Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 32
44
þúsund krónur var tíma-
kaupið sem lögreglumennirn-
ir tveir, sem hafa verið kærðir
af sérstökum saksóknara
vegna brots á þagnarskyldu,
rukkuðu þrotabú Milestone
um.
127
Vikan í tölum
eru þau mörkin sem Eyjamaðurinn
Tryggvi Guðmundsson hefur skorað í efstu
deild í fótboltanum. Enginn íslenskur leik-
maður hefur skorað fleiri mörk.
Endurnýjun hefur mistekist
Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðipró-
fessor við Háskóla Íslands, segir að tilraunir
til endurnýjunar innan stjórnmálaflokkanna
hafi mistekist þrátt fyrir háværar kröfur
um slíkt.
Þurfti 50 lítra af blóði
Maður sem réðist inn á lögmannsstofu í
mars og særði starfsmann lífshættulega
með hnífi er ákærður fyrir tilraun til mann-
dráps og sérstaklega hættulega líkamsárás.
Fórnarlambið þurfti 50 lítra af blóði.
Gamlir prestar
Tveir þriðju starfandi presta þjóðkirkjunnar
eru komnir yfir fimmtugt. Á næstu sjö árum
verður fjórðungur presta kominn á eftir-
launaaldur.
Íslensk verksmiðja sett upp í
Færeyjum
Hátt í eitt hundrað Íslendingar verða
við störf í Færeyjum næstu vikurnar
við að setja upp verksmiðju sem vinna
á uppsjávarfisk. Skaginn á Akranesi og
Kælismiðjan Frost á Akureyri vinna verkið.
Játa aðild að úraráninu
Pólverjarnir Grzegorz Nowak og Pawel
Podburaczynski hafa báðir játað aðild sína
að úraráninu svokallaða í verslun Michelsen
í október í fyrra.
Tíu innbrot upplýst í
Grafarvogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur
upplýst um tíu innbrot í heimahús í Grafar-
vogi. Þrír karlar hafa verið handteknir og
hafa þeir komið áður við sögu hjá lögreglu.
Evrópusambandið gefur lítið
fyrir röksemdir Íslands
Röksemdir íslenskra stjórnvalda í Icesave-
málinu fyrir EFTA-dómstólnum halda ekki,
að mati framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins.
Þessir
slökkviliðs-
menn kældu
sig með því
að fá sér ljúf-
fengan ís á
Hagamelnum
í Vesturbæ
Reykjavíkur
í veðurblíð-
unni á
þriðjudag.
Ljósmynd/
Hari
Jón Steinar stefnir Þorvaldi
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttar-
dómari ætlar að stefna Þorvaldi Gylfasyni
prófessor. Jón Steinar segir að Þorvaldur
hafi með aðdróttunum sagt hann hafa mis-
farið með vald sitt sem dómari.
LÍÚ enn ósátt við
kvótafrumvarp
Framkvæmdastjóri LÍÚ segir að nánast
sama eyðilegging á íslenskum sjávarútvegi
felist í nýjum tillögum meirihluta atvinnu-
veganefndar um veiðigjöld og upphaflegum
tillögum sjávarútvegsráðherra.
Íslenskur hagvöxtur einhver
sá mesti
Steingrímur J. Sigfússon benti á, við eldhús-
dagsumræður á þriðjudaginn, að hagvöxtur
á Íslandi væri nú, nokkrum árum eftir hrun,
einhver sá mesti sem finnst meðal þróaðra
hagkerfa.
Sautján sagt upp hjá Skiptum
Uppsagnir 17 starfsmanna hjá Skiptum
komu til framkvæmda um þessi mánaða-
mót, auk þess sem 15 starfsmenn flytjast
frá Mílu yfir til Símans. Markmiðið er 500
milljóna króna sparnaður á ári.
Dauðaslys á Ólafsfjarðarvegi
Karlmaður á þrítugsaldri lést á mið-
vikudagskvöld þegar fólksbifreið sem hann
ók á Ólafsfjarðarvegi lenti út af veginum og
fór nokkrar veltur. Maðurinn kastaðist út úr
bifreiðinni.
Bankaútibúum fækkar
Bankaútibúum og afgreiðslum hefur
fækkað úr 174 í 107 frá árinu 2005, eða um
39% og eru áhrifin einna mest í Reykjavík
eða 57%. Þegar mest var mátti finna 44
bankaafgreiðslur í borginni, en nú eru
þær 19.
alveg týpískt
Júróvisjón-la-
hahaha-g
Eurovision-
söngvakeppnin átti
hug og hjörtu þeirra sem lifa
og hrærast á Facebook. Hér er
vitnað í sérfræðinga sem ekki
lágu á skoðun sinni í kjölfar
keppninnar.
Hera Björk
Kona að minu skapi hun
Loreen!! Hún og engin önnur á
að sigra þessa keppni í þessu
“Kristalls-landi” þar sem fólk
má vart mæla...og þaðan af
siður vera stoltur og heilbrigður
kynhneigður einstaklingur!
Áfram Svíþjóð og Ísland með
okkar kraftmiklu og ástríðufullu
flytjendur:-)
Valdís Gunnarsdóttir
Ef við ætlum að taka þátt í
svona keppnum aftur í guðs
bænum viljiði kaupa Sigmar
Gudmundsson til að halda
manni þó ekki nema réttu
megin húmorslega og að
maður fái að brosa útí annað
rétt á meðan PLEASE ! Re-
speckt samt sko ....
Rósa Björgvinsdóttir
Ég er ekki mikið fyrir
persónlega feisbúkkstatusta
en í dag ætla ég að láta vaða.
Ég á nefnilega svo EINSTAKAN
mann. Frá áramótum hefur
hann ekki bara hann stútað
fullri önn í erfiðu háskólanámi
heldur tekið þátt í júróvisjón
með stæl, fjórar keppnir n.b.,
sem er svo mikið ævintýri og
svo miklu meiri vinna og meira
álag en fólk gerir sér grein fyrir.
Þar að auki rúllaði hann upp
öllum þeim verkefnum sem
hann var búinn að taka að sér í
áður en júróvisjónrússíbaninn
bauð honum far, Skólahreysti
þar á meðal. OG í gegnum
þetta allt hefur hann verið besti
pabbinn, einstakur vinur og
maki. Og það er svo gott að fá
hann heim :) Lovjú longtæm
Jón Jósep Snæbjörnsson
Hrafnhildur Halldórsdóttir
Frábær frábært Svíarnir með
þetta en flott hjá okkur á sama
stað og Írar í 19 sæti og þeir eru
sú þjóð sem hefur unnið oftast
í Eurovision!!!!! og svo þakka ég
gott hljóð og er farin heim til
Íslands ! Sjáumst þar
Forsetaframboð
Þóra Arnórsdóttir forsetafram-
bjóðandi opnaði kosningaskrif-
stofu sína í vikunni og var það
tilefni ótal statusa og vanga-
veltna um forsetaembættið. Þá
hélt Stjórnarskrárfélagið fund
með öllum frambjóðendum
og lágu Facebook-
verjar hvergi á
skoðunum sínum
um forsetaefnin.
Guðrún Ögmundsdóttir
Er að hlusta á fundinn.......
og maður getur algjörlega
orðið hálf tjúllaður að hlusta
þar á alla vitleysuna, og þegar
frambjóðendur eru líka farnir
að tala um að forsetinn “leggi
fram frumvörp” þá toppar það
bullið, og Ólafur bara enn í
Póllandi........vitið þetta er ekki
hægt.............
Þorvaldur Sverrisson
Nú keppast frambjóðendur
við að lofa þjóðaratkvæða-
greiðslum um allt milli
himins og jarðar. Eigum við
ekki bara að renna okkur í
flugvöllinn, Landspítalann,
Vaðlaheiðargöng, lögbundna
3.5% verðbólgu og veru Árna
Johnsen á Alþingi strax í haust?
Þetta verður eitthvað!
Hallgrímur Helgason
fór á fund í Iðnó. Ágætt alveg
en aðsókn hefði mátt vera
betri. Ástþór hamaðist á fjöl-
miðlum allan tímann, kvartaði
yfir því að fá ekki jafn mikla
athygli og sumir. Undarlegt þar
sem hann er langþekkktasti
forsetaframbjóðandinn.
Góð Vika
fyrir Alfreð Gíslason
handknattleiksþjálfara
Slæm Vika
Slæm vika fyrir Jens Kjartansson
lýtalækni
Enginn sjens fyrir Jens
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Söru
Ýrr Jónsdóttur, lögmanni kvenna sem fóru í brjóstaaðgerðir til Jens Kjart-
anssonar, sé skylt að afhenda skattrannsóknarstjóra nöfn og kennitölur
þeirra skjólstæðinga hennar sem sótt hafi þjónustu til læknisins á árunum
2006 til 2011.
Saga Ýrr neitaði að afhenda gögnin, á
grundvelli þagnarskyldu og áfrýjaði úrskurði
héraðsdóms frá því um miðjan mánuðinn.
Embætti skattrannsóknarstjóra rannsakar
meint skattsvik einkarekinna skurðstofa
og krafði Sögu Ýrr um upplýsingarnar í
tengslum við málið.
Jens notaði franska PIP-brjóstapúða við
brjóstastækkanir hér á landi um árabil.
Fjöldi þeirra reyndist lekur. Konum sem
fengu grædda í sig slíka púða var boðið
að koma sér að kostnaðarlausu í
ómskoðun. Ákveðið var að ríkið
tæki þátt í kostnaði við að fjar-
lægja leka púða.
HeituStu kolin á
Ósigrandi á vellinum
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska handbolta-
liðinu Kiel tryggðu sér um helgina sigur í meistaradeild
Evrópu. Árangur Alfreðs á þessu tímabili er óviðjafnan-
legur en Kiel hefur unnið alla 32 leiki
sína í þýsku deildinni, þeirri
erfiðustu heimi, og tryggði
sér reyndar titilinn fyrir
löngu. Auk þess vann
liðið þýska bikarinn og nú
meistaradeildina. Árangur
sem festir Alfreð í sessi
sem einn af bestu
þjálfurum í
heimi.
54
fyrirtæki voru úrskurðuð
gjaldþrota í aprílmánuði
samkvæmt tölum frá Hag-
stofunni.
68
þúsund atkvæði bárust
frá Íslandi í lokakeppni
Eurovision á laugardags-
kvöldið.
3600
milljarðar er kostnaður
Úkraínu og Póllands vegna
undirbúnings fyrir EM í
fótbolta þetta árið.
32 fréttir vikunnar Helgin 1.-3. júní 2012