Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 38
8 brúðkaup Helgin 5.-8. apríl 2012
B rúðkaup er athöfn sem allir vilja muna eftir með hlýju og gleði í hjarta og ef halda á
stóra veislu með öllu tilheyrandi,
krefst það þess að byrjað sé að
skipuleggja og undirbúa í tæka
tíð. Auðvelt er að stressa sig og
mikla hlutina fyrir sér ef tíminn
er naumur en til að auðvelda ferlið
er best að búa til góðan lista yfir
allt sem gera þarf og svo er bara
að fara eftir listanum. Að byrja
undirbúninginn snemma er sér-
staklega mikilvægt til þess að
kirkjan, salurinn eða ljósmyndar-
inn sé örugglega laus á stóra deg-
inum. Sumir ganga svo langt að
byrja að undirbúa tveimur árum
fyrir brúðkaupið en hér verður
gert ráð fyrir níu mánaða undir-
búningi.
Níu mánuðir í brúðkaup
Ákveðið dagsetninguna og
gott er að vera með eina til
vara ef draumakirkjan er
þegar bókuð. Byrjið á að bóka
kirkju og sal ef veislan á ekki
að vera í heimahúsi. Einnig
er gott að huga að því að fá öll
tilskilin leyfi ef athöfnin eða
veislan á að fara fram utandyra
í almenningsgarði, skógar-
lundi eða þvílíku.
Næst er svo að gera kostnaðar-
áætlun. Hvað má brúðkaupið
kosta? Hvar er hægt að spara
og hvar ekki?
Búið til áætlaðan gestalista.
Hversu stórt á brúðkaupið að
vera? Það er gott að gera þetta
í samvinnu við nánustu fjöl-
skyldu til að tryggja að allir
komist örugglega. Einnig þarf
að huga að gestum sem búa
erlendis og þurfa að panta flug-
far heim.
Veljið ykkur svaramenn, brúð-
armeyjar og/eða -sveina (það
er vinsæl hefð m.a. í Banda-
ríkjunum) og veislustjóra.
Skipuleggið veisluna. Ef þið
ætlið að panta veitingar er
best að bera saman nokkra
mismunandi aðila og fá að
smakka á matseðlinum. Gott
er að athuga hvað er innifalið í
verðinu og hvað þarf að greiða
sérstaklega.
Ef ætlunin er að bjóða upp á lif-
andi tónlist er tími til kominn
að athuga hvort viðkomandi
hljómsveit eða tónlistarmaður
er laus, og hvað það kostar. Oft
getur tónlistarflutningur gert
góða veislu enn betri.
Sex mánuðir í brúðkaup
Nú er kominn tími til að fara að
huga að brúðarkjólnum. Á að
kaupa hann tilbúinn hér heima, á
netinu, leigja eða láta sérsauma
kjól? Best er að gera þetta í tæka
tíð því að allir fylgihlutir þurfa að
passa við kjólinn.
Pantið bíl til að keyra ykkur
til og frá kirkjunni ásamt ljós-
myndara og hárgreiðslu.
Er ætlunin að fara í brúðkaups-
ferð? Hvert er förinni heitið og
hvenær? Núorðið fara fæstir í
brúðkaupsferð strax eftir brúð-
kaupið en ef svo er þá er ekki
seinna vænna að fara að skipu-
leggja brottför.
Pantið hótel fyrir brúðkaups-
nóttina eða fáið vini til að
skreyta heimili ykkar, og þá
sérstaklega hjónaherbergið.
Ekki gleyma að huga að því
hvernig þið komist á hótelið ef
það verður fyrir valinu.
Nú er komið að því að ákveða
þema fyrri veisluna. Margir
velja að hafa þemað í tengslum
við árstíðina, nú eða litaþema.
Farið yfir gestalistann og
sendið út boðskort fjórum
mánuðum fyrir brúðkaupið.
Ekki gleyma að biðja um stað-
festingu a.m.k. fimm vikum
fyrir brúðkaupsdaginn. Það
gerir allan undirbúning auð-
veldari.
Veljið fötin, bæði á brúðina og
brúðgumann, og ekki gleyma
nærfötum, sokkum og skóm.
Einnig þarf að velja föt fyrir
brúðarmeyjar og sveina.
Þrír mánuðir í brúðkaup
Farið í búðir og skoðið hringa.
Úrvalið er yfirleitt endalaust,
bæði hvað varðar form og efni.
Þetta er mikilvægt því að hring-
ana berið þið út ævina. Sumir
velja að láta hanna sérstaka
hringa fyrir sig, sem gerir hring-
ana enn dýrmætari.
Hafið samband við prestinn.
Það væri leiðinlegt ef uppá-
haldspresturinn væri bókaður
á deginum ykkar. Best er að
hittast og fara yfir það hvernig
þið viljið hafa athöfnina.
Ákveðið matseðilinn.
Tveir mánuðir í brúðkaup
Veljið blómaskreytingar og
blómvönd. Leitið ráða hjá blóma-
skreytum og á netinu. Blóm-
vöndurinn setur oft tóninn hvað
varðar skreytingar og litaþema.
Hafið samband við þá sem sjá
um matinn, hárið, tónlistina,
ljósmyndun o.fl. til að allt sé
klappað og klárt.
Sjáið til þess að allir pappírar
séu fyrir hendi svo að giftingin
verði nú örugglega að veruleika.
Einn mánuður í brúðkaup
Búið til lista yfir allt sem þarf að
gera og tiltakið hver er ábyrgur
fyrir verkinu.
Farið yfir gestalistann og látið
veitingaþjónustuna fá endanlega
tölu veislugesta. Raðið gestun-
um til borðs og hugið að því að
ef gestalistinn er langur, er gott
að vera með yfirlitsplakat sem
segir til um hvar hver á að sitja.
Ekki gleyma að ganga skóna
til! Það er afleitt að vera með
hælsæri á brúðkaupsdaginn.
Þetta á bæði við um brúðina og
brúðgumann.
UNdirbúNiNgUr Listi yfir aLLt sem gera þarf
Brúðkaupið skipulagt í þaula
Tvær vikur í brúðkaup
Sækið hringana.
Athugið að allt sé klappað og
klárt varðandi veisluna og at-
höfnina.
Ákveðið dag til að æfa athöfnina
í kirkjunni.
Prófið fötin í síðasta sinn.
daginn fyrir brúðkaupið
Undirbúið veislusalinn og sjáið
til að allt sé á sínum stað. Náið í
brúðartertuna.
Pakkið niður fyrir brúðkaups-
ferðina.
Passið upp á að fá nægan svefn
svo að þið endið ekki með bauga
niður á hné í brúðkaupinu.
Á brúðkaupsdaginn
Njótið dagsins og passið að láta
það ekki skemma fyrir ef allt fer
ekki nákvælega eins og til var
ætlast.
Ekki gleyma að borða og drekka
vel.
Eftir brúðkaupið
Sendið þakkarkort.
Lifið hamingjusöm til æviloka.