Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 65

Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 65
tíska 53Helgin 5.-8. apríl 2012 en venjulegar Panodil töflur HRAÐAR Panodil Zapp (parasetamól, 500 mg). Ábendingar: Höfuðverkur, tannverkur, hiti sem fylgir kvefi, tíðaverkir, vöðva- og liðverkir, verkjastillandi við gigtarverkjum, hár hiti. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1-2 töflur á 4-6 klst. fresti, að hámarki 8 töflur á sólarhring. Börn 10-15 mg/kg líkamsþyngdar á 4-6 klst. fresti, að hámarki 4 sinnum/sólarhring. Gæta skal varúðar ef um skerta nýrnastarfsemi og lifrarsjúkdóm er að ræða. Skal ekki notað með öðrum verkjalyfjum sem innihalda parasetamól (t.d. samsettum lyfjum). Hærri skammtar en ráðlagðir eru geta valdið hættu á mjög alvarlegum lifrarskemmdum. Aukaverkanir: Mjög sjaldgæfar: Almennar: Ofnæmisviðbrögð. Útbrot, ofsakláði, ofsabjúgur. Lifrarskemmdir. Lifrarskemmdir af völdum parasetamóls hafa komið fram í tengslum við misnotkun áfengis. Við langtímanotkun er ekki hægt að útiloka hættuna á nýrnaskemmdum. Pakkning: Filmuhúðaðar töflur 500 mg, 20 stk. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli lyfsins. Nánari upplýsingar eru á http://www.serlyfjaskra.is. Panodil er skrásett vörumerki GlaxoSmithKline fyrirtækjasamstæðunnar. ÁHRIFARÍKT GEGN VERKJUM OG HITA Panodil Zapp frásogast hraðar en venjulegar Panodil töflur, þannig nást fyrr hin vel þekktu verkjastillandi og hitalækkandi áhrif. Helstu og dyggustu aðdáendur tískuhúss- ins Dior verða fjöllunarefni bókarinnar Stars in Dior sem kemur út þann 12. maí næstkomandi. Í bókinni má finna allar þær stjörnur sem hafa klæðst fötum með tískumerkinu í gegnum tíðina og má nefna; Marilyn Manroe, Natalie Portman, Charlize Theron og reyndar fleiri stórstjörnur. Í kjölfar útgáfu bókarinnar mun opna sér- stök myndasýning í Christian Dior-sýn- ingarsafninu í París sem stendur dagana 12. maí til 23. maí. Þar verða sýndar bæði nýlegar og gamlar myndir af stjörnunum. Paula selur af sér spjarirnar Fyrrum Idol-dómarinn Paula Abdul hefur ákveðið að taka sumarhreingerninguna í fata- herberginu sínu snemma í ár og ætlar að selja hátt í 1500 föt og fylgihluti á uppboðsvefnum eBay í samstarfi við fyrirtækið Linda’s Stuff Inc. Byrjunarverðið á fötunum verður ásættanlegt fyrir almúgann og mun byrja á bilinu 3.500 krónur til 6000. Um hvar boðin enda skal hins vegar ósagt látið. Salan mun hefjast um miðjan apríl mánuð og búist er við harðri baráttu milli kvenna um hátískufatnað Paulu. Michelle Willams. Leighton Meester. Stjörnur sem klæðast Dior Mynd úr bókinni: Natalie Portman klædd í fagurbláan Dior-kjól. Bolur frá Miss Sixty. Leðurjakki frá BeBe.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.