Fréttatíminn - 05.04.2012, Side 49
Helgin 5.-8. apríl 2012 viðhorf 37
Fært til bókar
Skírdagur lokað
Föstudagurinn langi lokað
Laugardagur 7. apríl opið 11-18
Páskadagur lokað
Annar í páskum lokað
VÍNBÚÐIRNAR
UM PÁSKANA
Á höfUÐBoRgARSVæÐINU og AKUReyRI
oPIð á
laugardagInn
11-18
Kynntu þér páskaopnun allra Vínbúða á vinbudin.is
eða á farsímavef okkar m.vinbudin.is.
SKÍRDAGUR kl. 10–24 kl. 10–22
FÖSTUDAGURINN LANGI Lokað Lokað
LAUGARDAGUR 7. APRÍL kl. 10–24 kl. 10–22
PÁSKADAGUR Lokað Lokað
ANNAR Í PÁSKUM kl. 10–24 kl. 10–22
Austurver JL-húsið
Sjá nánar um páskaopnun á www.lyfogheilsa.is
Opnunartími
Lyfja & heilsu
um páska
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 1121097
Heimsóknir án hliðstæðu
Blaðamaðurinn geðþekki Eiríkur Jóns-
son opnaði á dögunum nýjan fréttavef á
netinu undir slóðinni eirikurjonsson.is.
Eins og venjan er með slík
vefsvæði er eini tekju-
stofn Eiríks auglýsing-
ar. Og til þess að aug-
lýsingar seljist þá þarf
vefsvæðið heimsóknir.
Eiríkur, sem gjarnan er
nefndur af sjálfum sér
eða öðrum „blaðamaður
án hliðstæðu“, tók sig til
og trommaði upp heimsóknagraf af
einhverjum vef yfir einn dag, marg-
faldaði það með sjö og fékk út vikulegar
heimsóknir. Hann treysti sem sagt á allir
notendur komi inn á hverjum degi sem
er ekki raunin á öðrum vefsvæðum. Það
væru þá heimsóknir án hliðstæðu.
Halls saknað í Brüssel
Íslenskir blaðamenn héldu til Brüssel í
síðustu viku á tveggja daga námskeið til
að fræðast um gang viðræðna Íslend-
inga og Evrópusambandsins. Alls fóru
blaðamenn frá fjórtán miðlum í belgísku
höfuðborgarinnar en þegar
komið var á staðinn var
ljóst að þann fimm-
tánda vantaði. Heið-
ursmaðurinn Hallur
Hallsson var skráður
í ferðina fyrir hönd
sjónvarpsstöðvar-
innar ÍNN en þegar
tékka átti inn á hótelið
kom í ljós að enginn
Hallur var á staðnum.
Segja má að Hallur hafi
skilið eftir sig sviðna jörð. Hótelherbergi
hans stóð autt alla ferðina, gagnapakki
merktur honum í reiðileysi í anddyrinu,
hundsvekktir ferðafélagar hans fengu
ekki njóta lífsgleði hans og starfsmenn
ESB voru með böggum hildar vegna
glataðs tækifæris til að kynnast hinum
heimsþekkta Halli. Það þarf kannski ekki
að koma á óvart að Morgunblaðið sendi
ekki mann til Brüssel. Sá sat heima líkt
og Hallur.
Hvar eru trixin í bókinni?
Sú var tíðin að allt sem Einar Bárðar-
son snerti varð að gulli. Hver man ekki
eftir Skítamóral, Nylon, Garðari Thor
Cortes og Lúxor. Nei, eða kannski ekki
Lúxor. En Einar gerði það gott. Bjó í
London og fékk skrifaða
um sig bók. Nú er
öldin önnur. Hann er
hættur á útvarps-
stöðinni Kananum
og ekkert gengur
að selja miða á
stórtónleika ungu
kynslóðarinnar í
Hörpu. Spurning
fyrir Einar um
að kíkja í Öll trixin
í bókinni og
rifja upp gamla
takta sem áður
dugðu?