Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 15
Sj
ál
fs
tæ
ði
-
T
ra
us
t
-
Fr
am
sæ
kn
i -
J
af
nr
ét
ti
Í boði er nám í þremur deildum á hug- og
félagsvísinda sviði;
félagsvísindadeild, lagadeild og kennaradeild:
▶ Félagsvísindi*
▶ Fjölmiðlafræði*
▶ Kennarafræði* (leik- og grunnskólastig)
▶ Lögfræði
▶ Nútímafræði*
▶ Sálfræði*
▶ Heimskautalögfræði L.L.M/M.A.
▶ Menntavísindi
- M.A. í menntavísindum
- Viðbótarnám í menntavísindum (60 einingar)
▶ Menntunarfræði
- M.Ed. í menntunarfræðum
- Viðbótarnám í menntunarfræðum (60 einingar)
Á viðskipta- og raunvísindasviði er boðið upp á
nám í viðskiptadeild og auðlindadeild:
▶ Líftækni*
▶ Sjávarútvegsfræði*
▶ Náttúru- og auðlindafræði*
▶ Viðskiptafræði*
▶ M.S. í auðlindafræði
▶ M.S. í viðskiptafræði
Engin skólagjöld, innritunargjald fyrir
skólaárið kr. 60 þúsund.
Á heilbrigðisvísindasviði er boðið upp á nám í
þremur deildum:
▶ Hjúkrunarfræði**
▶ Iðjuþjálfunarfræði*
▶ Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum
- M.S. í heilbrigðisvísindum
- Viðbótarnám í heilbrigðisvísindum (40 einingar)
*Einnig í boði í fjarnámi
**Fjarkennt til Reykjanesbæjar og Ísafjarðar
HÁ
SK
ÓL
IN
N Á
AKUREYRI
198
7
20
12
Umsóknarfrestur til 5. júní
Vertu Velkomin/n í
Háskólann á akureyri!
www.unak.is
Hann segist aðspurður ekki hafa
misst vini út af málinu. „Ég skal
ekki segja, ég hef ekki misst neina
af mínum trúu og gömlu vinum
en það eru ýmsir viðhlæjendur
úr stjórnmálum sem ég hef ekki
lengur áhuga á að hafa mikið sam-
neyti við. Þeir eru ekki í mínum
flokki og ég er stoltur af því hve
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
voru einarðir og sjálfum sér sam-
kvæmir í málinu,“ bætir hann við.
Innanflokksátökin erfiðust
Geir hefur sagt skilið við pólitík-
ina. En hefur hún gefið honum
mikið? „Já, hún hefur gefið mér
mjög mikið. Hún gaf mér nú meira
að segja konuna mína,“ segir hann
og brosir. „Nei, ég hef haft mikið
út úr því að starfa í pólitík, sjá hug-
myndir breytast í veruleika og
ýmis góð mál ná fram að ganga.
Ég nefni í því sambandi til dæmis
endurskoðun mannréttindakafla
stjórnarskrárinnar, en ég stýrði því
verki á árunum 1994-95. Einnig vil
ég nefna þann árangur sem náðist
á árum mínum í fjármálaráðuneyt-
inu í skattamálum og varðandi
skuldastöðu ríkissjóðs. En svo
koma alltaf líka þau augnablik þar
sem menn fyllast gremju og von-
brigðum, en þannig er það alls
staðar í lífinu.
Hann segir að það erfiðasta við
pólitíkina sé að fást við innan-
flokksátök. „Það er mikil sam-
keppni í stjórnmálum og það kom-
ast ekki allir allt sem þeir vilja. Þá
þarf að taka á því og finna leiðir út
úr slíku og það getur verið leiðin-
legt og erfitt. Á móti kemur hversu
skemmtilegt það er að vinna
með samherjum að raunhæfum
lausnum sem varða hag fólksins í
landinu.“
„Keppni innan flokka er öðruvísi
en milli flokka og kannski meiri
sárindi sem fylgja. Aðalatriðið er
síðan að menn standi saman þegar
slíkum átökum er lokið. Ég óttast
hins vegar núna að þau átök sem
eru í þinginu, það stjórnarfar sem
við búum núna við hafi letjandi
áhrif á ungt fólk gagnvart því að
blanda sér í stjórnmál og það er
mjög neikvætt. Það orðbragð sem
margir hafa tamið sér á Alþingi
er líka fyrir neðan allar hellur.
Ég held að landsdómsmálið virki
sömuleiðis í þá átt að hæfileikafólk,
sem myndi sóma sér vel í stjórn-
málum veigri sér við að gefa
kost á sér. Það er alltaf hörgull á
hæfileikafólki en nóg framboð af
hinum.“
Pólitískt ofstæki meira
En hvað hefur breyst? „Það er því
miður miklu meiri harka í þessu
núna og pólitískt ofstæki meira
áberandi af hálfu ráðandi afla.
Þess vegna er virðing Alþingis í
lágmarki. Ég held til dæmis að
það hafi aldrei áður í alvöru verið
íhugað að höfða landsdómsmál á
hendur nokkrum manni og bara
það sýnir ótrúlega mikla heift og
hörku.
Það var alltaf þannig að menn
áttu góða vini og kunningja
í öðrum flokkum, og jafnvel
trúnaðarmenn. Ég eignaðist marga
ágæta kunningja og vini í öðrum
flokkum. Ég hef grun um að þetta
hafi nú breyst heilmikið og þess
vegna sé þetta harðskeyttara og
ég vil skrifa það að stórum hluta á
það hvernig á málum er haldið af
hálfu ríkisstjórnarforystunnar nú-
verandi.“
Þegar hann er beðinn um að
útskýra betur hvað hann eigi við
svarar hann: „Eftir höfðinu dansa
limirnir og ef aldrei er
neinn sveigjanleiki eða
auðmýkt þá gengur
illa að fá fólk til
að semja og
leggja sig fram
við að leysa
mál.
Líklegt
er að Geir hafi náð markmiðum
sínum í pólitík. Aðspurður segist
hann ekki hafa hugsað um að
setja sér ný markmið á þeim vett-
vangi. „Lífið hefur upp á svo ótal
margt annað að bjóða og nú er
ég meira að segja farinn að spila
golf,“ segir hann og brosir. „Það
eru tvö til þrjú ár síðan við byrj-
uðum á því, hjónin. En, nei, ég er
ekki sestur í helgan stein, ekki
meðan ég get gert eitthvað gagn
og fundið mér verkefni við hæfi.
Ég hlakka til að takast á við nýja
hluti með samstarfsfólki mínu
hjá OPUS lögmönnum. Þar er
kraftmikið fólk á ferð og vonandi
mörg skemmtileg verkefni fram-
undan.“
Geir segist aðspurður ekki hafa
skoðað það af neinni alvöru að
leita sér að störfum á alþjóðavett-
vangi líkt og margir stjórnmála-
menn gera þegar þeir hætta
beinum afskiptum af pólitík á
besta aldri. „Aðstæður mínar
síðustu árin hafa ekki boðið upp á
það, menn sækjast ekki eftir slíku
með landsdómsmál yfir höfði sér.
Auðvitað veit ég ekki hvað bíður
mín í framtíðinni en ég hyggst
núna nota kraftana í þágu þess
starfs sem ég hef tekið að mér
hjá OPUS auk þess að flytja fyrir-
lestra erlendis eins og ég hef gert
í nokkrum mæli undanfarin ár.“
En þú ætlar ekki aftur í póli-
tíkina? „Nei hugur minn stendur
ekki til þess,“ segir hann að
lokum og brosir.
Ég hef verið spurður að því hvort mér finnist
ekki óþægilegt að vera með vinnuaðstöðu
hérna niðri í miðbæ. En mér finnst það alls
ekki óþægilegt. Mér er alveg sama þótt það
sé stutt yfir í þinghús og stutt yfir í forsætis-
ráðuneytið, ég er ekkert á leiðinni þangað,
þannig að það truflar mig ekki neitt. Ég hef
alltaf kunnað vel við mig hérna í Kvosinni. Ég
byrjaði sem 12 ára strákur að bera út skeyti
hjá ritsímanum, í Landsímahúsinu hérna rétt
hjá, og var líka sendill hjá Bifreiðastöð Steindórs í Hafnarstræti 2. Ég vann síðan á
Mogganum á sumrin í mörg ár, við endann á Austurstræti. Þegar ég vann í Seðla-
bankanum var gengið inn í hann í vestari endanum á Landsbankahúsinu þannig að
maður fór inn Austurstrætismegin til að stimpla sig inn. Síðan var ég í forsætis-
ráðuneytinu við Lækjartorg og einnig hinum megin við hólinn, í Arnarhvoli. Þar var
ég reyndar í 11 ár, fyrst í fjögur ár sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra og svo
rúm sjö sem ráðherra. Plús náttúrulega 22 ár í þinginu þannig að megnið af minni
starfsævi hef ég verið hér á þessum slóðum. Mér líður vel hér í miðbænum.
viðtal 15 Helgin 1.-3. júní 2012