Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 8
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
og fáðu Intiga til prufu í vikutíma
Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun
heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður
skýrara en þú hefur áður upplifað.
Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum!
*Í flokki bak við eyra heyrnartækja
sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu
Heyrnartækni kynnir ...
Minnstu heyrnartæki í heimi*
Gjaldþrotum fækkar
Alls voru 54 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í
apríl, að því er Hagstofan greinir frá. Svo fá hafa
gjaldþrot ekki verið í einum mánuði síðan í ágúst í
fyrra. Til samanburðar voru 158 fyrirtæki tekin til
gjaldþrotaskipta í mars. Þá fækkaði gjaldþrotum
einnig frá apríl fyrra árs en þá voru gjaldþrotin 87.
Gjaldþrotum fækkaði því um 40 prósent frá fyrri
mánuði og um 65 prósent frá sama mánuði fyrra
árs. „Ekki þarf að koma á óvart að gjaldþrotum sé
nú loksins að fækka á sama tíma og farið er að sjást
til lands varðandi þá gríðarlegu fjárhagslegu endur-
skipulagningu sem átt hefur sér stað í atvinnulífinu.
Undanfarin ár hafa verið fyrirtækjum í landinu
gríðarlega erfið og endurskipulagning hefur gengið
hægt fyrir sig,“ segir Greining Íslandsbanka. Í apríl
voru 126 einkahlutafélög nýskráð. Það er fækkun
um 32 nýskráningar frá fyrri mánuði og 20 færri
nýskráningar en í sama mánuði fyrra árs. - jh
Þ eir áttu ekki til aukatekið orð, kollegar mínir á Norðurlöndunum, þegar ég sagði þeim frá því að símhleranir við-
gengjust á Íslandi í rannsóknum á meintum
efnahagsbrotum sem eru löngu liðin og
afleiðingar þeirra ljósar. Þeim fannst þetta
hljóma ískyggilega líkt og
var fyrir austan járntjaldið
forðum,“ segir Brynjar
Níelsson, fráfarandi
formaður Lögmanna-
félags Íslands, í samtali
við Fréttatímann en
hann sat fund formanna
norrænu lögmannafélag-
anna á dögunum.
Brynjar segir að slíkar
hleranir þekkist ekki í
öðrum löndum sem við vilj-
um bera okkur saman
við. „Látum nú
vera að
slík-
ar
hleranir væru heimilar ef menn væru að
reyna að koma í veg fyrir möguleg brot sem
væru yfirvofandi, en því er ekki að heilsa í
þessum tilfellum, eða einhverjir aðrir ríkir
almannahagsmunir væru fyrir hendi. Hin
mögulegu brot eru löngu framin og þetta ber
keim af því að verið sé að fiska í gruggugu
vatni. Þetta er mikið áhyggjuefni finnst
mér því ég fæ ekki betur séð seinustu
misseri en að hvers konar hagsmunir
ríkisvaldsins séu taldir mikilvægari
en friðhelgi einkalífs fólks. Þetta er
hættuleg þróun sem verður að sporna
við strax,“ segir Brynjar.
Símhleranir sérstaks saksóknara
hafa verið gagnrýndar harðlega af verj-
endum þeirra manna sem verið hafa til
rannsóknar hjá embættinu. Og Brynjar
er einn þeirra. „Ég segi þetta ekki ein-
göngu þess vegna. Mér er annt um frið-
helgi einkalífsins sem er grundvallarréttur
hvers einstaklings. Ég tel hagsmuni
þeirra kvenna, sem fengið hafa
sílikon í barm sinn, til að
njóta nafnleyndar, meiri en
réttur ríkisins til að kom-
ast að því hvort einhver
lýtalæknir hafi skotið
hundruðum þúsunda
eða milljónum undan
skatti. Friðhelgin er ein
af grunnstoðum sam-
félagsins og það hriktir
í henni.“ -óhþ
RannsóknaRheimildiR séRstakuR saksóknaRi
Eins og fyrir austan
járntjaldið forðum
Brynjar
Níelsson,
lögmaður.
Brynjar Níelsson segir virðingu fyrir friðhelgi einkalífsins á undanhaldi hjá ríkisvaldinu. Friðhelgin
sé sett í annað sætið á eftir rannsóknarhagsmunum og eftirliti ríkisins.
Ég fæ ekki
betur séð
seinustu
misseri en
að hvers
konar
hagsmunir
ríkis-
valdsins
séu taldir
mikil-
vægari en
friðhelgi
einkalífs
fólks.
Reginn á markað
eftir miðjan júní
Landsbankinn mun bjóða hlutabréf
í Fasteignafélaginu Regin til sölu 18.
og 19. júní og stefnir að skráningu
félagsins í framhaldinu. Viðskipti í
Kauphöll með bréf félagsins munu
hefjast um mánaðarmótin júní-júlí.
Það er í eigu tveggja dótturfélaga
Landsbankans. Reginn tók til
starfa 2009 og var ætlað að fara
með eignarhald á þeim eignum
sem bankinn eignaðist í kjölfar
fullnustuaðgerða eða annars konar
skuldaskila. Samkvæmt verðmati er
heildarverðmæti félagsins á bilinu
30,8 til 34,1 milljarður króna og
markaðsvirði hlutafjár á bilinu 15,0-
18,3 milljarðar króna. - jh
Orkusamstarf Ís-
lendinga og Breta
Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráð-
herra og Charles Hendry, orkumála-
ráðherra Bretlands, undirrituðu á
miðvikudag viljayfirlýsingu um aukið
samstarf ríkjanna á sviði orkumála.
Í henni eru tilgreind fjögur svið sem
ríkin leggja áherslu á: Miðlun þekk-
ingar og samvinna varðandi beislun
jarðhita og uppbyggingu hitaveitna
í Bretlandi. Möguleiki á lagningu
rafmagnsstrengs milli Íslands og
Bretlands skal kannaður. Vilji til að
aðstoða þróunarlönd við að hagnýta
endurnýjanlegar orkuauðlindir.
Áhersla skal lögð á ríki í Austur-
Afríku. Miðlun á þekkingu varðandi
uppbyggingu á olíu- og gasiðnaði. - jh
Fjölbreytt dagskrá
á Hátíð hafsins
Sjómannadagurinn
er á sunnudaginn,
3. júní. Á laugardag
og sunndag verður
Sjómannadeginum
fagnað í Reykjavík og
menningu hafsins gert
hátt undir höfði með
fjölbreyttum hætti. Hátíðarhöld fara fram á Granda og
teygja sig yfir á Ægisgarð. Sirkus Íslands, Gói og Þröstur
Leó, Valdimar, Retro Stefson, dorgveiði, listasmiðjur,
sjóræningjasiglingar, flöskuskeytasmiðja, furðu-
fiskasýning og margt fleira verður í boði fyrir alla fjöl-
skylduna. Að því er fram kemur á síðu Hátíðar hafsins
stendur dagskráin sem hæst frá klukkan 13 – 17. - jh
Með aukinni bjart-
sýni inn í sumarið
Væntingar íslenskra neytenda
jukust lítillega í maí. Væntingavísi-
tala Gallup hækkaði um tvö stig
frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3
stig. Þetta er annar mánuðurinn
í röð sem væntingar landsmanna
glæðast á milli mánaða. Á sama
tíma í fyrra stóð vísitalan í 66,3
stigum og fara landsmenn því
mun bjartsýnni inn í sumarið nú
heldur en fyrir ári, að því er fram
kemur hjá Greiningu Íslands-
banka. Þegar væntingavísitalan
er undir 100 stigum eru fleiri
neikvæðir en jákvæðir. Vísitalan
hefur ekki farið yfir 100 stig síðan
í febrúar 2008. - jh
Vegglistaverk
málað í dag
Grafíski hönnuðurinn
Siggi Eggertsson hefur
hannað vegglistaverk
fyrir Hönnunarmiðstöð
Íslands, sem málað
verður á gafl húss Hönn-
unarmiðstöðvarinnar
í Vonarstræti. Þetta er
fyrsta vegglistaverk
þessa þekkta hönnuðar,
segir í tilkynningu Hönn-
unarmiðstöðvarinnar,
en myndefnið kemur
í ljós á málningardeg-
inum sjálfum sem er í
dag, föstudaginn 1. júní.
Málningarvinnan hefst
klukkan 9 og búist er
við að henni ljúki fyrir
klukkan 17, þegar haldið
verður opnunarteiti til að
fagna verkinu og komandi
sumri. Vegglistaverkið
mun þekja allan gafl húss
Hönnunarmiðstöðvar-
innar í Vonarstræti 4b.
„Með þessu verki viljum
við koma staðsetningu
Hönnunarmiðstöðvar-
innar á kortið, segir Halla
Helgadóttir framkvæmda-
stjóri.” - jh
Fyrsta skóflustunga að
hjúkrunarheimili á Ísafirði
Fyrsta skóflustunga
að nýja hjúkr-
unarheimilinu Eyri
á Ísafirði var tekin
á miðvikudaginn.
Hana tók Guðbjartur
Hannesson vel-
ferðarráðherra en
honum til aðstoðar voru á fjórða tug barna úr leikskólunum
Eyrarskjóli og Sólborg sem standa sitt hvoru megin við
byggingarlóð hins nýja hjúkrunarheimilis. Hjúkrunarheimilið
verður 30 rýma með stækkunarmöguleika um 10 rými þeim
til viðbótar ef þörf krefur í framtíðinni. Húsnæðið verður um
2.300 fermetrar að stærð og kostnaður við bygginguna er
áætlaður um 850 milljónir króna. Lóðarframkvæmdir hófust
um leið og fyrsta skóflustungan var tekin, en gert er ráð fyrir
því að bygging hússins verði boðin út á haustmánuðum. - jh
Handskreytt úr í anda íslenskra
útskurðarmeistara
JS Watch co. Reykjavík bjóða nú sérsmíðuð úr skreytt orðinu
Ísland með höfðaletri. Úrið er viðhafnarútgáfa af úrinu
Frisland Goð sem kynnt var á liðnu ári og tengdist eldgosinu
í Eyjafjallajökli. Úrið skartar skífu með ösku úr gosinu en
með höfðaletrinu er vísað til þess að allt frá landnámi hafa
Íslendingar skapað fallega muni og skreytt. Slíkir munir bera
með sér sögu og hafa haft tilfinningalegt gildi fyrir eigendur.
Hvert úr þarf að sérpanta en möguleiki verður að fá stöðl-
uðum höfðaleturs-texta breytt í persónulegan, til dæmis
nafn kaupanda. Úrsmíðameistari og gæðastjóri er Gilbert Ó.
Guðjónsson. - jh
8 fréttir Helgin 1.-3. júní 2012