Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 24
Hefðu Ástralir fengið að
ráða úrslitum Eurovision
hefði íslenska framlagið
lent í tíunda sæti. Í
símakosningu þar í landi,
sem haldin var samhliða
keppninni, kusu 21.430 ís-
lenska lagið. Þessi atkvæði
höfðu bara alls engin
áhrif. Svíar voru efstir með
72.186 atkvæði, Rússar
í öðru og Írar, sem vermdu 19. sætið, sætið fyrir ofan þau
Gretu og Jónsa, hefðu fengið bronsið um hálsinn. Því miður,
því miður. Íslendingar ættu kannski að berjast fyrir því að
Ástralir fái að kjósa í Eurovision í framtíðinni, því smekkur
þeirra virðist fara mun betur við okkar en smekkur Evrópu.
Lag Gretu Salóme Stefánsdóttur,
Never Forget, varð áttunda upp
úr undanriðlinum. Lögin sem
lentu fyrir ofan þau voru
frá: Kýpur, Írlandi, Mold-
avíu, Grikklandi, Rúmeníu,
Albaníu og Rússlandi – í
þessari röð. Rússnesku ömm-
urnar sigruðu því í þessum
fyrri undanriðli. Og þeir sem
vildu gera grín að albanska
söngfuglinum með hreiðrið í
hárinu geta hætt að hlæja;
hún varð önnur og lenti svo
í fimmta sæti í aðalkeppn-
inni. Ísland fékk tíu stig
frá bæði Finnum og Dönum
en engin frá Albönum,
Aserum, Írum og Rúmenum á
þriðjudagskvöldinu.
Sænska lagið í toppsæti vinsældarlista víða
Sænska Eurovision-sigurlagið heyrist nú víða. Það er í toppsæti iTunes vinsældarlista
víða í Evrópu: Austurríki, Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Grikklandi, Ír-
landi, Lúxemborg, Hollandi, Noregi, Spáni, Svíþjóð (að sjálfsögðu), Sviss og Bretlandi,
samkvæmt opinberu Eurovision-síðunni. Hér á landi er lagið líka í toppsæti FM 957
útvarpsstöðvarinnar en í síðustu viku var það í 14. sæti á lista Rásar 2.
Engin sænsk stig fyrir Íslendinga
Svíar spreða ekki stigunum þegar Íslendingar eru annars vegar í Eurovision. Þetta
árið gáfu þeir okkur bara engin stig! Í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir þá
komu sex stig frá Dönum, sjö frá Finnum og fimm frá Noregi. Í fyrra þegar vinir
Sjonna kepptu fyrir landann og urðu, eins og Greta og Jónsi, í 20. sæti gáfu Svíar
aðeins 1 stig á meðan Finnar og Norðmenn gáfu átta og Danir sex. Íslendingar eiga
þó hauk í horni, sem eru Ungverjar en þeir hafa ítrekað hrifist af íslensku lögunum.
Nú gáfu þeir Íslandi sex stig og tólf í fyrra.
68% þjóðarinnar horfði á Eurovision
á laugardagskvöld. Áttatíu prósent er
uppsafnað áhorf og samkvæmt þessum
bráðabirgðatölum frá RÚV voru 99 prósent
þeirra 12 til 80 ára sem horfðu á sjónvarpið
að horfa á Eurovision. Sigrún Stefánsdóttir,
dagskrárstjóri RÚV, segir álíka marga horfa á Eurovision og þeir sem
horfi á Áramótaskaupið. Þetta sé vinsælasta sjónvarpsefnið.
Seinni undanriðill: 52 prósent horfði. 73 prósent uppsafnað
áhorf. 96 prósent sem horfðu á sjónvarpið horfðu á þetta
efni.
Fyrri undanriðill: 67 prósent horfði á útsendinguna.
82,2 prósent uppsafnað áhorf. 96,2 prósent þeirra sem
horfðu á sjónvarpið horfðu á Jónsa og Gretu komast
áfram.
É g viðurkenni að sænska lagið var mitt uppáhalds ásamt breska laginu, sem varð næstneðst. Ég gat ekki gert upp á milli
hvort mér þótti betra. Ég trúði því hins vegar
ekki að teknó-lag myndi vinna Eurovision,“ segir
Reynir Þór Eggertsson, Eurovision-aðdáandi og
spekúlant um úrslit laugardagskvöldsins.
Reynir hafði spáð Rúmenum sigri, jafnvel Ís-
landi. Eins og allir vita lenti íslenska lagið í 20.
sæti en Rúmenar í því tólfta.
„Ég hef séð svo mörg teknó-lög koma fram
og fuðra upp; ná ekki til áhorfenda. Ég trúði því
ekki að þetta sænska lag gæti unnið og hafði
svo sannarlega rangt fyrir mér. Þetta sigurlag á
eftir að gjörbylta Eurovision. Það er þegar komið
á helstu vinsældarlista,“ segir Reynir Þór og
telur flutning laganna eiga eftir að snarbreytast,
minna verði um æfð, taktföst dansspor og meira
um dans sem virðist sjálfssprottinn eins og hjá
Loreen (þótt þaulæfður sé).
„Og ef þetta lag verður í efsta sæti breska iT-
unes listans í næstu viku er það í fyrsta sinn síð-
an sigurlag Johnny Logan í Eurovision, Hold Me
Now, náði toppsæti í Bretlandi árið 1987. Þetta
er sumarsmellurinn í ár. Maður er strax farinn
að sjá remix. Þetta lag verður á lífi eftir tíu ár,
svo gott er það,“ segir Reynir en hin marokkósk-
sænska Loreen er nú í öðru sæti iTunes listans í
Bretlandi með lag sitt.
„Það sem kom mér annars mest á óvart var
hversu neðarlega Bretland lenti.
Líka Írland – í rauninni hvað þessi
lög sem ég átti von á að yrðu að keppa á
toppnum; Rúmenía og Kýpur lentu neðarlega,
en einnig hvað Azerbaídjan varð ofarlega, eða í
fjórða sæti.“
Reynir sér nú að hann var heldur
bjartsýnn á gengi Íslands í keppn-
inni í ár. „En ég fer ekki ofan af
því að mér fannst þau standa sig
voðalega vel. Þau hefðu átt að
komast hærra,“ segir hann en
nefnir þó að þar sem Íslendingar
eigi ekki marga „náttúrulega“ vini séu það
örlög þeirra að lenda neðarlega með ágætislög.
Hins vegar hafi það sýnt sig að vinakosning komi
lögum ekki á toppinn. Hún fleyti þeim ekki ofar
en í fjórða sæti og Ísland eigi því jafna möguleika
á við aðra að vinna einn daginn í Eurovision.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ísland í tíunda sæti
hjá Áströlum
68%
ÁHORF
Áhorf á Eurovision
Ungverski söngvarinn í ár Csaba Walkó. Mynd/EBU
Söngvakeppnin Uppgjör reyniS ÞórS eggertSSonar
Trúði ekki á að teknó-lag
myndi vinna Eurovision
Eurovision-sérfræðingurinn Reynir Þór Eggertsson telur að sænska vinningslagið eigi eftir að
gjörbylta keppninni. Lagið er í efsta sæti vinsældarlista víða um Evrópu.
Reynir biður Gretu Salóme afsökunar!
Heimild: Bráðabirgðatölur RÚV.
Í hita leiksins falla oft stór orð og Reynir Þór Eggertsson biður Gretu Salóme Stefáns-
dóttur, höfund og flytjanda íslenska framlagsins í Eurovision, afsökunar á að hafa orðið
fúll yfir afstöðu, já eða afstöðuleysi hennar, til mannréttindamála í Aserbaídsjan, eins og
það birtist í fréttum Stöðvar 2. Þar var haft eftir henni að mannréttindabrot væri ekki
hluti af Eurovision og hún þangað komin til að keppa í henni.
„Nú veit ég að orð hennar voru tekin úr samhengi og bið hana því afsökunar á
mínum,“ segir hann þar sem hann gerir upp Eurovision á fyrsta sumarfrísdegi sínum.
„Það sem Greta Salóme sagði var óheppilegt en hún sagði setningu þarna á undan
sem skiptir miklu máli en hún var klippt út,“ segir Reynir sem ritað í kjölfar fréttar-
innar á laugardag þessa hvatningu á Facebook-síðu sína: „Skrifum öll undir netakall.
is og gefum mannréttindum 12 stig! Ég er persónulega drullufúll út í afstöðu Gretu
Salóme! Betra að tapa keppni með heiðri en vinna með lokuð augun!“
Reynir tekur þetta til baka. „Ég sá þessa frétt, fór framúr mér og sé eftir því.“ - gag
Hér má sjá íslensku kepp-
endurna með þeim norska,
Tooji; sem vermdi botnsætið
á laugardagskvöldið, en
var í fimmtánda sæti hjá
Áströlum. Mynd/RÚV
Staðgreiðum
allt gull,
silfur, demanta
og vönduð úr.
Græddu á gulli
á Grand Hótel
Í dag frá kl 11:00 til 19:00
Upplýsingar og tímapantanir,
Sverrir s. 661-7000 • sverrir@kaupumgull.is
24 fréttir Helgin 1.-3. júní 2012