Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 6
Lunch, brunch og 40 rétta kvöldverðarhlaðborð
Nítjánda veitingastaður - þar sem hóparnir eiga heima
Námskeið sálfræðiNgarNir JohN og Julie gottmaN hafa raNNsakað yfir þrJú þúsuNd pör
Stórlaxar á sviði sálfræði til landsins
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
Áttatíu sérfræðingar hafa bókað sig á námskeið
hjá sálfræðingunum og hjónunum John og Julie
Gottman. Þau eru frumkvöðlar meðal fræðimanna;
sálfræðingar sálfræðinganna. John hefur verið kjör-
inn einn af tíu áhrifamestu
sálfræðingum síðasta aldar-
fjórðungs og Julie var kosin
sálfræðingur ársins í Wash-
ington-fylki árið 2005.
Hjónin hafa ekki áður
haldið námskeið í eins litlu
landi og Ísland er. Anna
Valdimarsdóttir, sem stendur
ásamt Valgerði Magnúsdótt-
ur og Ólafi Grétari Gunn-
arssyni sálfræðingum að komu þeirra til landsins,
segir að þau hafi unnið að því allt frá árinu 2010, að
fá Gottman-hjónin hingað. „Við mynduðum pers-
ónuleg tengsl við þau þegar við fórum til Tyrklands
á námskeið þeirra.“
Prestar, sálfræðingar,
félagsráðgjafar, hjónabands-
ráðgjafar og hjúkrunar-
fræðingar munu sitja tveggja
daga langt námskeiðið þar
sem þau hjónin fara yfir
niðurstöður nærri fjögurra
áratuga rannsókna sinna á
yfir 3.000 pörum.
„Niðurstaða þeirra er
meðal annars sú að það er ekkert síður ágrein-
ingur í hamingjuríkum samböndum en hinum
heldur er munur á því hvernig á ágreiningi er
tekið,“ segir Anna. Þau hjónin ætli einnig
að bjóða upp á tveggja klukkustunda
fyrirlestur í Hörpu um leiðir að betra
sambandi hjóna.
„Eins og þau segja, og mér finnst
sterkt, er að undanfari rifrilda er oft
umræða um samtalið sem hefði átt að
eiga sér stað en gerði það ekki. Fjöl-
skyldan hornsteinn að góðu samfélagi
og því mikilvægt að kunna að rækta
sambönd sín.“
John og Julie Gottman Anna Valdimarsdóttir
m ér sýnist þetta, svona við fyrstu sýn, lykta af því að verið sé að reyna að ná inn einhverjum pen-
ingum af saklausum hreindýraskyttum,“
segir leikarinn Pálmi Gestsson sem hefur
lagt stund á hreindýraveiðar undanfarin
ár og áratug. Pálmi segir að honum virðist
sem svo að enn sé verið að þrengja að
skotveiðimönnum og takmarka mögu-
leika þeirra til að fara á hreindýraveiðar.
„Þeir munu margir detta út. Prófið er það
strangt,“ segir Pálmi um nýtt verklegt
skotpróf sem Umhverfisstofnun skikkar
allar hreindýraskyttur og leiðsögumenn
til að fara í áður en þeir halda veiða þetta
árið.
Prófið snýst bæði um að hitta fimm
skotum af hundrað metra færi í mark sem
er 14 sentimetrar í þvermál. Auk þess felst
í prófinu að menn umgangist vopn sitt
samkvæmt ákveðnum reglum. Pálmi, sem
fékk hreindýraleyfi þetta árið – var einn af
um þúsund þeirra fjögur þúsund sem sóttu
um – ætlar að mæta galvaskur í prófið:
„Ég læt þetta ekki stoppa mig. Ég verð að
gera þetta. Ef maður fellur á formsatriðum
þá er það auðvitað súrt því ég er búinn að
fara á hreindýraveiðar í áratug og skjóta
nokkur dýr,“ segir Pálmi. Hann bætir því
við að hann skilji ekki alveg þörfina á prófi
sem þessu. „Það hefur verið strangt eftir-
lit með þessu í gegnum árin. Allir verða
að vera með leiðsögumann og ég veit ekki
betur en að þetta hafi verið til fyrirmynd-
ar,“ segir Pálmi.
Vel þess virði ef menn ná dýrinu
Sigmar B. Hauksson, fyrrverandi for-
maður Skotveiðifélags Íslands, tekur aftur
á móti hinu verkelga prófi fagnandi. „Ég er
mjög fylgjandi þessu. Svona er þetta alls
staðar annars staðar og við teljum þetta
nauðsynlegt. Þetta girðir fyrir alls konar
vandamál,“ segir Sigmar.
Aðspurður um auka útgjöld fyrir skytt-
urnar segir Sigmar að í ljósi þess að menn
séu að eyða hátt í þrjú hundruð þúsund
krónum í veiðiferðina sé 4500 krónur fyrir
prófið ekki mikið. „Ef þetta tryggir að
menn nái dýrinu þá er það vel þess virði,“
segir Sigmar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
skotveiði hreiNdýraveiðar
Hreindýraskyttur
skikkaðar í próf
Allir þeir sem ætla að veiða hreindýr þetta árið þurfa að standast verklegt skotpróf samkvæmt
lögum sem samþykkt voru fyrr á þessu ári. Kostnaðurinn við prófið er fjögur þúsund og fimm
hundruð krónur og fá skytturnar þrjú tækifæri til að standast það.
Það munu
margir
detta út.
Prófið
er það
strangt.
Pálmi Gestsson ásamt leiðsögumanninum góðkunna Sigurði Aðalsteinssyni eftir að hafa lagt eitt hreindýr að velli.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
6 fréttir Helgin 1.-3. júní 2012