Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 47
Fært til bókar
Heiðarlegra
Eiður Guðnason, fyrrverandi þingmaður
og ráðherra, sendir upplýsingafulltrúa
ríkisstjórnarinnar kveðju á síðu sinni og
minnir á að liðnir séu blaðamennskutímar
hans, að minnsta kosti í bili. Þar segir: „Á
heimasíðu forsætisráðuneytisins er Jó-
hann Hauksson titlaður
upplýsingafulltrúi rík-
isstjórnarinnar. Fyr-
ir nokkrum dögum
skrifaði Jóhann
kjallaragrein í
Fréttablaðið þar
sem hann titlaði
sig eða var titl-
aður blaðamaður.
Greininni var beint
gegn Þorsteini Páls-
syni og hún bar yfirskriftina: Vonandi
nær sólarglæta inn í hugarfylgsni Þor-
steins áður en páskarnir eru liðnir. Gefur
það ekki auga leið að maður sem gegnir
stöðu upplýsingafulltrúa ríkisstjórnar-
innar skrifar ekki kjallaragreinar sem
blaðamaður? Hann var að verja forsætis-
ráðherra og ríkisstjórnina. Þessvegna
hefði átt að koma fram að hann er upp-
lýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Það hefði
verið heiðarlegra.”
„Byggingakranarnir koma aftur“
„Það er unnið af miklu kappi að því að
koma af stað húsbyggingum í bænum. Svo
er komið að færri fá lóðir en vilja.“ Svo
segir í forsíðutilvísun Voga, blaðs sjálf-
stæðismanna í Kópavogi, undir fyrirsögn-
inni „Byggingakranarnir koma aftur“ og
með fylgir mynd af Gunnari I. Birgissyni,
bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra.
Gunnar var þekktur fyrir framkvæmda-
semi í Kópavogi, jafnvel svo mjög að
mörgum þótti nóg um. Bærinn þandist
út í bæjarstjóratíð hans og forvera hans
í embætti og samstarfsmanns til langs
tíma, Sigurðar heitins Geirdal, foringja
framsóknarmanna í bænum. Við hrunið
sat bærinn uppi með fjölda lóða auk þess
sem margir sem fengið höfðu lóðir skiluðu
þeim og bærinn þurfti að greiða til baka,
verðtryggt. Þetta jók mjög skuldir Kópa-
vogsbæjar. Þá eru ónefndar þær bygg-
ingar sem stóðu hálfkaraðar. Af frétta-
flutningi og viðtali Voga við Gunnar má
ætla að sjálfstæðismennirnir líti svo á að
hjólin fari að snúast á nýjan leik í bænum
en meirihlutaskipti urðu
þar nýverið, eins og
fram hefur komið.
„Hann [Gunnar]
segist vinna að
því að trekkja
upp gangverkið,
talar við verktaka
og áhugasama
húsbyggjendur,“
segir í Vogum. Bygg-
ingageirinn fer fyrst í
gang í Kópavogi, segir Gunnar í viðtali við
blaðið, „núna eru komnar það margar
umsóknir að við verðum að fara að draga
um fjölbýlishúsalóðir. Ég reikna nú með
að núna í mars, apríl og maí munum við
úthluta lóðum fyrir 300 íbúðir og fá færri
en vilja,“ segir gamli verktakinn sem nú
er formaður framkvæmdaráðs bæjarins.
Hann segist og finna fyrir auknum áhuga
á sérbýli, einbýlishúsum, parhúsum og
ráðhúsum. „Við munum,“ segir Gunnar,
„flagga slíkum lóðum með hækkandi sól.“
19.300 kr.
17.700 kr.
7.800 kr.
Daisy lokkar
21.900 kr.
Daisy hringur
29.900 kr.
Sumarblær - íslensk hönnun
Daisy hálsmen
17.900 kr.
Diesel
19.200 kr.
Adidas
13.900 kr.
Adidas
16.600 kr.
Adidas
13.900 kr.
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík - sími 511 1900 - www.michelsen.is
Skoðaðu glæsilegt úrval
fermingagjafa á michelsen.is
Fossil
25.400 kr.
Fossil
31.300 kr.
Jacques Lemans
42.200 kr.
Jacques Lemans
44.600 kr.
Jacques Lemans
19.900 kr.
Jacques Lemans
39.975 kr.
Jacques Lemans
28.900 kr.
Casio
11.900 kr.
Casio
6.100 kr.
Seculus
36.500 kr.
Seculus
37.500 kr.
Seculus
32.200 kr.
Seculus
62.400 kr.
Michelsen
157.000 kr.
Góðar fermingargjafir
Helgin 5.-8. apríl 2012