Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.03.2012, Síða 32

Fréttatíminn - 30.03.2012, Síða 32
– fyrst og fre mst ódýr! 1198kr.tvennan Aðeins Coke, Coke Light eða Coke Zero , velur þér Freyju Rísegg nr. 4 eða Nóa Perluegg nr. 4! Þú kaupir 4x2 lítra af M arkmiðið með verkefni Listaháskólans var að leiða saman hönnuði og bændur og freista þess að þróa matarafurðir í hæsta gæðaflokki. Að leiðarljósi var hönnunin og rekjanleiki hráefnisins til framleiðslustaðar. Verkefnið var hluti af BA-námi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands. Með styrkveitingu árið 2008 komst verulegur skriður á verkefnið því fjármagnið skapaði grundvöll til að þróa þær hugmyndir til fulls sem urðu til á nám- skeiðinu. Aðeins var unnið með einu býli í hvert sinn og var býlinu afhent tilbúin afurð til framleiðslu í lokin. Verkefnið var þverfagleg samvinna matreiðslumeistara, sérfræð- inga Matís og Innovit sem unnu með hönnunarteymi Stefnumóts hönnuða og bænda. Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun við Listahá- skóla Íslands, segir verkefnið hafa verið frábært samstarf milli bænda og hönnunarnema. „Þegar margar ólíkar fagstéttir eru leiddar saman verður útkoman óútreiknanleg. Samstarfið hefur hrist upp í öllum sem komið hafa að verkefninu. Mig óraði ekki fyrir því að útkoman yrði þessi. Vissulega er flókið að vinna með svo mörgum en kostirnir eru ótvíræðir,“ segir Sigríður. Skyrkonfekt í spenalíki Skyrkonfekt er ein af afurðunum sem litu dagsins ljós og var það hannað af Kristínu Birnu Bjarnadóttir, Öldu Halldórsdóttur og Sabrinu Stigler í samstarfi við bóndann og mjólkurfræðinginn Þorgrím Guð- bjartsson á Erpsstöðum í Dölum. Kristín Birna segir það hafa gefið sér mest í nám- inu, að öllu öðru ólöstuðu. „Ég er ákaflega hamingju- söm að fá þetta tækifæri því ég hef lært svo mikið af þessari vinnu. Það gefur mér persónulega svo mikið að vita af því að það er bóndi sem hefur það alveg súp- ergott af því að hann er að selja vöru sem ég hef tekið þátt í að hanna og skapa.“ En hvernig byrjaði þetta allt saman? „Á þessum sex vikna kúrsi komumst við alveg ótrúlega langt. Við bjuggum til okkar eigið skyr og settum strax súkkulaði á það. Upphaflega hugmyndin var sú að molarnir áttu að vera júgur með fjórum spenum en það reyndist of erfitt í framleiðslu; því varð endanleg útkoma einn heilbrigður speni – eins og Þorgrímur komst svo skemmtilega að orði.“ „Það er mikill heiður og gaman að vera með í þessu verkefni,“ segir Þorgrímur Guðbjartsson á Rjóma- búinu Erpsstöðum og telur það ekki síst mikilvægt að vera opinn fyrir tækifærum. „Þegar við fórum af stað í þetta verkefni óraði mig ekki fyrir því að þetta yrði svona stórt. Við tókum strax þá ákvörðun að gera eitt- hvað meira með þetta og tveimur árum seinna fórum við aftur af stað með sömu stelpunum.“ Í upphafi námskeiðsins mættu stelpurnar, Krist- ín Birna, Alda og Sabrina, á býlið að skoða aðstæð- ur. „Ég hló mikið þegar þær fóru. Ég var viss um að það væri ekki hægt að gera neitt nýtt úr mjólk. Þær komu með allt aðra sýn en ég á búskap og spurðu bókstaflega um allt. Eitt er að vera mjólkur- fræðingur og framleiða sínar afurðir úr mjólk, en annað að vera með fólki sem horfir á þetta frá allt öðru sjónarhorni. Þær komu með fegurðarskyn og listrænt sjónarhorn sem gerði verkefnið miklu meira spennandi – ákveðna glansáferð. Það kemur í ljós í þessari vöru, þegar hún er tilbúin, að hún er bæði fyrir augað og munninn.“ Þorgrímur segir að hann hafi orðið klökkur á HönnunarMars í fyrra þegar hann afgreiddi konfekt- ið sitt í Turninum á Lækjartorgi. „Bóndi á 21. öldinni í miðbæ Reykjavíkur að bjóða vöru sína til sölu. Það var mikill sigur að fá að vera þarna. Þegar ég var barn og bjó í Reykjavík, stóð Turninn á torginu fyrir það sem var ofsalega freistandi og ævintýralegt. Þetta var rosalega góð tilfinning. Ég upplifði fullkomnun, maður hélt að þetta væri komið en það var ekki fyrr en ég stóð þarna að þetta varð áþreifanlegt.“ Himnaríki í kviðnum „Það er alltaf gaman að taka þátt í einhverri sköpun, eitthverju sem er nýtt. Við samvinnu kemur ný hugsun. Það var gaman að fá þetta unga fólk í heimsókn og velta fyrir sér þess reynslu í hönnun og uppruna í menningu,“ segir Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit, um verkefnið sem þar var unnið. Í aðalhlutverki er rúgbrauðsrúlluterta sem kemur annað hvort með kæfu- eða bleikjufyllingu, og svo kanilsnúðar innblásnir af Þórbergi Þórðarsyni. Þorbjörg segir að kveikjan hafi meðal annars verið umfjöllun Þórbergs um snúða í verkum hans þegar hann var að draga fram lífið í Reykjavík Rigningarsumarið mikla. „Þá keypti hann sér gjarna mjólkurglas og snúð og fékk himnaríki í kviðinn,“ rifjar Þorbjörg upp. Til að skera rúgbrauðsrúllutertuna var hannaður sérstakur höggstokkur sem vísar til mælingarár- áttu Þórbergs, en hann mælir nákvæmlega hvað fólk vill mikið. Auður Ösp Guðmundsdóttir vöru- hönnuður var ein af þeim sem þátt tóku í verkefninu í samstarfi við Þór- bergssetur ásamt Höllu Kristínu Hannesdóttur og Steinþóri Hannesi Gissurarsyni. Auður Ösp segir að markmið verkefnisins hafi verið „að búa til ákveðna stemningu, matarupplifun“. Hún segist hafa heillast af stór- brotinni náttúru á Hala og hinum sérviskulegu háttum Þórbergs sem ýttu und- ir sköpunargleði hópsins. „Við sökktum okkur í Þórberg, orðaleiki hans og mælingar, og lékum okkur til dæmis með mælt mál.“ Verkefnið hefur opnað margar dyr, jafnt fyrir unga hönnuði sem og bændasamfélagið. Þegar blaðamaður kíkti á Auði var hún stödd í Brimis- húsinu á HönnunarMars að kynna nýjustu vöru sína, Ís, sem hún hannaði fyrir bændaverslunina BúBót ásamt Emblu Vigfúsdóttur. Eftir Stefnumót hönnuða og bænda hefur hún tekið að sér fjölda verkefna í tengslum við matarhönnun. Stefnan er tekin á Ísafjörð en glettin á svip segist Auður ekki vilja gefa neitt upp að svo stöddu. Þegar bændur hittu hönnuði Fyrir fjórum árum var hrundið af stað nýsköpunarverkefni Listaháskóla Íslands sem bar yfirskriftina Stefnumót hönn- uða og bænda.Teflt var saman einni elstu starfsstétt landsins, bændum, og þeirri yngstu, vöruhönnuðum. Afraksturinn er nú til sýnis í fyrsta skipti í heild í Sparkdesign Space við Klapparstíg. Þórunn Kristjáns- dóttir rifjar hér upp þetta ævintýri. Ljósmyndir/Vigfús Birgisson 32 hönnun Helgin 30. mars-1. apríl 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.