar en
ekki hefur tilfinningalegt gildi
en að sama skapi er skapaður nýr hringur
sem er einstakur.
Fegurð hringsins haldið við
Gömul hindurvitni segir að ekki megi
taka af sér hringinn því það boði ógæfu
en ólíklegt er að margir fari eftir því nú
til dags. Hendurnar eiga það til að bólgna
á nóttunni og því getur verið gott að taka
hringinn af yfir nóttina eða þegar farið er
í bað, sérstaklega ef hringurinn er með
steini í. Að auki þarf reglulega að þrífa
hringinn sjálfan en hægt er að kaupa sér-
stakan hreinsilög hjá flestum gullsmiðum.
8077
Til að hafa í huga þegar
kaupa skal hringa:
Passið upp á að hringurinn
sé réttrar stærðar
Verið búin að ákveða hver
su
mikið hringarnir mega kosta
Leitið hugmynda úr brúð-
kaupsblöðum og á netinu
Gefið ykkur tíma í að velja
hring – hann er ævieign
Brúðkaupið
skipulagt í þaula
Helgin 5.-8. apríl 2012