Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 68
Plötudómar dr. gunna
things to regret or forget
Gunman & The Holy Ghost
Dúndurtöff
Þetta er nýjasta „verkefni“
Hákons Aðalsteinssonar,
söngvara, gítarleikara, tón-
listarmanns og Berlínarbúa.
Hann var í hljómsveitunum
Hudson Wayne og Singapore
Sing og gerði plötu undir
nafninu The Third Sound
árið 2010. Nýju plötuna
samdi Hákon í hörkufrosti í
Berlín og er titillinn lýsandi
fyrir textainnihaldið. Hákon
minnir á ofurtöffarann Lee
Hazlewood – hvað varðar
kántrí-smurðar lagasmíðar,
töffaralegan söng og
karlmannlegan trega í
textunum – en stundum
bregður hann sér á kúl-go-
spelslóðir hljómsveitarinnar
Spiritualized. Fagmannlega
er staðið að verki. Sánd
og útsetningar eru eins og
hnausþykk lífræn kjötsúpa
og krydduð smáatriðunum.
Þetta er mjög góð plata,
lögin reyndar misgóð, en
sum er algjört dúndur.
Platan fæst á Gogoyoko, en
ku væntanleg í áþreifanlegu
ástandi.
lævirkinn
Kjuregej
Síbería-Ísland
Listakonan Kjuregej Alex-
andra Argunova er frá Jakú-
tíu, sjálfsstjórnarlýðveldi
inni í miðri Síberíu. Hún
giftist Íslendingi og hefur
búið hér í nærri því hálfa
öld. Þennan fyrsta disk sinn
gerði hún í samvinnu við
flinka kappa á Austurlandi,
þá Charles Ross tónlistar-
kennara og Halldór Waren,
kenndan við hljómsveitina
Vax. Lögin eru mest jakútísk
þjóðlög, en einnig íslensk
og rússnesk. Listakonan
flytur þau af röggsemi og
tilfinningu og gaman er
að heyra hvernig hún ljær
íslensku lögunum exótískan
blæ. Þökk sé Huun-Huur-Tu
er manni ekki hljóðheimur
Síberíu með öllu ókunnur.
Margt hjá Kjuregej minnir á
hann: Treginn, sem nálgast
stundum örvæntingu, og
hljóðfæri sem hljóma eins
og hvínandi napur vindur.
Þetta er velheppnaður og
eigulegur diskur með ítar-
legum bæklingi á íslensku
og ensku.
What's Hidden there
Svanfríður
Rokkaðir hippar
Fertugsafmæli þess-
arar plötur er fagnað um
þessar mundir. Búið er
að endurútgefa hana (í
stafrænu formi á tonlist.
is) og hljómsveitin ætlar
að koma saman aftur
og spila í Austurbæ 14.
apríl. Reyndar er Pétur
Kristjánsson upptekinn
við annað en söngvararnir
Pétur Jesús, Eiki Hauks og
Elvar Örn Friðriksson ætla
að fylla hans illfyllanlega
skarð. Platan stendur
enn fyrir sínu og er ein af
helstu gersemum íslenska
hipparokksins ásamt
plötum Trúbrots, Náttúru,
Mána og Óðmanna. Í
Svanfríði voru þó harðari
rokkarar en síðhærðu
samtímamennirnir og
þeir kölluðu tónlist sína
„rokk“, sem var bannorð
1972 enda sett í samband
við Elvis og aðra ellibelgi.
Rokkið er vissulega hipp-
ískt og platan glæsilegt
barn síns tíma. Skyldu-
hlustun og mæting!
Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040
w w w . h i r z l a n . i s
Ti
lbo
ð
Ti
lbo
ð
Húsgögn fyrir hagsýna
Support
kr. 39.700,-
Tilboð 23.120,-
Fullt verð 28.900,-
Tilboð 15.500,-
Fullt verð 20.300,-
CD - og bókahillur
í úrvali
Hornskifborð
kr. 36.400,-
kr. 26.900,-
kr. 39.900,-
Stofnuð 1993 og hefur
aldrei farið á hausinn!
H vað hefur maður ekki öf-undað margar Hollywood-stjörnurnar af gullfallegri
augnumgjörð, jafnvel svo að maður
límir á sig gerviaugnhár, finnur fyrir
því allt kvöldið, en vonast til þess að
gleyma toginu og pirringnum þegar
líður á það? Margar þessara stjarna,
já og fyrirmenna eins og frú Obama,
fara allt aðra leið en þessa klassísku
sem byggist á; „beauty is pain!“
„Já, þær þykkja hárin með gervi-
augnhárum sem endast í fjórar til sex
vikur,“ segir Ágústa Kristjánsdóttir
snyrtifræðingur og eigandi Ágústu
snyrtistofu. Hún segir að það geri
einnig sístækkandi hópur kvenna
hér á landi.
„Við setjum eitt gerviaugnahár á
hvert náttúrulegt augnahár. Við ráð-
um hve löng og þykk þau eru. Sum-
ar vilja hafa þau í lengri kantinum á
meðan aðrar vilja þykkari,“ segir hún
og uppljóstrar um leið leyndarmáli
stjarnanna. Sársaukinn er enginn,
heldur segir hún konur sem þetta
kjósi liggja undir teppi með lokuð
augun í þann rúmlega klukkutíma
sem tekur að festa hárin á.
„En svo losnar konan svo gott sem
við að farða sig um augun,“ segir
Ágústa. „Maður vaknar bara gor-
djöss.“
Ágústa segir konur á öllum aldri
sækja í þessi augnhár. Margar hafi
gert það í mörg ár. „Þetta er vinsæl-
asta og heitasta meðferðin á betri
snyrtistofum um þessar mundir,“
segir hún um leið og hún setur næl-
onaugnhárin á Ragnhildi Guðmanns-
dóttur samstarfskonu sína til að sýna
lesendum Fréttatímans árangurinn.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ágústa ljóstrar upp leyndarmáli
Nælonaugnhár sem fest eru við þau raunverulegu er það heitasta á snyrtistofunum um þessar mundir. Þrátt fyrir að þetta sé það
nýjasta nýtt hafa þó nokkrar sótt sér þessa þjónustu í mörg herrans ár.
Hér má sjá árangurinn eftir að gerviaugnhár hafa verið fest við þau sem fyrir eru. Ragnhildur Guðmannsdóttir eftir og fyrir. Myndir/Hari
Ágústa Kristjánsdóttir kynnir það
vinsælasta á snyrtistofunum í dag. Hún
segir mjög mikilvægt að velja fagmann
til verksins. Mynd/hari
Jacqueline Kenn-
edy notaði fals-
aðar merkjavörur
Forsetafrúin fyrrverandi, Jacqueline
Kennedy, var einn helsti tískufröm-
uður síns tíma og hefur sem slík haft
mikil áhrif á tískubylgjur síðari ára.
Nú hefur aðalhönnuður tískuhúss-
ins Chanel, Karl Lagerfeld, upplýst
opinberlega að Jacqueline hafi ekki
hikað við að nota falsaðar merkja-
vörur. Í því samhengi nefnir hann
meðal annars þá frægu dragt sem
hún klæddist daginn sem maðurinn
hennar var myrtur í Dallas; hún er
góð eftirlíking dragtar frá Chanel.
Jacqueline Kennedy ásamt manninum sínum
John F. Kennedy.
tíska
56 dægurmál Helgin 5.-8. apríl 2012