Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 41
9STYRKTARFÉLAG LAMAÐR A OG FATLAÐR A − AFMÆLISRIT60
ÁRA
SLF
1. júní 2012
ans. Dagurinn getur oft orðið
mjög langur.“
Auður Ösp er mjög ánægð
með starfsemi Æfingastöðvar-
innar og segir að þjálfunin sem
Alexander Breki sæki á Æf-
ingastöðina sé nauðsynleg þar
sem fötlun hans sé það mikil
og heftandi. „Það fjölbreytta
starf sem unnið er á Æfinga-
stöðinni gerir mikið fyrir
Alexander. Sjúkraþjálfarinn
hans og iðjuþjálfinn gera svo
miklu meira en bara að þjálfa
Alexander. Þær hafa hjálpað
okkur báðum svo mikið og
unnið mjög óeigingjarnt starf.
Þær eru báðar frábærar í sínu
starfi.“ Auður bætir við að upp-
lifun hennar af því starfi sem
fram fer á Æfingastöðinni sé
einstakt. „Mér finnst starf-
semin frábær og þar er alltaf
tekið vel á móti okkur. Við
erum ótrúlega þakklát fyrir
alla þá umönnun og hjálp sem
við höfum fengið þar í gegnum
tíðina. Stuðningurinn sem við
höfum fengið þarna er ómetan-
legur. Starfsfólkið virðast
hafa einstakt lag á því að gera
þjálfun, sem oft á tíðum getur
verið ansi strembin, auðvelda
og skemmtilega fyrir krakk-
ana sem þangað fara. Ég veit
allavega að Alexander finnst
alltaf gaman að fara í þjálfun.“
Grét yfir dagbókinni
Tómstundastarf og afþrey-
ing fyrir börn sem búa við
fötlun virðist stundum vera af
skornum skammti. Erfiðara
getur reynst fyrir krakka í
grunnskóla og framhalds-
skóla að finna eitthvað við
sitt hæfi, ekki síst yfir sumar-
tímann. Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra starfrækir sumar-
búðir og vetrardvöl fyrir fötluð
börn og ungmenni í Reykjadal
í Mosfellssveit og í Sumarlandi
á Stokkseyri. Í sumarbúðunum
gefst krökkunum tækifæri á
að upplifa sumarbúðastemn-
ingu í sinni sælustu mynd, þar
sem gleðin og leikurinn eru
ríkjandi.
„Reykjadalur er einfaldlega
himnaríki á jörðu,“ segir Auð-
ur Ösp brosandi. „Alexander
fór þangað í fyrsta skipti sum-
arið 2009 og hann hefur farið
öll sumur síðan. Ég viðurkenni
það alveg að það var svolítið
erfitt að senda hann þangað
fyrst, en þá var hann í eina
viku. Alexander átti ógleyman-
legar stundir í Reykjadal og fer
þangað alltaf í tvær vikur núna.
Það er ekkert annað í boði.“
Auður segist ekki alveg hafa
vitað við hverju hún ætti að
búast þegar hún sótti í fyrsta
skipti um fyrir Alexander í
Reykjadal. „Þegar ég sótti
hann í Reykjadal var hann svo
glaður og kátur og hefði eflaust
viljað vera lengur. Hann hafði
búið til dagbók með fóstrunni
sinni þar sem sagt var frá öllu
sem á daga hans hafði drifið
í máli og myndum. Ég hágrét
þegar ég las og skoðaði allt
sem hann og hinir krakkarnir
höfðu fengið að gera. Alexand-
er getur lítið tjáð sig, svo þessi
dagbók sagði mér allt sem ég
vildi vita.“
Upplifir ævintýri í Reykja-
dal
Auður bætir við að hún hafi
ekkert endilega átt von á þessu
mikla ævintýri sem krakkarnir
fái að upplifa í Reykjadal. „Al-
exander ljómar allur bara við
það eitt að heyra orðið Reykja-
dalur. Í Reykjadal gengur
starfið út á að krakkarnir njóti
þess að vera í sumarfríi og fái
að upplifa „alvöru“ sumarbúðir
ander er í Reykjadal, því þar
fær hann sitt draumafrí. Í
sumar ætla ég til Tyrklands
með kærastanum mínum,
Pétri Fannberg. Það er í
fyrsta sinn sem ég fer í utan-
landsferð á meðan Alexander
nýtur sín í Reykjadal.“
Auður bætir við að sín
reynsla sé sú að Reykjadalur
sé nauðsynlegur fyrir börn
með sérþarfir og fjölskyldur
þeirra. „Í Reykjadal upplifa
börnin það að ekkert geti
stöðvað þau, hvorki hjóla-
stólar né aðrar sérþarfir. Þau
hverfa inn í þennan ævintýra-
heim sem Reykjadalur er og
við foreldrarnir og systkini
getum hlaðið batteríin á með-
an. Það má nefnilega ekki
gleyma því að við þurfum
líka að hlaða batteríin og
njóta þess að vera til, alveg
eins og foreldrar annarra
barna. Úrræðin eru bara tak-
markaðri fyrir okkur.“
Ég hágrét
þegar ég las
og skoðaði
allt sem
hann og
hinir krakk-
arnir höfðu
fengið að
gera.
með öllu sem því fylgir. Ég
fæ það á tilfinninguna að
í þann tíma sem þau eru í
Reykjadal sé allt hægt og
þau fái að gera hluti sem
ég bjóst kannski ekkert
endilega við að Alexander
myndi nokkurn tímann
geta gert.“
Auður lýsir fyrsta sumr-
inu sem ómetanlegu. „
Hann fór í sund á hverjum
degi, óð í ám, fór í fjall-
göngur, á hestbak og svo
mætti lengi telja. Það skipti
engu máli að hann væri í
hjólastól, alltaf var fundin
lausn á því svo hann gæti
gert allt svo lengi sem
ímyndunaraflið næði yfir
það.“
Auður var langt geng-
in með sitt annað barn
þegar Alexander fór fyrst
í Reykjadal og þá fannst
henni mjög erfið tilhugsun
að skilja hann eftir í heila
viku, ekki vitandi beint
við hverju hún ætti að
búast. „Við vorum dugleg
að heimsækja hann, sem
gerði þetta auðveldara
fyrir okkur. Svona eftir á að
hyggja var það ekki hann
sem þurfti á því að halda,
frekar ég.“ Bætir Auður við
og hlær.
Draumafrí Alexanders
„Alexander fer alltaf í
tvær vikur í Reykjadal
núna og ég fæ smá sam-
viskubit þegar dvölinni
lýkur og hversdagurinn
tekur við. En þá erum við
dugleg að fara í útilegur
og gera okkur dagamun,
en fótbolti og trampólín er
það allra vinsælasta um
þessar mundir.“ Auður
heldur áfram og segir að í
Reykjadal upplifi Alexand-
er draumasumarfríið sitt.
„Það er staðreynd að það
krefst gríðarlegrar orku og
vinnu að sjá til þess að Al-
exander njóti sín sem allra
best. Hvað þá frá morgni til
kvölds í tvær vikur. Þegar
Alexander er í Reykjadal
veit ég að hann nýtur sín
allan tímann og við hin í
fjölskyldunni getum líka
notið okkar í sumrinu.
Oftast höfum við náð góðri
afslöppun eða jafnvel farið
í ferðalög, sem geta reynst
flókin með fjölfatlað barn.
Þetta getum við gert án
samviskubits, þegar Alex-