Fréttatíminn - 01.06.2012, Page 16
Léttöl
7 dagar
þangað til gleðin byrjar
Fylgstu með okkur á facebook.com/carlsberg
Þjóðverjum
spáð sigri á EM
Fréttatíminn fékk fjölda fólks til að spá fyrir um fjögur efstu liðin á EM sem hefst eftir viku. Gefin voru fjögur stig fyrir 1. sætið,
þrjú stig fyrir 2. sætið, tvö stig fyrir 3. sætið og eitt stig fyrir 4. sætið. Yfirgnæfandi meirihluti spáir Þjóðverjum sigri en ljóst má
vera að þeir, ásamt Spánverjum og Hollendingum, bera höfuð og herðar yfir önnur lið þegar litið er til væntinga fyrir mótið.
„Einfaldlega
bestir.“
„Á góðum degi
stenst ekkert lið
ríkjandi Evrópu-
og Heimsmeist-
urum snúning.
„Eins og hjá
Barcelona í
Champions
League er komið
að smá stoppi á
velgengni í bili.“
„Klárlega
skemmtilegasti
fótboltinn en
tölfræðilega er
ekki hægt að
vinna EM tvisvar
í röð.“
„Lykilmenn ekki í
formi eða meiddir samanber Torres
og Villa en gott lið sem nær alltaf
langt en vinna ekki.“
„Það er ekkert hlaupið að því að
verja titilinn og hefur ekki tíðkast.
Það eru reyndar góðar líkur á að
Spánverjar nái því, enda verður að
viðurkennast að heimsmeistararnir
eru klárlega með besta landsliðið.“
„Og eru Spánverjar ekki Villa-lausir?
Það munar um minna.“
„Ógnvekjandi hvað þeir halda bolt-
anum vel, en liðið er sennilegast
ekki jafn sterkt og það var á HM í
Suður-Afríku.“
„Koma brjálaðir eftir afdrif þeirra í
meistaradeildinni.“
„Frábær liðsheild og gríðarleg gæði
í leikmannahópnum.“
„Held að gósentími Spánverja sé
liðinn í bili. Það er eitthvað að hökta
hjá þeim án þess að endilega sé
hægt að festa hönd á það hvað
það er.“
„Þeir vinna ekki annað stórmót en
verða nálægt því.“
„Spánverjar hafa unnið allt sem
hægt er að vinna undanfarin ár –
kannski eru þeir að verða saddir,
en þeir munu þó nánast örugglega
komast í úrslitaleikinn.“
„Munu sakna Carles Puyol og David
Villa. Þeirra tími er að dvína.“
„Án Puyol er spænska landsliðið
eins og paella án hrísgrjóna.“
„Enn besta liðið. En erfið tímabil hjá
Real Madrid og Barcelona ásamt
þeirri byrði að standa alltaf undir
væntingum koma í veg fyrir sigur.
Stjórinn er þó góður.“
„Þeir eru líklegastir ef eingöngu
er horft á leikmannahópinn enda
spilar liðið svakalega flottan
fótbolta. Silfrið verður hinsvegar
þeirra þar sem þeir mæta ekki til
leiks á fastandi maga. Vel mettir af
fjölbreyttum
taps-
réttum og
spænskum
„Bacalao”
þurfa þeir
að játa sig
sigraða í úr-
slitaleiknum.“
„Ég er viss
um að Spán-
verjar verða
flottir fram í
undanúrslit
en þá mun
umræðan
um sögulega
þrennu
fara með
þá og þeir
tapa þá á
dramatískan hátt fyrir Hollandi í
mögnuðum undanúrslitaleik.“
„Auðvelda spáin er að ætla þeim
sigur, en liðsheildin verður ekki sú
sama og venjulega. Líklega gengur
þeim erfiðlega að skora – og vörnin
klikkar í föstum leikatriðum.“
„Kunna varla annað en að vinna en
lykilmenn eru að missa áhugann.“
„Kóngarnir í knattspyrnuheiminum
í dag verja titilinn.“
„Meistararnir eru afburðagóðir, en
kannski brothættari nú en í síðustu
tveimur keppnum.“
„Losna við að mæta Þjóðverjum,
Frökkum og Ítölum þangað til í úr-
slitaleik. Komast því líklega þangað
en skortir kannski hungur til að
vinna þriðja mótið í röð.“
„Spánverjar eru óstöðvandi og
ekkert land mun ná að stöðva
leikgleðina og samheldnina sem er
í hópnum.“
„Alltaf eitt af betri liðunum.“
„Ég hef einfaldlega haldið með Hol-
landi allar götur frá tímum Cruyff
og ekki síður frá því þegar þeir voru
bókstaflega lamdir niður með afar
ósanngjörnum hætti í Argentínu,
með sitt frábæra lið, ´78 – þegar
Maríó Kempes var aðal spaðinn fyrir
heimamenn. Ég hef svo sem ekkert
meira fyrir mér með það. Þetta
er sennilega óskhyggja fremur en
nokkuð annað.“
„Hollendingar höfnuðu í öðru sæti
á HM og eru með öfluga leikmenn
sem geta unnið leiki upp á eigin
spýtur. Þetta er kjörinn sýningar-
gluggi fyrir Robin Van Persie ef
hann er að hugsa sér til hreyfings.“
„Flottur fótbolti, flottir leikmenn og
flott skipulag. Alltaf í topp 4 og hafa
burði til að vinna mótið.“
„Þeirra tími er kominn. Liðið er
skemmtileg blanda reynslubolta og
rísandi stjarna.“
„Verða í fjórða sæti. En hverjum er
ekki andsk..... sama hver nær 4.
sætinu?.“
„Besta sóknarliðið í álfunni sem
stendur, Huntelaar, Van Persie,
Robben og Sneijder. Tapa með
sæmd í úrslitum.“
„Eru alltaf helvíti góðir en bara
næstum því.“
„Holland. Oft svo huggulegir karl-
menn þar. Voru reyndar í öðru sæti
á HM og eru svo sem til alls vísir.“
„Skemmtilegir einstaklingar en liðs-
heildina hefur oft skort. Gæti verið
þreyta í þeirra herbúðum.“
„Skemmtilegt lið og hefð sem hefur
ekki uppskorið í töluverðan tíma.“
„Loksins munu Hollendingar ná að
spila sem liðsheild og lenda lang-
þráðum titli.“
„Eins og áður vantar Holland
herslumuninn.“
„Með marga frábæra leikmenn en
vandamál á bak við tjöldin gera það
að verkum að það nær ekki alveg á
toppinn. Ekki sannfærður um ágæti
stjórans.“
„Ógnar sterkir fram á við með einn
allra besta strikerinn í dag, Van
Persie fremstan í flokki. Framlínan
hjá þeim spilar í einhverju allt öðru
en tréklossum og það eru engir
túlípanar sem spila djúpt hjá þeim
á miðjunni. Robben sýndi það í
meistaradeildinni í ár að þar er
einn allra besti knattspyrnumaður
veraldar á ferð. Þeir fara langt en
ekki lengra en bronsið.“
„Hollendingar eru með frábært lið
en þurfa sætta sig við að fá silfur á
öðru stórmótinu í röð. Þeir stoppa
Spánverja í undanúrslitunum en
tapa síðan fyrir Þjóðverjum í úrslita-
leiknum.“
„Held að liðið mæti afslappað til
leiks með besta framherja Evrópu
í teigi andstæðinga. Í efsta styrk-
leikalista UEFA, vel mannað, léttleik-
andi og umfram allt skorandi.“
„Ógnvænlegur hópur en eins og
svo oft áður verða þeir sjálfum sér
verstir og stranda á þýska liðinu í
úrslitum. Sorrí.“
„Voru í úrslitum HM síðast og hafa
sennilega bara bætt sig síðan þá.“
„Boðberar nýrrar appelsínugulrar
byltingar í Úkraínu.“
„Ef þeir klára þetta ekki núna vinna
þeir aldrei stórmót.“
„Þeir appelsínugulu spila flottan
bolta en klikka þegar mest reynir á.“
„Eru með mjög góðan hóp leik-
manna og alvöru markaskorara, en
þeirra lykilmenn á miðjunni virðast
ekki í sínu allra besta formi og því
fara þeir ekki alla leið.“
„Vel mannað og seigt lið. En því
miður ekki hið hrífandi Holland sem
við erum vön.“
„Þeir verða sprækir og fara
létt í gegnum riðlakeppnina og
verða taldir sigurstranglegir en
munu tapa illa fyrir Spánverjum í
undanúrslitum.
Robin Van Persie mun fara á
taugum og gera eitthvað af sér í ætt
við Zidane, þó ekki svo grimmt.“
„Ég held að tími litlu, sætu,
síðhærðu sólarana með hárband,
(KR-ingar eru alltaf með einn
slíkan sem þykir
ægilega góður
en kemur
lítið útúr)
sé liðinn.
Slík tímabil
vara yfirleitt
skammt.
Þýska stálið
tekur þetta
núna.“
„Þjóðverjar eru orðnir tveimur
árum eldri, byggja á velgengninni
á HM og hafa unnið alla leiki í
undankeppninni. Þeir eru með
skemmtilegt lið leikmanna sem
hafa spilað vel með stórliðum
á borð við Real Madrid, Bayern
Munchen og Borussia Dortmund.“
„Þeirra tími er kominn aftur.
Frábært lið í alla staði.“
„Gríðarlega agaðir, vinnu-
samir og skipulagðir,
allt sem þarf til að
vinna fótbolta-
leiki.“
„Varla veikan
bletta að
finna hjá
sterku liði
Þýska-
lands
sem spilar
eiginlega á
heimavelli. Neuer
– Lahm – Schwein-
steiger – Gómez er
mænan hjá lands-
liðinu og Bayern!
Sigurvegarar
og Bayern-leik-
menn mæta
hungraðir til
leiks.“
„Stálið fer
alltaf langt á
seiglunni.“
„Fantagott og
ungt lið á HM
2010 er núna
enn betra og
reynslumeira. Og
langar svo miklu,
miklu meira í sigur
en Spánverja, sem
eru saddir heims-
og Evrópumeistarar.“
„Besta lið Evrópu um þessar
mundir, Bayern plús Özil,
Mertesacker, Podolski, Klose
og Khedira, frábær heild,
flottir einstaklingar, snjall
þjálfari.“
„Ungt lið en með
töluverða reynslu af
stórmótum. Gætu komið á óvart.“
„Liðið var frábært á HM 2010 og
nú gengur allt upp.“
„Gamli þýski hrokinn og trúin á því
að þeir geti ekki tapað fleytir þeim
langt, þrátt fyrir að Bayern hafi
tapað á heimavelli í úrslitaleik í
Meistaradeildinni.“
„Eins leiðinlegt og mér þykir að
segja það þá mun Þýskaland ná
langt á þessu móti, mögulega
vinna það...úff.“
„Tími Þjóðverjana er núna. Frábær
samsetning á liði, flestir á besta
aldri með frábæran þjálfara og
marga matchwinnera í liðinu.“
„Hafa verið við það að springa út
og gera það núna. Eiga ótrúlega
marga frábæra unga knattspyrnu-
menn og eru með toppþjálfara.“
„Þetta verður þýskt sumar. Liðið
er alltof vel mannað til þess að ná
ekki langt í þessari keppni. Gomez
verður markakóngur í ár og Özil
leggur þau nokkur upp.“
„Það er komið að Þjóðverjunum
að taka við af Spánverjum og ríkja
næstu árin í alþjóða boltanum.
Ungu strákarnir eru orðnir að
mönnum og Bayern-mennirnir
ætla ekki að fá fjórða silfrið í ár.
Þýska stálið, með örlitlum suð-
rænum áhrifum, er svo sannarlega
efni í sigursælt landslið.“
„Ég held það skipti engu máli
hvað gerðist í Meistaradeildinni,
Þjóðverjar eru með frábærlega
mannað lið. Þeir eru reynslunni
ríkari eftir HM fyrir tveimur
árum og EM 2008. Þýska stálið
siglir alla leið í ár með Özil í broddi
fylkingar.“
„Þétt lið sem fór ósigrað í gegnum
undankeppnina.“
„Tek kolkrabbann, sem spáði þeim
alltaf sigri, mér til fyrirmyndar.“
„Frábærlega skipulagðir, bein-
skeyttir í sókn, með góða blöndu af
ungum og spennandi leikmönnum
ásamt reynsluboltum sem alla
hungrar í sigur.“
„Efnilegasta kynslóð Þjóðverja í
mannsaldur. Jafnvel þeir yngsu
með reynslu af stórmótum. Klára
dæmið núna.“
Þýskaland 128 Spánn 104
Holland 79
Framhald á næstu opnu
16 fótbolti Helgin 1.-3. júní 2012