Fréttatíminn - 27.04.2012, Page 46
46 bækur Helgin 27.-29. apríl 2012
Útgáfa MenningartíMarit
Ljóðskáldið Gyrðir Elías-
son fer beint í þriðja sæti
metsölulista Eymundsson
með ljóðabók sína Hér
vex enginn sítrónuviður.
Bókin er uppseld hjá
útgefanda.
gyrðir vinsæll
ritdóMur Korter
f ljótt talið hafa komið út hartnær þrír tugir bóka frá áramótum, rit af ýmsu tagi, glæsilegur bunki
af ljóðabókum, reyfarar í kiljum til vor-
og sumarlesturs, ljósmyndabækur og
monografar um listamenn, jafnvel bækur
fyrir börn á ýmsum aldri. Af auglýsing-
um má ráða að síðvetrartíminn sé virkur
neyslutími. Nýlega er lokið Bókamark-
aði, bókasöfn eru að marka sér vettvang
í vetrarlok og hnykkt er á hinni hefð-
bundnu sumargjöf, þá eru framundan
fermingar og giftingar þar sem bækur
eru til gjafa.
Fátt er nýrra prósaverka á þessum
lista, þó kom út frumraun ungs höfundar
á dögunum, þaulmenntuð ung blaðakona
sendi frá sér skáldsögu, Korter. Sólveig
Jónsdóttir heitir hún og hefur í kynn-
ingum lýst tildrögum verksins, er komin
á veg með sína næstu sögu. Korter hefur
að miðdepli kaffihús en þar starfar ein af
fjórum ungum konum sem sagan greinir
frá. Hinar þrjár söguhetjurnar tengjast
svo óbeint þessu lími.
Sólveig er að segja sögu ungra kvenna
og lýsir stuttum tíma í lífi þeirra, en um
leið er brugðið upp forsögu þeirra, jafnvel
seilst aftur í sögu foreldra, afa og ömmu.
Sögur kvennanna fjögurra liggja óbeint
saman en eru fleygaðar í löngum köflum.
Hefði raunar mátt fleyga þær smærra, les-
andi saknar þess að geta ekki fylgt þeim
samferða. Sagan hefur í upphafi á sér blæ
áhyggjulausra kennderísa og sambands-
sagna, en vindur upp á sig og verður er
á líður tilraun til dýpri persónulýsinga.
Stílsniðið er aðgengilegt, stundum
nokkuð klisjukennt, lýsingar á fötum,
heimilishögum, tilfinningaróti. Höf-
undurinn ætlar sér ekki um of en gefur
víða sannverðuga mynd af einstaklingum
í ölduróti. Sólveig hefur gott auga, skrifar
látlausan stíl, er sannfærandi í samtölum
og skyggnist dýpra en ætla mætti er á
líður. Hún er gamansöm, er íronísk víða
og fyndin. Tónlistarsmekkur persónanna
er nokkuð aldraður miðað við uppgefinn
aldur, líkast til ræður þar sýnilegur áhugi
höfundar á tónlist.
Korter er þægileg afþreying og er til
vitnis um að hér er kominn á svið höf-
undur sem gæti náð góðri hylli og gefur
vonir um aukinn þroska og jafnvel með
tíð og tíma stærri og tíðindameiri verk-
efni. Kostir verksins eru ótvírætt viljinn
til að greina persónur og íhuga þroska
þeirra, þó sagan sé sett í nokkuð stíft mót
skvísubókanna sem hafa verið vinsælar
lengi meðal lessólginna kvenna sem vilja
meira kjöt á beinin, ríkari samtímatilfinn-
ingu en boðið er upp á í Rauðu ástarsög-
unum. Það er því ástæða til að bjóða Sól-
veigu velkomna á ritvöllinn og óska henni
tíma til frekari skrifta svo sem hugur
henni býður.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Saga fjögurra ungra kvenna
Tvær mikilvægar ljóðabækur eru komnar út: Haldið er áfram
útgáfu á þýðingum Hallbergs Hallmundssonar frá forlaginu
Brú en JPV dreifir. Nú er það hinn mikilvægi bálkur Spoon River
Anthology eftir Edgar Lee Masters, en hann er eitt öndvegis-
verka bandarískra. Hafa stök kvæði verið þýdd úr
bálknum en hér er hann allur.
Fyrir tveim árum kom út ljóðabálkurinn Vetrarbraut
eftir Kjell Espmark, sænskt ljóðskáld og bókmennta-
mann, sem Njörður P. Njarðvík þýddi og Uppheimar
gáfu út. Nú hefur Njörður enn bætt um betur með
úrvali ljóða þessa afkastamikla ljóðskálds sem á að
baki á annan tug ljóðabóka. Hefur Njörður valið úr
þeim gott úrval ljóða og þýtt – eða íslenskað eins og
hann kýs að kalla það. Er þetta enn einn stóráfangi í
merkilegu starfi Njarðar sem þýðanda sem alltof lítið
hefur farið fyrir. Skrifað í stein heitir safnið og er
prýðisgott. -pbb
Tvær merkar ljóðaþýðingar
Þeir stækka bunkarnir í bókabúðum af endur-
útgáfum í kilju: Íslenskur aðall er kominn út
í röðinni Íslensk klassík með formála Péturs
Gunnarssonar. Þegar öllu er á botninn hvolft
heitir saga eftir Alan Bradley sem kom út í fyrra,
athyglisverð tilraun til að hleypa nýjum hug-
myndum inn í heim reyfaranna. Karl Emil Gunn-
arsson þýddi.
Aðdáendur Dorothy Koomson geta glaðst því
þriðja verk hennar er komið á íslensku í kilju,
Konan sem hann elskaði áður, en fyrri bækur
hennar hafa notið vinsælda: Góða nótt, yndið mitt,
Dóttir hennar, dóttir mín og Mundu mig, ég man þig.
Halla Sverrisdóttir þýðir.
Hann telur sig besta sakamálahöfund heims og ný saga hans í kilju
heitir Feluleikur. Maðurinn er James Patterson og hér vinnur hann
með Michael Ledwidge. Magnea Mattíasdóttir þýðir.
Glás af kiljum
Bókmennta og menningarritið Spassían er komið út, skartar
karlmanni á forsíðu en er að stórum hluta skrifað af konum
undir ritstjórn þeirra Auðar Aðalsteinsdóttur og Ástu Gísla-
dóttur. Forvitnum lesendum skal þetta sagt: Heftið er 60 síður,
stútfullt af efni og kostar litlar 890 krónur. Það mun fást í öllum
skárri bókaverslunum og á skilið góða dreifingu. Nú vantar
það lesendur. Það er eitt af fáum tímaritum um menningu sem í
boði er á skerinu og því brýnt að það haldist á lífi.
Margt er hér forvitnilegt: Af viðtölum í lengri kantinum má
nefna myndskreytt samtal við Hrafnhildi Arnarsdóttur mynd-
listarkonu um feril hennar og verk, langt samtal við Steinar
Braga um aðferðir hans í vinnu og almenn viðhorf. Samtal við
Gunnhildi Hauksdóttur um Ný-
listasafnið, sögu þess og stefnu.
Þá kemur við sögu Helena Stefáns-
dóttir kvikmyndahöfundur með
meiru sem segir frá ferli sínum,
verkum og framtíðarverkefnum.
Fjöldi ritdóma er í heftinu um
nýlegar bækur: Flestir eru vel
studdir skoðunum og rökum, aðrir
styttri og ágripskenndari eins og
vill vera. Ritin sem fá lestur eru:
Hollywood eftir Bukowski, Birtan
er brothætt eftir Njörð P. Njarðvík,
Gestakomur í Sauðlauksdal eftir
Sölva Sveinsson þar sem einnig er
tæpt á Jóni Ófeigs Sigurðssonar,
Það sem ég átti að segja næst eftir
Ingunni Sædal, Rekferðir Guðna
Elíssonar rekur Hermann Stefáns-
son og svo er farið um Bernsku-
myndir Sigurðar Pálssonar. Þá er í heftinu yfirlitsgrein um
barna- og unglingabækur eftir Helgu Birgisdóttur.
Önnur miðlunarform skáldskapar fá sitt rými: Þorgeir
Tryggvason fjallar um nýlegar absúrdsýningar leikhúsa og
leikflokka, ræðir um þýðingar á óperutextum. Auður Aðal-
steinsdóttir spjallar um barnasýningar vetrarins. Þá er opnu-
grein um persónulega hliðartexta í prentuðumbókum.
Af lengri sértækum greinum má nefna hugleiðingar um
blekkingarleik textans eftir ónefndan. Ásta Gísladóttir skrifar
um skáldsöguna Picnic at Hanging Rock, Gunnar Th. Eggerts-
son skrifar um stafrænar breytingar á eldri kvikmyndum út frá
endurútgáfum á Star Wars-bálknum og Emil Örvar Petersen
fjallar um verk Gaiman, American Gods. Allt er þetta fróðlegt
og góð fylling í huglægt gap hins ógurlega umræðuskorts
sem oft er kvartað yfir, líka hér. En að því verður vikið síðar í
þessum dálki, til dæmis að viku liðinni, lesandi kær. -pbb
Spássían í vorbúningi
Korter
Sólveig Jónsdóttir
Handtöskusería, MM, 358
síður, 2012.
Njörður P. Njarðvík.
James Patterson er
vinsælasti glæpasagnahöf-
undur heims. Ljósmynd/Nordic
Photos Getty Images
Korter er þægileg
afþreying og er til
vitnis um að hér
er kominn á svið
höfundur sem
gæti náð góðri
hylli og gefur
vonir um aukinn
þroska og jafnvel
með tíð og tíma
stærri og tíðinda-
meiri verkefni.
Kaffi á könnunni og næg bílastæði
b ó k a b ú ð
f o r l a g s i n s
Opið alla virKa daga
kl. 10–18
Og laugardaga
kl. 10–14
Fiskislóð 39