Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 44
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Í
Í nýjustu könnun á vímuefnaneyslu ís-
lenskra unglinga má sjá sömu jákvæðu
þróun og undanfarin ár: Þar er að finna
ánægjulega vísbendingu um að tilveran
í raunheimum gengur bara vel á ýmsum
sviðum, ólíkt því sem mætti ætla sé
miðað við barlóminn sem veður uppi í
hinum stafræna heimi; blogginu og at-
hugasemdakerfi netmiðlanna – og líka í
steinhúsinu við Austurvöll. Ef
maður hlustaði á ýmsa sem þar
starfa þyrði maður naumast út
fyrir hússins dyr, svo svaka-
lega er heimsýnin svört sem
dregin er upp í því húsi flesta
daga.
Líðan unglinga og notkun
þeirra á vímuefnum er örugg-
lega betri barómeter á það
hvernig fjölskyldur landsins
hafa það en margt annað. Þegar börn eru
hamingjusöm og neyta ekki vímuefna er
það vísbending um að þau hafi það gott
heima fyrir – að þar sé hugsað vel um
þau.
Rannsókn og greining við Háskólann
í Reykjavík hefur undanfarin fjórtán ár
fylgst með vímuefnaneyslu barna í átt-
unda, níunda og tíunda bekk grunnskóla.
Í könnun sem var gerð nú í febrúar kemur
fram að vímuefnaneysla heldur áfram að
dragast saman hvort sem það er á áfengi,
tóbaki eða öðrum vímugjöfum.
Í rannsókninni kemur fram að hlutfall
krakka sem eru í elstu bekkjum grunn-
skóla og reykja fer úr 5 prósentum í 3
prósent milli ára og hlutfall þeirra sem
hafa drukkið áfengi á könnunartímanum
lækkar úr 9 prósentum í 7 prósent. Hlut-
fall þeirra sem hafa notað hass einu sinni
eða oftar um ævina eru 3 prósent, og
stendur í stað, en sjónarmun færri hafa
prófað marijúana frá því síðasta könnun
var gerð. Það hlutfall er nú 7 prósent en
var 8 prósent í fyrra.
Breytingarnar frá 1998 eru sláandi.
Það ár sögðust 42 prósent unglinga hafa
orðið drukknir, 23 prósent reyktu dag-
lega og 17 prósent höfðu notað hass. En
leiðin hefur sem betur fer legið jafnt og
þétt í rétta átt frá þessu versta ári í sögu
rannsóknanna.
Fyrirfram hefði mátt búast við að efna-
hagsþrengingar og aukið atvinnuleysi í
kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 gæti
snúið þróuninni við. Vímuefnaneysla er
oftar en ekki afleiðing ójafnvægis og upp-
lausnar. Sú hefur hins vegar ekki reynst
raunin. Hlutfall þeirra sem hafa drukkið
í elstu bekkjum grunnskóla hefur lækkað
úr 20 prósentum árið 2007 í 7 prósent nú,
en í könnunum er spurt hvort þátttakend-
ur hafi orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga.
Á sama tímabili hefur hlutfall þeirra sem
reykja daglega farið úr 10 prósentum í 3
prósent. Unglingar landsins halda sem
sagt áfram að vera öðrum frábærar fyrir-
myndir um heilbrigt líferni.
Athyglivert er að þessi jákvæða þróun
undanfarinn rúmlega áratug hefur orðið
á sama tíma og aðgengi að áfengi hefur
aukist. Verslunum ÁTVR hefur fjölgað
og opnunartími þeirra lengdur. Sýnileiki
áfengra drykkja hefur einnig vaxið með
fjölgun erlendra sjónvarpsstöðva, sem
sýna áfengisauglýsingar, og lítt dulbún-
um bjórauglýsingum innlendra fram-
leiðanda.
Aukið aðgengi og sýnileiki hefur
þannig ekki haft áhrif til hins verra.
Rannsóknir benda líka langflestar í þá
átt að þessi atriði skipta ekki höfuðmáli.
Það sem öllu skiptir, þegar kemur að því
að halda börnum frá vímuefnum, er að
foreldrar eyði með þeim tíma, jafnvel þó
það sé aðeins sé fyrir framan sjónvarpið.
Niðurstöður Rannsóknar og greiningar
benda eindregið til þess að Íslendingar
séu að verða betri við börnin sín en áður.
Það er falleg tilhugsun.
Minnkandi vímuefnaneyslu unglinga
Íslendingar betri við börnin sín
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
M argir velta því fyrir sér þessa
dagana hvaða gjaldmið-
ill henti Íslendingum.
Afdrifaríkt verður að
kasta krónunni á glæ.
Því er afar mikilvægt
að hugsa vel sitt ráð.
Þjóðin hefur áður gert
grundvallarbreytingar
í gjaldeyrismálum,
breytingar sem höfðu
varanleg áhrif á daglegt
líf Íslendinga um langt
árabil.
Ísland var með al-
þjóðlega mynt
Í upphafi 20. aldar voru Íslend-
ingar í myntbandalagi með öðrum
Norðurlandaþjóðum. Sama gengi
og svipað verðlag gilti á svæðinu.
Meirihluti utanríkisviðskipta var
við Norðurlöndin. Því fundu lands-
menn ekki mikið fyrir því þótt þessi
sameiginlega króna breytti um
gengi gagnvart öðrum myntum.
Í fyrri heimsstyrjöldinni riðlaðist
bandalagið. Þó hefur gengi norsku,
dönsku og sænsku krónanna fylgst
þokkalega að þau tæplega 100
ár sem liðin eru frá því að leiðir
greindust. Ein af gömlu bandalags-
þjóðunum fór þó aðra leið. Íslenski
hundraðkallinn frá 1918 er ekki
dansks fimmeyrings virði í dag.
Ný mynt, verðtryggð
króna
Eftir sextíu ára basl með
sjálfstæða krónu var
verðbólga hér orðin slík
að krónan rýrnaði um
nær helming á hverju
ári. Enginn vildi spara.
Íslendingar fundu þá
upp nýja einingu, verð-
tryggða krónu. Verð-
trygging er vissulega til
annars staðar, en hvergi
er hún jafnútbreidd og
á Íslandi. Ástæðan er sú
að krónan sjálf er ónýt.
Enginn vill lána öðrum
til áratuga í venjulegum
krónum. Með verðtryggðri krónu
er tryggt að Íslendingar skulda
alltaf jafnmikið að raunvirði, þótt
launin rýrni við hverja gengisfell-
ingu.
Peningastefna með hæstu
vöxtum
Í upphafi 21. aldar var Seðlabanka
Íslands falið að halda verðbólgunni
í skefjum með vaxtastefnu. Pen-
ingastefna bankans var í samræmi
við viðurkenndar hagfræðikenn-
ingar. Vextir voru hækkaðir til þess
að sporna við verðbólgu. Útlend-
ingar freistuðust af hávaxta krónu-
bréfum. Gengi krónunnar styrktist
og innflutningur jókst. Útflutnings-
fyrirtæki fengu minna en áður
fyrir sína vöru. Vaxtahækkanir
höfðu þó lítil áhrif á neyslu, því að
flestir voru með lán í verðtryggðum
krónum eða erlendri mynt sem fóru
eftir öðrum lögmálum. Eftir sjö ár
hrundi efnahagskerfið, krónan var
sett í höft. Hundruð milljarða króna
í eigu útlendinga voru læst inni. Til
varð tvöfalt gengi: Aflandsgengi og
afleitt gengi.
Áhætta við evru
Af þessu má sjá að Íslendingar taka
talsverða áhættu með því að ganga í
myntbandalag:
1. Verðbólgan verður ekki lengur
sú mesta Vesturlöndum.
2. Vextir verða ekki lengur miklu
hærri hér en í nágrannalöndum.
3. Vægi verðtryggingar verður lítið
og menn eiga auðvelt með að
reikna út hvað þeir skulda.
4. Ekki verður lengur hægt að
lækka laun almennings í einu
vetfangi með gengisfellingu.
5. Þjóðin verður af sínu helsta tóm-
stundagamni, gjaldeyrisbraski.
Vonandi verður þessi listi til þess að
menn hugsa sig mjög vel um, áður
en þeir taka upplýsta ákvörðun um
að kasta sinni ástsælu krónu. Þar
með fórna þeir hagstjórn sem færði
Íslendingum svo margt á undan-
genginni öld sem aðrar þjóðir fóru
á mis við.
Gjaldmiðilsmál
Þjóðfélag gjaldeyrisbraskaranna
Benedikt Jóhannesson,
framkvæmdastjóri
bj@heimur.is
20. - 24. apríl - Body Harmony
Don Macfarland, master bodyworker
4. - 5. maí - Meðferðir með kjarnaolíum
Tamara Parker, kjarnaolíuþerapisti
9. júní - Innlit í alþýðugrasalækningar
Brigitte Mars, grasalæknir
22. - 25. september - Augnfræði og Náttúrulækningar
Leonard Mehlmauer, náttúrulæknir
InnrItun í þrIggja ára lotunám í
náttúrulæknIngum stendur nú yfIr!
Forskráning til 1. maí
Umsóknarfrestur er til 20. júní
Upplýsingar í síma 848-9585/892-6004
og á www.heilsumeistaraskolinn.com
67%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
32 viðhorf Helgin 5.-8. apríl 2012