Fréttatíminn - 05.04.2012, Side 54
42 vín Helgin 5.-9. apríl 2012
M eð nýja heiminum er átt við þau lönd sem eftir sitja, jafnvel þó að í mörg-
um tilfellum eigi þau sér líka langa
vínræktarsögu. Á síðustu áratugum
hafa lönd nýja heimsins sótt veru-
lega í sig veðrið og veitt löndum
gamla heimsins aukna samkeppni
og hjálpað til við að laga neytendur
að vínum ræktuðum á heitari svæð-
um eins og Chile, Suður-Afríku og
Ástralíu. Að einhverju leyti hafa
svipuð vínræktarsvæði Spánar not-
ið góðs af því. Ekki síst svæðið Ri-
bera Del Duero norðan við Madrid
þar sem nánast eingöngu er fram-
leitt rauðvín og aðalþrúgan er hin
spænska Tempranillo (einnig þekkt
sem Tinto Fino). Loftslagið í þessu
grýtta hálendi er frábært fyrir vín-
rækt. Sólríkt með heitum dögum og
köldum nóttum og næringarríkum
mólendum jarðvegi með lögum af
leir og kalki.
Svæðið var nánast óþekkt þar til á
áttunda og níunda áratugnum þeg-
ar fram á sjónar sviðið steig einn af
þekktustu vínbændum Spánar í dag,
Alejandro Fernandez sem rekur vín-
ekruna Pesquera. Alejandro þessi
og vínið hans Tinto Pesquera sló
heldur betur í gegn á þessum árum
og fékk það m.a. 100 stig af 100
mögulegum hjá frægasta víngagn-
rýnanda heims, Robert Parker.
Allt hefur þetta orðið til þess að
Ribera telst nú eitt helsta rauðvíns-
hérað Spánar og má segja að það
hafi haldist í hendur við þá gríðar-
legu grósku og metnað sem varð í
spænskri vínframleiðslu á þessum
tíma með tilheyrandi innreið nýrrar
tækni og nýrra aðferða við vínrækt.
Á þessum tíma hafa mörg spænsk
eðalvín bæst í hópinn ekki bara
frá Ribera heldur einnig frá Rioja
og Penedés við Barcelona. Af þeim
Ribera Del Duero vínum sem fást
í Vínbúðum ÁTVR, þó að úrvalið
mætti vera betra á þeim bænum, má
nefna Condado de Haza (einnig frá
Alejandro Fernandez), Valduero og
síðast en ekki síst áðurnefnt Tinto
Pesquera sem gæti verið það vín
í okkar ágætu vínbúðum þar sem
hvað mest fyrir peninginn fæst.
Til gamans má geta að Pesquera
er uppáhaldsvín ekki ómerkari (og
ólíkari) manna en hins skapbráða
Alex Fergusonar knattspyrnustjóra
Manchester United og spænska
sjarmatröllsins Julio Iglesias sem
helst drekkur ekki annað blessaður.
Þó er ekki hægt að tala um Ribera
Del Duero héraðið án þess að nefna
þeirra frægustu afurð, hið einstaka
og stórkostlega eðalrauðvín Vega
Sicilia „Unico” sem er eitt af fræg-
ustu og bestu vínum heims og gerði
sitt til að koma Ribera á kortið. Vín
þetta er aðeins framleitt ef uppsker-
an ársins þykir nógu góð, sem er
ekki alltaf tilfellið og því er þetta fá-
gæta vín ekki alltaf fáanlegt. Á þeim
árum sem það er framleitt selst það
alltaf upp hjá framleiðanda og er
illfáanlegt erlendis en ótrúlegt en
satt þá geta Íslendingar einhverja
hluta vegna yfirleitt rölt sér í næstu
Vínbúð ÁTVR og náð sér í flösku.
Velgengni Ribera héraðsins und-
anfarin ár hefur ekki stigið þeim til
höfuðs og hin ekta og tilgerðarlausa
gamla spænska sveita stemning hef-
ur haldið sér fullkomleg sem skilar
sér beinustu leiið í flöskuna. Vín
frá þessu héraði eru yfirleitt bragð-
mikil og tannínrík og eru frábærir
félagar með páskasteikinni.
Spænskir vínframleiðendur hafa til-
hneigingu til að setja vín sín á markað
þegar þau eru vel þroskuð og tilbúin
til drykkjar, ólíkt mörgum öðrum
framleiðendum eðalvína (sér í lagi
franskra) sem setja sín vín á markað
þegar þau eiga enn eftir að ná fullum
þroska í flöskunni. Þessi tilhneiging
spænskra hjálpar til með að gera vín
þeirra að öruggari kaupum.
Vínhérað RibeRa Del DueRo
Á vínmáli er talað um Gamla heiminn og Nýja heiminn þegar talað
er um vínræktarsvæði heimsins. Með Gamla heiminum er átt við
klassísku vínræktarsvæðin í Evrópu. Lönd eins og Frakkland, Ítalíu,
Spán, Austur ríki og Þýskaland sem hafa yfir tvö þúsund ára sam-
fellda sögu af vínrækt.
Spánarstemning
um páskana
Sean Connery er mikill vínáhuga-
maður og er hann var nýlega spurður
hvort eitthvert vín sé honum sér-
staklega minnisstætt þá minntist hann
sérstaklega á Vega Sicilia sem hann
smakkaði fyrst árið 1975 þegar hann
bjó á Spáni við tökur á myndinni The
Man Who Would Be King.
Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson
matur@frettatiminn.is
Vínframleiðendurnir hafa einfalt
kerfi sem gerir neytandanum betur
kleift að vita hvað hann er að kaupa.
Þeir flokka vínin í 3 flokka og verðið
er eftir því. Crianza er ódýrast þar
sem vínið er sett á markað eftir að
hafa fengið að þroskast í tvö ár, þar
af eitt ár í eikartunnum. Reserva er
mið flokkurinn þar sem vínið er sett
á markað eftir þriggja ára þroskun,
þar af minnst eitt ár í eikartunnu, og
topp flokkurinn er Gran Reserva þar
sem vínið hefur fengið að þroskast í
5-7 ár, þar af minnst 2 ár í eikartunnu.
alejandro Fernandez hefur frá
unga aldri starfað sem vínbóndi og er
meðal annars þekktur fyrir margar
uppfinningar og tækninýjungar sem
hann hefur sjálfur þróað og státar t.d.
af þó nokkrum einkaleyfum. Hann
framleiðir í dag fjögur vín, hið upp-
runalega Pesquera, Condado de Haza
sem er einnig frá Ribera, Dehasa La
Granja frá Zamora og hið nýjasta er
El Vinculo frá La Mancha.
ribera del Duero fékk sérstöðu sína
viðurkennda árið 1982 sem denomi-
nación de origen (DO) og aftur árið
2008 sem denominación de origen
calificada DOA, en vín framleidd
undir þeim merkjum eru undir afar
ströngu gæðaeftirliti hvað varðar allt
framleiðsluferlið, allt frá vín ekrunni
sjálfri, vínviðnum, berjunum, sjálfri
víngerðinni og meira að segja magni
alkóhóls. Ribera del Duero er þriðja
vínræktar svæði Spánar sem ber
þennan gæðastimpil til viðbótar við
Rioja og Priorat.
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Borðapantanir í síma 517-4300
Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
Bláskel & Hvítvín 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
G
e
y
s
ir
Bi
stro & Bar
FERSKT
&
FREiSTa
ndi
Fagmennska
í Fy
ri
rr
ú
m
i
SpennAndi
sjávarrétta
tilBoð