Fréttatíminn - 30.03.2012, Page 28
Þ
að hefur
alla tíð verið
mikil tónlist í fjöl-
skyldu Hallgríms.
Faðir hans lærði til
söngs hjá Guðrúnu Á. Símonar
og í fjölskylduboðum enn þann
dag í dag er jafnan sungið. „Pabbi
var að læra til söngs hjá Guðrúnu
Á. Símonar og mamma hefur mikla
og fallega náttúrulega söngrödd sem
við systkinin fengum oft að njóta
fyrir svefninn. Ég á því nokkuð
margar minningar um söng,“
segir Hallgrímur. Og hann
byrjaði sjálfur snemma
að syngja. „Ég var sjálfur
mjög raddsterkur og það fór
sjaldnast milli mála hvar ég
var niðurkominn í veröld-
inni. Að sögn mömmu spratt
ég fram alskapað söngskáld í
kringum fjögurra ára aldurinn.
Hún þurfti þá, eins og margar
konur, að vera á tveimur stöðum
samtímis og það var einhver asi
á henni með mig sem eftirdrag.
Þá þaut einhver kergja í skáldið
og þar söng ég fyrst eigið lag og
texta: „Mig langar svo til að
verða brjálaður.“ Þetta lag
söng ég svo þindarlaust uns er-
indi mömmu var lokið.“
Settu allir upp söngleiki
Hallgrímur á tvo eldri bræður og
með þeim á hann margt sameiginlegt
og þá sérstaklega tónlistina. Þeir hafa
allir sett upp söngleiki. „Um tuttugu og
tveggja ára innritaðist ég í Söngskóla
Reykjavíkur en var þar aðeins í eitt ár
þar sem ég var óviss um hvaða stefnu
ég ætlaði að taka. Það vor er ég var
enn í skólanum setti Guðmundur bróðir
upp söngleik eftir sjálfan sig fyrir Fjöl-
brautaskólann við Ármúla. Það gekk víst
eitthvað brösuglega og tveir leikaranna
í aðalhlutverkum gengu á dyr svo að Guð-
mundur kallaði í mig og Ingimar bróður
til að bjarga því sem bjargað varð. Við
bræðurnir sungum því sitt hlutverkið
hvor og kláruðum með sóma,“ segir
Hallgrímur brosandi.
Ráðinn söngvari eftir Hemma Gunn
Þeir bræður komu fram í hinum
vinsæla þætti Á tali með Hemma
Fyrsta plata Hallgríms Odds-
sonar, tónlistarmanns og
Fjallabróður, er persónuleg og
hún hefur verið lengi í vinnslu.
Frá því að fyrsta ljóðlínan
og hljómurinn urðu til
og þar til platan kom
út liðu sautján ár;
jafnlangur tími og
líður frá fæðingu
barns fram að bíl-
prófsaldri unglings.
Einfaldlega flókið er
þemaplata og bygg-
ist á persónulegri
reynslu Hallgríms í
ástamálum.
Sautján ár
í vinnslu
Framhald á næstu opnu
Hallgrímur tók sér góðan tíma í
að klára plötuna. Ljósmynd/Hari
28 viðtal Helgin 30. mars-1. apríl 2012