Fréttatíminn - 27.04.2012, Blaðsíða 15
Í fyrsta sinn á Íslandi
Arion banki auglýsir e
ir umsækjendum í Startup Reykjavík
sem er byggt á fyrirmynd TechStars í Bandaríkjunum.
Startup Reykjavík er vettvangur til að skapa frumkvöðlum betra umhver og stuðla
að frekari verðmæta- og fyrirtækjasköpun á Íslandi.
Umsækjendur geta verið allt frá því að vera með hugmynd á byrjunarstigi upp í að
reka sprotafyrirtæki sem komið er lengra.
Tíu viðskiptateymi verða valin til að vinna sínar hugmyndir áfram í 10 vikur.
Startup Reykjavík stendur yr frá 11. júní – 20. ágúst 2012.
Viðskiptateymin tíu fá:
• 2 milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
• 10 vikna þjálfun frá sérfræðingum Innovits og Klaks
• Tengingar og handleiðslu frá y r 40 sérfræðingum úr íslensku atvinnulí
• Aðgang að sameiginlegri vinnuaðstöðu
• Aðgang að víðtæku tengslaneti um heim allan
• Að kynna á árfestaþingi undir lok verkefnisins
Umsóknarfrestur rennur út 7. maí.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má nálgast á startupreykjavik.com.
áhuga. Útlendingar hafa litið til
þess sem við höfum gert í uppgjör
inu meðal annars með nákvæmri
greiningu á því sem gerðist í skýrslu
rannsóknarnefndar og síðan endur
skoðun stjórnarskrárinnar. Aðrir
eru forvitnir um að læra af því sem
við höfum gert þó við sjálf séum
ekki tilbúin til að nýta okkar eigin
vinnu til umbóta.”
En, við höfum glatað mörgum
tækifærum að undanförnu: „Rann
sóknarskýrslan, Landsdómur, ESB
aðildin, allt fer í þennan skotgrafaf
arveg; þá eru ónefnd fiskveiðistjórn
unarmálin, auðlindamálin, sem eru
stór hluti af okkar lífsafkomu en
við lendum samt í átökum um þau.
Hannah Arendt, einn merkasti stjór
nmálaheimspekingur tuttugustu
aldar, gerir greinarmun á valdi og
afli. Að hennar mati verður vald til
þegar við vinnum saman og ræðum
saman, það er jafnframt kjarni
mennsku okkar. Þegar við komum
saman og leyfum hverjum og einum
að njóta sín verður til eitthvað nýtt
og jafnvel eitthvað óvænt. Vald í
þessum skilningi verður til milli
fólks og getur fætt af sér nýja mögu
leika. Aflið aftur á móti er einstak
lingsins en er ekki afurð samstarfs
og samræðu milli fólks. Stjórnmálin
eru vettvangur til að ákveða um
sameiginleg mál en þegar við lítum
á stjórnmálin eins og þau tíðkast
hér er beitt afli fremur en valdi í
skilningi Arendt sem þýðir í raun
að stjórnmálin eru valdalaus – þau
valda ekki verkefni sínu. Stjórnmál
aflsins geta ekki fært okkur neitt
nýtt því miður.“
Hættulegt að næra öfgarnar
„Svo er líka annað,“ heldur hún
áfram, „þegar flokkadrættirnir og
átökin eru svona mikil þá er hætta
á að við förum að næra öfgarnar. Ég
ræddi við þýskan stjórnskipunar
fræðing fyrir skömmu, meðal ann
ars um stöðu forsetans í íslenskri og
þýskri stjórnarskrá. Sá rifjaði upp
millistríðsárin í Þýskalandi þar sem
hófsöm miðja missti stöðuna og öfg
arnar náðu styrk sínum. Það er það
sem gerist í svona miklum átökum
að öfgarnar styrkjast. Þeir sem eru
á hófsamari miðju og vilja frekar
gera samkomulag eða málamiðl
anir, tapa stöðu sinni. Þá veit maður
aldrei hvað gerist og skapast getur
hættulegt ástand.“
Salvör segir að á tímabilinu fyrir
hrun hafi verið gríðarleg breyting á
samfélaginu. „Öllu var umturnað og
nánast öll fyrirtæki voru í lamasessi
á eftir. Búið var að róta öllu upp en
það er alltof auðvelt í svona litlu sam
félagi. Við verðum að passa það því
við erum svo viðkvæm fyrir sterku
samfélagsáhrifum. Ég hef áður líkt
íslensku samfélagi við grunna tjörn
þar sem allt vatnið færist til þegar
blæs úr einni átt. Stærri samfélög
hafa meiri dýpt þannig að vatnið
hreyfist bara á yfirborðinu en nær
ekki til þess alls. Tjörnin okkar
dýpkaði ekkert við hrunið, nú blæs
bara úr annarri átt. Svona mikið rót
á svona stuttum tíma getur skaðað
þetta samfélag miklu meira en
stærri samfélög. Við búum ekki yfir
miklum hefðum hér en hefðir geta
þjónað mjög mikilvægum tilgangi í
að skapa kyrrð, góðum siðum sem
við getum gengið að. Við verðum
vara okkur á því að eyðileggja ekki
allt með hruninu, líka það sem við
höfum gert vel eða grunn stofn
anir samfélagsins. Við megum ekki
gleyma því að það fór ekki allt sam
félagið á hliðina. Það fóru þrír bank
ar á hausinn. Of miklar alhæfingar
grafa undan því sem er vel gert.“
Þurfum breytta stjórnmála-
menningu
„Við þurfum breytta stjórnmála
menningu. Íslensk stjórnmála
menning einkennist af hefð átaka
stjórnmála þar sem eru fylkingar
og skýrar átakalínur, með eða
móti. Þetta er ólíkt stjórmálamenn
ingu á hinum Norðurlöndunum en
líkari því sem gerist í Bretlandi
þar sem einnig eru mikil átök milli
stjórnar og stjórnarandstöðu. Þar
eru hins vegar miklar og ríkar
hefðir sem búa til skýran ramma
utan um stjórnmálaumræðuna og
þar er samkomulag um ákveðinn
grunn sem ekki er hægt að hagga.
Við höfum hins vegar engin
mörk og því ekkert sem togar
umræðuna til baka þegar hún er
komin í ógöngur.“
„Við þurfum líka að skilgreina
okkur í heiminum og hvar við vilj
um staðsetja okkur. Víða um heim
á sér stað umræða um hvernig við
eigum að bregðast við fjármála
kreppunni og kreppu umhverfis og
náttúru. Við þurfum nýjar leiðir og
nýja hugsun. Guðbergur Bergs
son spurði í pistli nýverið um það
hver þyrði að endurmeta heiminn?
Og svaraði því til að stjórnmála
leiðtogar væru oftar en ekki úr
takti við þjóð sína. Vonandi tekst
okkur að endurmeta stöðu okkar á
næstu árum og að stjórnmálin nái
völdum sínum þannig að þau valdi
þeim verkefnum sem þau hafa með
höndum.”
Salvör segir að við þurfum
að vera meðvitaðari um veik
leika okkar og hvað í þeim felist.
Einnig að við verðum að sjá í þeim
tækifærin. Við séum sveigjanlegt
samfélag sem getur brugðist við
og getum sýnt samtakamátt þegar
svo ber undir. „Við þurfum að finna
þann tón og næra hann fremur en
öfgarnar.“
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Vogir
frá Adler
á góðum
kjörumBaðvog
AD 8116b
5.400 kr. stgr.
Eldhúsvog
AD 3138b
2.700 kr. stgr.
viðtal 15 Helgin 27.-29. apríl 2012