Fréttatíminn - 01.06.2012, Qupperneq 37
5STYRKTARFÉLAG LAMAÐR A OG FATLAÐR A − AFMÆLISRIT60
ÁRA
SLF
1. júní 2012
Félagsfærni er færni í mannlegum samskiptum og hegðun
sem gerir okkur kleift að taka þátt í samfélaginu. Við byrjum
sem ungbörn að nema félagsfærni og erum að læra allt okkar
líf. Flest börn læra þessa færni eða hegðun, af fólki sem það
umgengst svo sem foreldrum, systkinum, kennurum, vinum
og ættingjum. Mörg börn læra sjálfkrafa þessa hegðun og
eru ekki að spá í þær óskrifuðu reglur sem fylgja því að verða
þátttakandi í samfélaginu. Önnur börn eiga erfiðara með að
læra þessa hegðun og þurfa því beina kennslu og þjálfun í
félagsfærni.
Það er ekki hægt að ætlast til að þau börn læri félagsfærni
af því einu að umgangast annað fólk, það væri eins og að
kenna barni að synda með því að kasta því í djúpu laugina.
Það er margt sem hefur áhrif á getu barna til að læra félags-
færni, svo sem menningarmunur, mismunandi fjölskylduhag-
ir, ólíkir persónueiginleikar, meðfæddar raskanir og fleira.
Á Æfingastöðinni við Háaleitisbraut er boðið upp á ýmis
námskeið þar sem áhersla er lögð á að efla félagsfærni.
Veitt er bæði einstaklings- og hópþjálfun af iðjuþjálfum og
sjúkraþjálfurum. Félagsfærninámskeiðin á Æfingastöðinni
eru fyrir börn og ungmenni á aldrinum 3-16 ára og fara þau
fram í hópum, þar sem yfirleitt eru 4-6 börn í hóp. Á sumum
námskeiðunum er að auki lögð áhersla á fínhreyfifærni, gróf-
hreyfifærni og útiveru.
Þau börn sem eru með slaka félagslega færni eru oft vinafá,
verða oft fyrir stríðni, hafa ekki getu til að vinna í hópi, eru
með lítið sjálfstraust og hafa litla leikgleði í sér. Þessir þættir
geta haft áhrif á svo margt í lífinu, svo sem líðan í skóla og
tómstundum og jafnvel á námslega færni. Það er jafn mikil-
vægt að læra félagsfærni eins og stærðfræði og sund. Það
er því mikilvægt að grípa inn í sem fyrst og veita þessum
börnum kennslu og þjálfun, því það má ná góðum árangri
með þjálfun í félagsfærni.
Reynslan hefur sýnt að góð leið til að kenna og þjálfa félags-
færni er í gegnum leik. Börn læra margt i gegnum leik og er
mikilvægi þess oft vanmetið. Þau þurfa aðstoð við að skilja
leik og leikreglur og til hvers er ætlast af þeim. Börn með
slaka félagsfærni verða að fá tækifæri sem og æfingu í að vera
þátttakendur í hóp. Þau þurfa meðal annars kennslu í: Að
skiptast á, fylgja fyrirmælum og reglum, tjá sig í hóp, hlusta
á aðra, taka tillit til annarra, einbeita sér, leysa verkefni, leysa
ágreining, eiga samskipti, sýna samvinnu, sýna samkennd og
tjá tilfinningar.
Meginmarkmið námskeiðanna á Æfingastöðinni er að
börnin fái tækifæri til að vera hluti af hóp og að virkja þátt-
tökugleði þeirra. Á námskeiðunum er meðal annars stuðst
við hugmyndafræði sem byggir á lausnamiðuðum aðferðum
sem snýr að hvernig barnið sér vandamál og fær aðstoð við að
leysa það og hugmyndafræði reynslunáms sem byggir á því
að barnið lærir það sem það upplifir.
Þegar börn koma á námskeiðin er mikilvægt að þau viti
hvað þau eru að gera þar og að allir sem koma á Æfingastöð-
ina eru að æfa sig í einhverju. Á hverju námskeiði eru settar
reglur með hópnum og þær eru æfðar og ræddar, en einnig
er farið í ýmsa leiki og samvinnuverkefni sem reyna á þær
reglur. Reglurnar eru meðal annars tengdar þáttum eins og
vináttu, samvinnu og jákvæðni. Sem dæmi um regluna vin-
átta, þá eru kennd ýmis ráð til að eignast vini, koma vel fram
við aðra, hvað hægt sé að gera ef upp kemur ágreiningur og
hvernig megi stjórna reiði og fleira.
Þá eiga sum börn auðvelt með að umgangast og tala
við fullorðna en eiga í erfiðleikum með að tengjast öðrum
börnum. Í þeim tilfellum þarf þjálfarinn að fara í hlutverka-
leiki og barnið þarf að fá að prófa að framkvæma hlutina og
fá stuðning frá þjálfara allan tímann. Í sumum tilfellum virkar
vel að nota félagsfærnisögur, litlar sögur í máli og myndum
þar sem skýrt er út skref fyrir skref hvað gera skal í vissum
aðstæðum.
Til að hægt sé að meta árangur setja börn frá um það bil
8 ára aldri sér markmið í samráði við þjálfara og foreldra.
Markmiðin hafa það að leiðarljósi að vekja áhuga barnsins á
þjálfuninni og auka skilning á því sem verið er að vinna með.
Börnin vinna að markmiðunum á námskeiðinu og eru þau
tengd þeim þáttum sem hindra barnið í félagsfærni. Mark-
miðin eru endurmetin í lok hvers námskeiðs. Dæmi um mark-
mið sem börn hafa sett sér eru: Ég ætla að æfa mig í að fara
eftir fyrirmælum, ég ætla að hafa betri stjórn á skapinu, ég
ætla að vera jákvæður og kynnast öðrum krökkum.
Rannsóknir sýna að hægt sé að tengja slaka félagsfærni við
neikvæða sjálfsmynd og líðan. Börn, og sérstaklega ung-
menni, eru uppteknari af því í hverju þau eru léleg en í hverju
þau eru dugleg. Mikilvægt er því að mæta þessum börnum
með hlýju og áhuga, efla styrkleika þeirra og byggja upp
sjálfsvitund og sjálfstraust.
Stór hluti þess að búa yfir góðri félagsfærni er að vera
ánægður og sáttur við sjálfan sig. Það er ekkert betra en að
sjá glöð og ánægð börn. Þar er hrósið stærsta vopnið enda
hefur það verið kallað vítamín sálarinnar.
Harpa María Örlygsdóttir
Iðjuþjálfi og íþróttakennari Æfingastöðinni
Félagsfærniþjálfun barna á Æfingastöðinni
Þjálfun færni í mannlegum samskiptum
Mörg börn eiga í erfiðleikum með félagsleg samskipti og getur það valdið mikilli vanlíðan og haft heil-
mikil áhrif á fjölskyldu barnsins og þeirra daglega líf. Þetta á bæði við um börn sem lenda í árekstrum
við aðra í leik og einnig þau sem draga sig í hlé og einangrast.
Við byrjum sem ungbörn að læra félagsfærni og erum að læra allt
okkar líf.