Fréttatíminn - 30.03.2012, Qupperneq 12
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
Caddy* kostar aðeins frá
2.990.000 kr.
(kr. 2.382.470 án vsk)*Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur. Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Til afgreiðslu strax
Atvinnubílar
Sveitarfélög fjárhagSStaða
Segir stöðu Mosfellsbæjar mjög trausta
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri
Mosfellsbæjar, segir það algjörlega
af og frá að fjárhagsstaða Mosfells-
bæjar sé skelfileg eins ráða hafi mátt
af frétt blaðsins fyrir skemmstu.
Líkt og Fréttatíminn greindi frá í
síðustu viku var Mosfellsbær í árs-
lok 2010 eitt tólf sveitarfélaga sem
stóðust ekki viðmið eftirlitsnefndar
um fjármál sveitarfélaga varðandi
hlutfall skulda og tekna, framlegð
og veltufé frá rekstri vegna ársins
2010 og því væri hætta á að þessi tólf
sveitarfélög gætu ekki staðið undir
skuldbindingum sínum.
„Mosfellsbær hefur sent eftirlits-
nefndinni gögn vegna ársins 2010 og
nefndin fallist á okkar rök. Það var
meðvituð ákvörðun bæjarstjórnar að
stilla upp aðgerðum í kjölfar hruns-
ins með þeim hætti að halli yrði
á rekstri bæjarsjóðs á árinu 2010.
Afkoma bæjarsjóðs fram að hruni
var með þeim hætti að bæjarfélagið
gat leyft sér að milda áhrif efnahags-
þrenginga á íbúa sveitarfélagsins
og dreifa þeim á þriggja ára tímabil.
Ársreikningur fyrir árið 2011 sýnir
allt aðra niðurstöðu og kennitölur en
árið 2010 og er í samræmi við þetta
plan sem nefnt er hér að ofan. Til
að mynda, samkvæmt ársreikningi
fyrir árið 2011, er veltufé frá rekstri
677 milljónir eða 12 prósent af
rekstrartekjum. Þetta er hærri tala
en afborganir, vextir og verðbætur
af öllum lánum sveitarfélagsins.
Framlegð frá rekstri er 15 prósent
og skuldahlutfallið komið niður
fyrir 150 prósent af tekjum. Þessi
atriði eiga einnig við um fjárhags-
áætlun ársins í ár,“ segir Haraldur
og bætir því við að staða Mosfells-
bæjar sé í raun mjög traust og fram-
tíðin björt. -óhþ
Haraldur Sverris-
son, bæjarstjóri
Mosfellsbæjar.
Safnað fyrir kisurnar
Páskabasar Kattavinafélagsins verður haldinn í
Kattholti, Stangarhyl 2 í Reykjavík, laugardaginn
31. mars milli klukkan 11 og 16. Á boðstólum
verður að venju margt góðra muna; ýmislegt dót
fyrir kisurnar, páskaskraut og auk þess bakkelsi
sem kattavinir baka og gefa til styrktar Kattavina-
félaginu. Að auki verða sýndar nokkrar yndislegar
kisur sem allar eiga það sameiginlegt að þrá
nýtt og gott heimili. Allir
dýravinir eru hjartanlega
velkomnir. Kattholt
er eina dýraathvarf
landsins og
sækir stuðning
til rekst-
ursins til
góðviljaðra
einstaklinga og
félaga.
Forsetinn byggir við
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar hefur
samþykkt umsókn forseta Íslands,
Ólafs Ragnars Grímssonar, um að
fá að byggja viðbyggingu við 320
fermetra einbýlishús sitt að Reykja-
mel 11 í Mosfellsbæ. Ólafur Ragnar,
sem hyggst bjóða sig fram í fimmta
sinn til forseta í maílok, festi kaup
á húsinu í nóvember í fyrra. Ólafur
Ragnar vill einnig gera breytingar
innanhúss og utan og endurnýja
áður gerðar breytingar. -óhþ
Einar Ingi Marteinsson, með viðurnefnið
Boom, hefur verið rekinn úr mótorhjóla-
samtökunum Hells Angels, að sögn DV.
Einar Boom, sem gegnt hefur starfi forseta
samtakanna, situr nú í gæsluvarðhaldi og
hefur verið ákærður, ásamt fimm öðrum,
fyrir líkamsárás, rán og nauðgun á stúlku
á þrítugsaldri. Eftir því sem Fréttatíminn
kemst næst þarf Einar að skila inn Hells
Angels-merkjum sínum, sem eru eign
samtakanna, og húðflúra yfir húðflúr sam-
takanna. Einar staðfesti á föstudag við DV
að hann væri hættur í Hells Angels en gaf
enga skýringu á þeirri ákvörðun í samtal við
blaðamann DV. -óhþ
Einar rekinn úr Hells Angels
rannSókn kynferðiSofbeldi
Meirihluti misnotaðra
unglinga íhugar sjálfsvíg
Alls 64 prósent stúlkna og 52 prósent pilta sem þröngvað hefur verið til kynferðismaka hefur
íhugað sjálfsvíg. Misnotaðir drengir leiðast frekar út í vímuefni en stúlkur. Áhrif kynferðisofbeldis
auka mjög á vanda barna og unglinga.
Þ rjár af hverjum fjórum stúlkum sem segja að þeim hafi verið þröngvað til kynferðis-maka hafa að eigin mati sýnt sjálfs-
skaðandi hegðun. Nærri tvær af hverjum
þremur hafa sýnt sjálfsvígshegðun og tvær
af hverjum tíu leiðst út í afbrot. Þetta eru
niðurstöður rannsóknar Rannsókna og
greiningar í samstarfi við Barnaverndar-
stofu.
Niðurstöðurnar sýndu að ungling-
ar sem lent höfðu í einhvers konar
kynferðisofbeldi leiddust frekar
út af beinu brautinni en þeir sem
aldrei höfðu lent í slíku. Drengir
sem þröngvað hafði verið til kyn-
ferðismaka sýndu síður sjálfsskaðandi hegðun
og sjálfsvígshegðun en stúlkur, en þó gerði
meirihluti þeirra það í báðum tilfellum. Þeir
leiddust frekar út í vímuefnaneyslu en stúlkurn-
ar, eða 52 prósent, en 40 prósent stúlknanna.
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor og for-
stöðumaður BSc-náms í sálfræði við Háskólann
í Reykjavík, segir að ungmenni sem ekki búi
hjá báðum kynforeldrum sínum, þá sérstaklega
stúlkur, og ungmenni sem búi við ágreining eða
ofbeldi á heimili séu í áhættuhópi.
„Fái unglingar ekki stuðning, umhyggju og
hlýju og séu ekki undir eftirliti foreldra sinna, er
líklegra að þeir lendi í erfiðum aðstæðum eins
og þeim að taka ginningarboðum í leit að ein-
hvers konar athygli,“ segir hún.
„Varðandi einhleypu foreldrana er ein af skýr-
ingunum talin vera sú að stjúpforeldrar skapi
hættu fyrir barnið,“ segir hún. „Sérstaklega ef
móðir treystir nýjum og nýjum maka í blindni.“
Bryndís segir þörf á að hvetja til frásagnar og
að kynferðislegt ofbeldi sé tilkynnt svo hægt sé
að grípa inn í og stöðva það eins fljótt og hægt
er. „Það eru allir tilkynningarskyldir og fólk
þarf ekki að vita alla málavöxtu heldur aðeins að
gruna að brotið sé á börnunum.“
Rannsóknin tók til 9.085 nemenda á aldrinum
16 til 19 ára.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Alvarlegar afleiðingar
kynferðisofbeldis. Myndin
er sviðsett.
Mynd/gettyimages
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir lektor.
12 fréttir Helgin 30. mars-1. apríl 2012