Fréttatíminn - 30.03.2012, Síða 82
66 bíó Helgin 30. mars-1. apríl 2012
Frumsýnd Wrath oF the titans
Safaríkar sögur úr goðafræði Forn-Grikkja hafa í gegnum aldirnar verið fólki úr öllum listgreinum
drjúg uppspretta og Hollywood sækir enn stíft í þennan sagnabrunn. Fyrir tveimur árum fór hinn
vörpulegi leikari Sam Worthington mikinn í fullum herklæðum í Clash of the Titans og nú heggur
hann í sama knérunn með Wrath of the Titans.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Goð og garpar
taka aðra lotu
W rath of the Titans frá árinu 2010 var endurgerð samnefndrar myndar frá 1981. Fyrir þremur
áratugum lék sjálfur sir Laurence Olivier
yfirguðinn Seif en Liam Neeson kom í hans
stað í endurgerðinni og Ralph Fiennes lék
drottnara undirheima, Hades. Í Clash of the
Titans tefla þeir bræður Seifur og Hades
grimmilegt valdatafl
en Hades ásælist
hásæti stóra bróður á
Ólympstindi. Kappinn
Perseifur blandast í
væringarnar, þáttur
hans vegur þungt
og áður en yfir lýkur
hefur hann afhöfðað
Medúsu, ráðið niður-
lögum skrímslisins
Kraken og komið á
jafnvægi á himni og
jörð. En Perseifur
var ekkert of lengi
í paradís. Tíu árum
síðar fer allt í bál og
brand aftur þannig að
ekki kemur annað til
greina en að grípa til
sverðsins á ný í Wrath
of the Titans og mæta
jafnvel skæðari and-
stæðingum en síðast.
Til þess að geta ráð-
stafað sín í milli undir-
heimum, jörð og hafi,
þurftu þeir bræður
fyrst að steypa föður sínum, títaninum Kró-
nosi, af stóli og það gerðu þeir bókstaflega og
vörpuðu honum og hinum gömlu guðunum
í botnlausa hyldýpið Tartarus. Þegar hér er
komið sögu hefur Perseifur dregið sig í hlé,
látið hetjustælana lönd og leið og lifir rólegu
lífi í litlu sjávarþorpi þar sem hann elur upp
tíu ára son sinn og lifir á gæðum hafsins.
Krónosi er hins vegar farin að leiðast vistin
í undirdjúpunum og Hades og Ares, einn sona
Seifs, sjá sér leik á borði, snúa bökum saman
og reyna að koma Seifi fyrir í ánauð hjá Kró-
nosi. Perseifur, sem er hálfmennskur sonur
Seifs, getur ekki setið hjá og róið til fiskjar
á meðan föður hans eru brugguð banaráð
þannig að hann snýr aftur í hringiðu ævin-
týra, skrímsla og sverðaglamurs.
Það syrtir þó hratt í álinn, kraftar Seifs fara
þverrandi og að lokum nær Krónos honum
á sitt vald þannig að Perseifur leitar á náðir
hins fallna guðs Hefaistosar, sem sá mæti
leikari Bill Nighy leikur, og gyðjunnar Andró-
medu og með þeirra stuðningi dembir hann
sér niður til Tartarus til þess að bjarga Seifi
og ljúka væringunum milli guðanna með því
að ráða niðurlögum Krónosar og hyskis hans.
Það syrtir
þó hratt í
álinn, kraft-
ar Seifs
fara þverr-
andi og að
lokum nær
Krónos
honum á
sitt vald.
Perseifur hefur reynt að hafa það náðugt þau tíu ár sem liðin eru síðan hann gerði út af við Medúsu og Kraken en nú eru góð
ráð dýr því Hades situr á svikráðum við Seif; eina ferðina enn.
Enn sótt í smiðju dr.
Seuss
Barnabókahöfundurinn Theodor Seuss
Geisel, best þekktur sem dr. Seuss, töfraði
fram ýmis fyrirbæri sem hafa skemmt kyn-
slóðum barna í gegnum ófáa áratugina.
Þekktasta sköpunarverk hans er sjálfsagt
ófétið hann Trölli sem tók upp á því í
gremju sinni að stela jólunum. Þá þekkja
flestir Köttinn með höttinn en báðir létu
þessir furðufuglar til sín taka í bíó fyrir
nokkrum árum. Þá mætti fíllinn Horton til
leiks í teiknimynd fyrir ekki svo löngu og
nú er röðin komin að The Lorax.
Þar segir frá tólf ára gutta sem býr í bæ
þar sem allt er úr plasti. Hann er bál-
skotinn í stelpu og kemst að því að hún
þráir ekkert heitar en fá að sjá og snerta
alvöru tré. Hann leggur því í leiðangur
út fyrir bæinn í leit að tré þrátt fyrir að
bæjarbúum sé með öllu óheimilt að fara út
fyrir bæjarmörkin.
Á flakki sínu kynnist drengurinn trjámann-
inum Once-ler sem er tilbúinn að segja
honum, gegn greiðslu, söguna af því þegar
allur gróður hvarf af yfirborði jarðar. Once-
ler lumar einnig á fróðleik um það hvernig
heimabær stráksa varð til og hvers vegna
allt er þar úr plasti.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,6, Rotten Tomatoes:
57%, Metacritic: 47%
Frumsýndar
Hinn umdeildi, og á köflum
mistæki, meistari Roman
Polanski hefur yfir úrvals
mannskap að ráða í Carnage
og býður hér upp á Jodie
Foster, John C. Reilly, Kate
Winslet og Christoph Waltz í
gamansömu drama.
Tveimur ungum skólafélögum
lendir saman á skólalóðinni
og lýkur viðskiptum þeirra
með því að annar lemur hinn í
andlitið með spýtu. Foreldrar
drengjanna ákveða að setjast
niður saman og leysa úr þessu
leiðindamáli að hætti kurteiss og
almennilegs fólks. Sáttafundurinn
fer vel af stað og allt útlit er fyrir að báðir aðilar geti fallist á ásættanlegar
málalyktir.
Þegar nokkur óheppileg orð eru látin falla fer hins vegar allt í bál og brand;
deilur hjónanna stigmagnast og enda í hávaðarifrildi þar sem ásakanir fljúga á
báða bóga og ýmislegt kemur upp á yfirborðið sem átti að liggja kyrrt.
Myndin er byggð á leikritinu God of Carnage sem hefur verið á fjölunum á
Broadway.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,5, Rotten Tomatoes: 71%, Metacritic: 61%.
Polanski í hjónadeilu
e inhvers staðar í ekki svo mjög fjarlægri framtíð heyra Bandaríkin, eins og við þekkjum þau, sögunni til, eftir borgarastyrjöld og hamfarir. Dystópían Panem hefur
risið á rústum BNA og þar búa þegnarnir við ansi hreint mis-
jafnan kost.
Hinum kúguðu er haldið niðri með árlegum Hungurleikum
þar sem hvert svæði sendir stelpu og strák á unglingsaldri út
á vígvöll þar sem unglingunum er gert að berjast upp á líf og
dauða þar til einn stendur eftir sem sigurvegari.
Katniss Everdeen er vösk, sextán ára stelpa sem býður sig
fram á leikana til þess að bjarga litlu systur sinni frá því að enda
líf sitt á vellinum og í fyrstu virðist blasa við að hún sé þar með
að ana út í opinn dauðann.
Þegar á hólminn er komið er þó ljóst að stelpan leynir á sér og
hún verður helsta stjarna Hungurleikanna, sem er sjónvarpað
út um allt land þannig að þeir eru afþreying – um leið og þeir
eru kúgunartæki. (Svolítið eins og sjónvarpið á okkar dögum).
Andstæðingar Katniss tapa tölunni í blóðugum drápum jafnt
og þétt á meðan stelpan reddar sér með hugrekki, útsjónarsemi,
hjartagæsku og bandalögum hinna minnimáttar gegn grimm-
ustu keppendunum.
Katniss er burðarás sögunnar og hin unga leikkona Jenni-
fer Lawrence gerir stelpunni frábær skil og er lífið og sálin í
magnaðri mynd sem býður upp á spennu, grimmd og krúttlega
unglingadramatík sem kallar á köflum fram gæsahúð þegar til-
finningasemin nær hámarki.
The Hunger Games er ferlega flottur framtíðartryllir þótt
frumleikinn sé ekki mjög mikill en hér má greina bergmál frá
þekktum dystópíum á borð við 1984, THX 1138, The Running
Man og svo mætti lengi telja, auk hinnar japönsku Battle Royale.
The Hunger Games er smart, töff og stíliseruð í drasl hvort
sem um er að ræða búninga, sviðsmyndir eða bardagaatriði.
Sagan er í raun grimm og ljót; ofbeldi er afgreitt harkalega en
svo hratt að yngstu áhorfendum í markhópnum er vel óhætt.
Þórarinn Þórarinsson
Bíódómur hunger games
Tár, blóð og gæsahúð
Liam Neeson sem Seifur
í Wrath of the Titans.
Sir Laurence Olivier í
hlutverki Seifs í Clash of
the Titans árið 1981.
Kurteislegur hjónafundur breytist í harða deilu þegar
röng orð eru látin falla.
Undirheimar bókaklúbbur er áskriftarklúbbur Uppheima fyrir unn
endur glæpasagna. Fimm sinnum á ári fá klúbb fél agar sendar nýjar
kiljur í frumútgáfu: vetrarkrimma, páska krimma, vorkrimma, sumar
krimma og haustkrimma.
Verð hverrar bókar er aðeins kr. 1.990,- og sendingargjald ekkert.
Í Undirheimum er lögð áhersla á vandaðar þýðingar fram úr skar
andi norrænna glæpasagna eftir marga af þekktustu glæpa sagna
höfundum Norðurlanda.
Undirheimar bókaklúbbur er einungis starfræktur á heima síðu
Upp heima, www.uppheimar.is
Kynnið ykkur klúbbinn!
SPLUNKUNÝR BÓKAKLÚBBUR
MEÐ NORRÆNUM GLÆPASÖGUM
SPENNANDI BÓKAKLÚBBUR
Glæpasögur Undirheima á betra verði!B Ó K A K L Ú B B U R