Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 67
Tryggðu þér sæti!
Miðasala: 551 1200 | www.leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
AUGLÝSIR OPIN
INNTÖKUPRÓF
VEGNA DÝRANNA
Í HÁLSASKÓGI
Umsækjendur þurfa að vera
á aldrinum 8 til 12 ára og hafa
hlotið umtalsverða reynslu
í söng, sem og leiklist, dansi
eða fimleikum
Skráning fer fram í Þjóðleikhúsinu (gengið inn
að framanverðu) laugardaginn 14. apríl milli 14.00 og
17.00. Umsækjendur verða svo boðaðir í prufu í vikunni
16.–20. apríl. Fyrir áheyrnarprófin þurfa umsækjendur
að læra tvö lög úr sýningunni: Dvel ég í draumahöll
og Afmælisvísur Bangsapabba (fyrstu vísu). Bæði lögin
sem og allar upplýsingar má finna á heimasíðu
leikhússins: leikhusid.is eða á Facebook-síðu
Þjóðleihússins. Æskilegt er að umsækjendur komi
með upplýsingar um fyrri reynslu ef hún er fyrir hendi.
Helgin 5.-8. apríl 2012 menning 55
Svanfríður fagnar 40 ára afmæli
Þrír menn fylla skarð Péturs
Í ár eru 40 ár liðin frá því sú fornfræga hljómsveit Svanfríður gaf út sína fyrstu og einu breið-
skífu, What́ s Hidden There. Tímamótin gáfu hljómsveitarmeðlimunum tækifæri, eða afsökun,
til að koma saman á ný og rifja upp gamla takta. Þeir ætla að fagna með gömlum aðdáendum
á stórtónleikum í Austurbæ þann 14. apríl og heiðra um leið minningu Péturs W. Kristjánssonar,
stofnanda sveitarinnar, sem hefði orðið sextugur á þessu ári en hann lést langt fyrir aldur fram
árið 2004.
f réttatíminn náði sambandi við Birgi Hrafnsson gítarleikara og Sigurð Karlsson trymbil
þar sem þeir voru á fleygiferð norður
til að þjófstarta á Græna hattinum á
fimmtudagskvöld. „Við erum fyrst
og fremst að fara til Akureyrar vegna
þess að okkur var farið að klæja svo
svakalega í lófana að við gátum ekki
beðið lengur og slógum til þegar
okkur stóð þetta opnunargigg til
boða fyrir norðan,“ segir Birgir.
Birgir segir þá félaga í Svanfríði
hafa æft í fjóra mánuði fyrir stóru
stundina í Austurbæ laugardaginn
14. apríl þar sem þeir ætla að heiðra
minningu Pétur með því að spila fer-
tuga tónlist sína eins og þeir hafi síð-
ast stigið af sviði í gær.
Þrír fylla skarð Péturs
„Þetta gekk nú svona upp og ofan
þegar við byrjuðum að æfa en það
var alveg mesta furða hvað við vor-
um fljótir að komast í gang og þrátt
fyrir brösuga byrjun á fyrstu æfingu
vorum við strax þess fullvissir að við
myndum ráða við þetta og vel það,“
segir Birgir.
Hvorki meira né minna en þrír
söngvarar; Eiríkur Hauksson, Pét-
ur Örn Guðmundsson og Elvar Örn
Friðriksson, taka að sér að fylla
skarð Péturs á tónleikunum. Þá er
Diddi fiðla einnig með en hann spil-
aði á fiðlu, píanó, flautu og Moog-
hljóðgervil á plötunni auk þeirra
Þórðar Árnasonar gítarleikara og
Péturs Hjaltesteð á hljómborð.
„Því er svo ekki að leyna að
reynsluboltarnir Diddi, Þórður og
Pétur hafa gefið okkur gott spark í
rassgatið og gert okkur betri en við
erum í raun og veru.“
Sigurður snýr aftur við tromm-
urnar
Á blómatíma Svanfríðar var Sigurður
Karlsson talinn einn besti trommu-
leikari landsins og þeir sem til hafa
heyrt segja hann hafa sprungið hressi-
lega út á æfingum og vera firnasterkan
á trommunum þrátt fyrir að hafa ekki
snert kjuða í tólf ár.
„Það var nú svolítið erfitt að byrja
og mér fannst þetta nú ekki alveg
koma einn, tveir og þrír en þetta hef-
ur verið að skila sér í smá pörtum,“
segir Sigurður. „Þetta verður bara
gaman og maður setur smá adrenalín
í þetta og reynir að standa sig.“
Birgir efast ekki um að kvöldið
verði frábært enda bæði stemning
í hópnum og þeir finna fyrir mikilli
eftirvæntingu í kringum sig. „Við
höfum heyrt af miklum fjölda fólks
á okkar aldri sem er búið að tryggja
sér miða. Við byggjum prógrammið
á vinsælustu lögunum sem við spil-
uðum og tökum svo plötuna alveg í
heild sinni. Við finnum fyrir mikilli
spennu og tilhlökkun og ég og við
allir getum fullyrt að við lofum öll-
um sem mæta skemmtilegri kvöld-
stund. Það verður allt lagt í þetta.“
toti@frettatiminn.is
Svanfríður fjörutíu árum síðar. Kapparnir eru enn hressir, hafa litlu gleymt og ætla
að taka góðan snúning á progrokkinu með hjálp góðra manna og þriggja söngvara
sem fylla það skarð sem er fyrir skildi eftir að stofnandi Svanfríðar, Pétur W.
Kristjánsson, féll frá.
Svanfríður eins og hún var og hét var stofnuð eftir að Pétur Wigelund Kristjánsson
söngvari hætti í Náttúru. Hann fékk Birgi Hrafnsson gítarleikara, fyrrum félaga sinn
í Pops, til að taka þátt í stofnun nýrrar hljómsveitar. Birgir var að hætta í Ævintýri
og tók með sér trommuleikarann Sigurð Karlsson. Fjórði maðurinn var Gunnar Her-
mannson bassaleikari Tilveru.
einstakt
eitthvað alveg
Skipholt 50A • sími: 581 4020
www.gallerilist.is
úrval einstakra málverka og listmuna
eftir íslenska listamenn
1987 - 2012