Fréttatíminn - 01.06.2012, Qupperneq 54
38 veiði Helgin 1.-3. júní 2012
Hver er eftirlætis
veiðistöngin?
Ég á nú nokkrar stangir
en oftast nota ég Sage
XP, níu feta stöng fyrir
línu 6.
Hver er uppáhalds
flugan?
Þær eru nú margar
góðar. Sjálfur er ég hálf-
blindur og hnýti ekki en
á góða vini sem hnýta
og gauka að mér. Pjetur
Maack er mikill snillingur
og Þór Nielsen. Vinur
minn Úlfar Antonsson er
líka drjúgur.
Uppáhalds lína?
Ég nota oftast
hægsökkvandi línu og
langan taum
Hversu oft skiptir þú um
línu?
Ég er stundum með
flotlínu á annarri stöng
og hef þá tauminn lengri.
Hversu stór er stærsti
fiskur sem þú hefur fengið
í vatninu? (Þá stærsti
urriðinn og stærsta
bleikjan?)
Ég hef fengið 7 punda
urriða (honum var sleppt
eins og öllum bræðrum
hans!) og fimm punda
bleikju.
Hefurðu veitt með Össuri
Skarphéðinssyni?
Nei.
Er þér illa við spúna-
og/eða makrílveiðar í
vatninu?
Makrílveiðimenn eru fífl
eða bófar, nema hvort
tveggja sé. Menn mega
svo sem veiða á spún ef
þeir vilja, þótt ég sjái ekki
skemmtunina í því.
Hver er uppáhalds veiði-
félaginn?
Ætli
það
sé
ekki
him-
briminn. Ef
hann er við
veit maður að það
er fiskur.
Uppáhalds veiðistaðurinn
við vatnið?
Það mótast nú kannski
mest af
vana en ég
veiði mesti
í Rauðu-
kusunesi,
fyrir neðan
Kárastaði.
Hvaða staður er
það sem í þínum huga
kemur næstur því að
veiða í Þingvallavatni?
Hlíðarvatn. Reyndar
bæði, í Selvogi og
Hnappadal.
Stundar þú laxveiði? (Ef
svo er, hvaða á þá helst?)
Ég hef ekki efni á laxveið-
um. Ég veiddi í allmörg
á í Laxá í Leirársveit og
stundum vel.
Spurt & Svarað
Makrílveiðimenn eru fífl og bófar
Hraðaspurningar fyrir Sigurð G. Tómasson, sérfræðing í Þingvallavatni.
veiði Paradís stangveiðimannsins
v atnið er algjörlega einstætt. Það er í raun eitt stórt lindasvæði, þar sem koma upp um 90 rúmmetrar á
sekúndu. Í ísaldarlokin fyrir, næstum 10000
árum stóð sjórinn hærra og fiskur gat gengið
hindrunarlaust upp í þetta jökullón sem
vatnið var þá,“ segir Sigurður G. Tómasson
fjölmiðlamaður. Það þarf ekki að dekstra
Sigurð til að tala um Þingvallavatn sem er
honum afar kært.
Sjö hundruð tonn af veiðanlegum fiski
Sigurður segir að margt hafi á daga vatns-
ins drifið frá ísaldarlokum: „Landið reis og
hraun stíflaði útfallið og gerði vatnið að þess-
ari risastóru lind sem það er núna. Lífríkið
hefur líka breyst, fjögur afbrigði hafa orðið
til af bleikjunni, sem öll gleðja veiðimenn
að ógleymdum kónginum í vatninu, urrið-
anum. Fyrir nokkrum árum var talið af líf-
fræðingum að í Þingvallavatni væru um 700
tonn af veiðanlegum fiski. Auk bleikjunnar
og urriðans eru tvær tegundir af hornsílum
fyrir utan önnur kvikindi, svo sem vatnamar-
fló sem þarna fannst í gjótu fyrir nokkrum
árum, óþekkt annars staðar og menn halda
að hafi lifað af ísöldina. En það má svo sem
aldrei gleyma því að þarna varð mesta um-
hverfisslys Íslands á síðustu öld, þegar
stærstu hrygningarstöðvar urriðans voru
eyðilagðar og mýklakið við útfallið, í Soginu
öllu og Úlfljótsvatni og Álftavatni drepið með
undraefninu DDT. Sogið hefur ekki borið sitt
barr síðan, þótt eitrið sé líklega alls staðar
sokkið í botnsetið. Urriðinn hefur náð sér
dálítið á strik, því klakið hefur heppnast vel
í Öxará en hann á langt í land að ná því sem
var: Stærsti og stórvaxnasti urriðastofn í
Evrópu.“
Sigurður hefur fylgst með Þingvallavatni
um áratugaskeið, og svo lengi hefur hann
veitt í vatninu að hann er ekki viss hvenær
hann byrjaði á því. „Við vorum þarna á hverju
ári frá því að ég fæddist. En fyrsta veiðiferðin
sem ég man eftir var með pabba, þegar ég
var fimm ára. Ég missti fyrstu bleikjuna sem
ég setti í og gamli maðurinn var fúll fyrir
bragðið. Þess vegna man ég þetta vel. Þetta
var líklega sumarið ‘56, niðri í Nesi, Rauðu-
kusunesi fyrir neðan Kárastaði.“
Ekkert annað en fluguveiði kemur til
greina
Sigurður hefur fengist við ýmis konar veiðar við
Þingvallavatn í áranna rás. Og á erfitt með að
meta hvers konar veiðiskapur stendur uppúr:
„Fyrstu árin veiddi maður á allt sem gaf.
Ég vitjaði líka stundum um og lagði net með
frændum mínum á Kárastöðum. Netaveiði
hefur alltaf verið stunduð af bæjunum og á
nítjándu öldinni bjargaði fiskurinn úr vatninu
fólkinu frá hungri. Amma mín mundi þegar
kallarnir úr Grímsnesinu komu og fengu
murtu á útmánuðum 1882. Þeir slógu sumir
botninn úr kvartélinu og átu murtuna heila
upp úr saltinu. Höfðu ekki smakkað mat svo
dögum skipti. Maður þarf náttúrlega ekki
lengur á matbjörginni að halda en veiðinátt-
úran hefur verið ræktuð í margar kynslóðir. Á
unglingsárum byrjaði ég að veiða á flugu, fyrst
með kaststöng og flotholti og síðustu áratugina
hefur ekkert annað agn komið til greina. Og þá
auðvitað bara flugustöngin!“
Ómissandi þáttur veiðimennskunnar eru
veiðisögur og ekki hægt annað en rukka
Sigurð um eina slíka. Hann náttúrlega veit
varla hvar á að byrja því af ýmsu er að taka með
hvaða saga verður fyrir valinu.
„Ég veit ekki. Stundum hefur maður verið í
svo óðum fiski að hann hefur tekið í bakkast-
inu. Stundum hef ég veitt af bakkanum, bara
á blankskónum. Einu sinni kom ég austur
og mætti kunningja mínum, sem á sumar-
bústað við Hálfdánarvík. Hann var að labba
frá bátnum og sagði mér í óspurðum tíðindum
að ófreskja hefði elt hjá sér spún alla leið inn
á víkina. Í einhverju bríaríi segi ég: „Á maður
ekki bara að taka hana?“ og labbaði út á klapp-
irnar þarna við víkina. Ég held hún hafi tekið í
þriðja eða fjórða kasti, 4-5 punda bleikja. Þetta
var ekki ónýtt.“
Afi með barnabarn á námskeiði
Að sögn Sigurðar þá lumar hann ekki á neinum
ásum í erminni varðandi fluguveiðimennsku
í Þingvallavatni. „Neinei, það eru engin leyni-
vopn. Ég nota alltaf „intermediate“, eða hæg-
sökkvandi línu og frekar langan taum. Og svo
er bara að draga hægt. Telja í og láta sökkva.
Og því hægar sem vatnið er kaldara. Maður
missir alltaf talsvert af flugum, því ég veiði
mest á hraunbotni.“
Að undanförnu hefur Sigurður staðið fyrir
sérstökum námskeiðum um veiðar í Þing-
vallavatni á vegum Tómstundaskóla Mosfells-
bæjar. „Þetta eru tveir laugardagar, sá fyrri er
í íþróttahúsi og þar segi ég frá vatninu og fer
yfir búnaðinn, vöðlur (ég nota alltaf neoprene-
vöðlur, því vatnið er svo kalt) stöng, hjól og
línu, taum og flugur. Ég vísa líka í grein sem
ég skrifaði á vef Árvíkur um vatnið. Svo eru
kastæfingar. Seinni laugardaginn er svo farið í
vatnið og æft á staðnum. Það komast ekki með
góðu móti nema svona 10-12 manns á nám-
skeiðin og þetta var bara eitt námskeið nú um
daginn. Það kemur alls konar fólk á þetta, kon-
ur og karlar, feðgar og í vor var einn afi með
barnabarn.“
Jakob Bjarnar Grétarson
ritstjorn@frettatiminn.is
Stundum
hefur
maður
verið
í svo
óðum
fiski að
hann
hefur
tekið í
bakkast-
inu.
Undur Þingvallavatns
Kannski ekki allir sem vita það en Þingvallavatn er paradís stangveiðimannsins. En vatnið þarf að
þekkja vel og sumir tala um að það taki alla ævina að læra inn á það. Fáir ef nokkrir þekkja Þingvalla-
vatn eins vel og fjölmiðlamaðurinn Sigurður G. Tómasson – þeir sem ætla að leggja leið sína þangað
með veiðistöngina ættu ekki að láta þetta viðtal fram hjá sér fara.
Sigurður G.
Tómasson.
Fyrstu árin
veiddi hann
á allt sem
gaf en nú
kemur aðeins
flugustöngin til
greina.
Veigamikill og ómiss-
andi þáttur veiði-
mennskunnar er
vitaskuld að matreiða
bráðina. Og ekki úr vegi
að spyrja Sigurð G. Tóm-
asson, sem veitt hefur
í áratugi við Þingvalla-
vatn, hvernig best sé að
matreiða silung. Upp-
skrift takk! En, það verð-
ur að segjast alveg eins
og er að ekki er pjattinu
fyrir að fara eða flóknum
uppskriftum þegar Sig-
urður er annars vegar; hér er ekki verið að tala um franska eldhúsið
eða Völla Snæ, svo mikið er víst. Þetta er á einföldum nótum:
„Silungur er bestur soðinn. Með nýjum kartöflum og smjöri. Mað-
ur setur fiskinn út í sjóðandi vatnið, slekkur á hellunni og lætur hann
standa í soðinu 6-7 mínútur.“
Og þar höfum við það.
uppSkrift silungur
Silungur bestur soðinn
Lj
ós
m
yn
d/
N
or
di
c
Ph
ot
os
/G
et
ty
Im
ag
es
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • AKUREYRI
ellingsen.is
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 121641
Stangveiðidagar
ellingsen