Fréttatíminn - 27.04.2012, Qupperneq 26
Flest bendir til þess að ríkjandi heims- og Evrópumeistarar Spánar og Ítalía eigi greiða leið í átta liða úrslit
EM í sumar. Ljóst er þó að Króatía og Írland geta vel gert stærri liðunum skráveifu. Fréttatíminn spáir því að
ekkert óvænt komi upp á og stórveldin tvö sigli áfram.
Baráttan í C-riðli
Írland
Spá Fréttatímans:
4. sæti
Íbúafjöldi: 6,4 milljónir
Höfuðborg: Dublin
Staða á heimslista: 18
Besti árangur á EM: 3.
sæti í riðlakeppni 1988
Stjarna liðsins: Fram-
herjinn Robbie Keane er
leiðtogi liðsins og helsti
markaskorari. Þótt
hann sé kannski ekki á
hátindi ferilsins treysta
Írar á þennan snjalla
leikmann.
Frægasti leikmaðurinn:
Roy Keane var á sínum
tíma einn allra besti
miðjumaður heims. Fáir
voru jafn sterkir leiðtogar og mikilir harðjaxlar
og Keane.
Vissir þú að ... írska landsliðið var það fyrsta
utan Stóra Bretlands (Wales, Skotland og Norður
Írland) til að vinna England í landsleik á heima-
velli? Írar unnu á Goodison Park árið 1949.
Króatía
Spá Fréttatímans:
3. sæti
Íbúafjöldi: 4,3
milljónir
Höfuðborg: Zagreb
Staða á heimslista: 8
Besti árangur á EM:
Átta liða úrslit 1996
og 2008
Stjarna liðsins:
Miðjumaðurinn Luka
Modric er frábær
leikmaður og eftir-
sóttur af stórliðum.
Hann er leikinn,
snöggur og með
frábært auga fyrir
spili.
Frægasti leik-
maðurinn: Marka-
hrókurinn Davor
Suker var á sínum
tíma einn öflug-
asti framherji
í Evrópu. Hann
skoraði 45 mörk í
69 landsleikjum og
leiddi framlínu Real
Madrid.
Vissir þú að ...
Króatía hefur ekki
tapað fyrir Ítalíu í
öllum fimm lands-
leikjunum eftir
að landið hlaut
sjálfstæði
árið 1990?
Ítalía
Spá Fréttatímans:
2. sæti
Íbúafjöldi: 60,7 milljónir
Höfuðborg: Róm
Staða á heimslista: 12
Besti árangur á EM:
Evrópumeistarar 1968
Stjarna liðsins: Miðju-
maðurinn Daniele de Rossi
hefur verið undir smásjá
flestra stórliða í Evrópu.
Hann er sterkur, með
mikla yfirferð og gott auga
fyrir spili.
Frægasti leikmaðurinn:
Varnarmaðurinn Paolo
Maldini átti stórkostlegan
feril. Hann var í mörg ár
besti vinstri bakvörður
heims og vann allt sem
hægt var að vinna.
Vissir þú að ... markvörðurinn Dino Zoff er bæði elsti
leikmaðurinn sem hefur unnið HM og lyft sjálfum bik-
arnum? Það gerðist árið 1982 þegar hann var fertugur.
Spánn
Spá Fréttatímans: 1. sæti
Íbúafjöldi: 46 milljónir
Höfuðborg: Madríd
Staða á heimslista: 1. sæti
Besti árangur á EM: Evrópumeistarar 2008
Stjarna liðsins: Miðjumaðurinn Xavi
Hernandez er sá besti heiminum. Enginn er
betri í því að stjórna hraða í leik.
Frægasti leikmaðurinn: Emilio Butragueno eða
„Gammurinn“ eins og hann var kallaður var
einn hættulegasti sóknarmaður Evrópu þegar
hann var upp á sitt besta.
Vissir þú að ... að tíu af
ellefu leikmönnum
byrjunarliðs Spánar
gegn Hollendingum
í úrslitaleik HM
árið 2010 komu
frá Barcelona
og Real Madrid?
Joan Capdevila, frá
Villarreal, var ellefti
maðurinn.
Robbie Keane.
Daniele de Rossi.
Léttöl
Léttöl
í Evrópukeppnina 2012
42 dagar
Emilio Butragueno.
Xavi Hernandez.
Luka Modric.
26 fótbolti Helgin 27.-29. apríl 2012