Fréttatíminn - 27.04.2012, Blaðsíða 57
Disney-stjarnan Selena Gomez segist
ekki vera sjálfstæð í klæðarvali;
hún klæðist heldur fötum sem
höfða meira til aðdáenda sinna
en til hennar sjálfrar. Þetta
segir hún í viðtali við tímaritið
People Magazine þar sem hún
svarar spurningum um stílinn
sinn. „Ég reyni að höfða til
sem flestra með klæðarburði mínum.
Aðdáendahópur minn er frekar ungur
og ég sækist að sjálfsögðu eftir því að
vera góð fyrirmynd fyrir þau.“ Nýja
fatalína leikkonunnar, Dream Out Loud,
sem sett var í sölu á dögunum, endurspeglar þessa hug-
myndafræði hennar og er þetta krúttlegur fatnaður sem
frekar er ætlaður krökkum en fólki á hennar aldri.
tíska 57Helgin 27.-29. apríl 2012
Ný sending
góð verð
s.512 1733 - s.512 7733
Kringlan - Smáralind
www.ntc.is | erum á
Fylltir hælar m/böndum
11.995.-
Fylltir hælar m/böndum
11.995.-
Fylltir kork hælar
11.995.-
Fylltir kork hælar
11.995.-
Fylltir hælar m/böndum
11.995.-
Fyrstu orð Kela Þorsteinssonar
sem er mikið einhverfur og
talar ekki. Hann lærði að tjá
sig í fyrsta skipti 10 ára gamall
með hjálp stafaborðs.
Bókin með ævintýralega hattinum eftir Kate Winslet,
einhverfa strákinn Kela og mömmu hans Margréti
bíður þín í Hagkaup.
Ef þú hefðir verið mikið einhverfur, ótalandi og fengir gullinn
töfrahatt sem gæfi þér mál, hvað myndirðu segja?
Þetta er spurningin sem Kate Winslet spurði alla þá frægu
einstaklinga sem tóku þátt í gerð bókarinnar. Með bókinni er
athygli vakin á því að það er öllum mikilvægt að geta tjáð sig,
en áætlað er að um helmingur fólks með einhverfu geti ekki talað.
Til að veita þeim rödd og stuðning hefur fjöldi heimsfrægra
einstaklinga tekið mynd af sjálfum sér með „gullna hattinn“ og
tjáð sig um eitthvað sem skiptir þau máli. Bókin fjallar líka um
sögu Margrétar og Kate og í henni eru birtir tölvupóstarnir sem
innsigluðu vináttubönd þeirra.
Gefðu með hjartanu!
Þú gefur einhverfum rödd og sýnileika með því að kaupa þessa
fallegu bók sem er bæði gott að eiga og hlýlegt að gefa.
Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til The Golden Hat
Foundation sem vinnur í þágu einstaklinga með einhverfu.
Fæst í Hagkaup, einnig á netinu á goldenhatfoundation.org
og amazon.com.
e Golden Hat er komin út
„Ég er raunverulegur“
Taktu þátt í ævintýrinu
og vertu hluti af hópnum
Þú getur látið gott af þér leiða og orðið hluti af hópnum
í bókinni með því að fara á heimasíðuna okkar,
www.goldenhatfoundation.org og á The Golden Wall.
Þar getur þú tekið mynd af þér með gullna hattinn og
deilt með umheiminum hver þín fyrsta setning yrði.
Þá ertu kominn í hóp með Kate Winslet, Kobe Bryant, Zac
Efron, James Franco, Ricky Gervais, Elton John, Jude Law,
Rosie O'Donnell, Justin Timberlake, Oprah Winfrey o.fl.
Myndina þína með gullna hattinn geturðu svo notað sem
prófílmynd á Facebook og hvatt aðra til að láta gott af sér
leiða. Þinn stuðningur skiptir máli.
social.goldenhatfoundation.org
„Ég er hjartanlega þakklát öllum sem
komu að gerð myndarinnar Sólskins-
drengurinn með beinum og óbeinum
hætti og þá sérstaklega aðalstuðnings-
og styrktaraðila hennar, Actavis.“
Margrét D. Ericsdóttir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2-
08
79
Barnalína frá Topshop
Breska tískuhúsið Topshop mun senda frá sér
nýja fatalínu í sumar sem hönnuð er fyrir börn.
Þetta er fyrsta lína fyrirtækisins af þessu tagi og
mun hún vera fjölbreytileg, sumarleg og seld á lágu
verði. Þetta er þó ekki eina nýja línan sem Topshop
sendir frá sér í sumar en hönnuðurinn Richard Nicoll
tilkynnti í vikunni að ný brúðarkjólalína, hönnuð af
honum sjálfum, sé einnig væntanleg frá fyrirtækinu
á næstu vikum. Línan mun samanstanda af fallegum
brúðarkjólum og brúðarmeyjakjólum sem passa vel
fyrir sumarið.
Verslanir Topshop hér á landi fá alltaf sent brot
af því besta sem kemur frá fyrirtækinu en fá þó
ekki sendinguna fyrr en nokkrum vikum eftir
settan fyrsta söludag í Bretlandi. Það er aldrei að
vita nema við fáum að reyna hluta af fallegum
barnafötum og brúðarkjólum í verslunum Topshop
í Kringlunni og Smáralind.
Klæðir sig fyrir aðra
Selena auglýsir fatalínuna sína
Dream Out Loud sem seld er í
Kmart í Bandaríkjunum.