Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 56
40 veiði Helgin 1.-3. júní 2012
Fréttatíminn fékk hinn annálaða veiðimann stórlaxa, Hilmar Hansson, til að velja
fyrir sig flugu vikunnar. Ekki úr vegi því Hilmar er einmitt eigandi veiðibúðarinn-
ar Veiðiflugur við Langholtsveg 111. Enda vafðist þetta ekki fyrir okkar manni:
„Já, ég er að hugsa um að velja Black Ghost sunburst með svörtum strípum
í væng. Þessi fluga er ein allra besta sjóbirtings- og urriðafluga sem hönnuð
hefur verið. Hér er hún hnýtt með kanínu-
zonker, sem er þunn skinnpjatla, sem væng.
Þannig er hún mun meira lifandi í vatninu.
Ég mæli með því að hún sé í fluguboxinu
þegar farið er í Þingvallavatn, Veiðivötn
og sjóbirtingsveiði um allt land,“
segir Hilmar sem er fyrir lifandis
löngu byrjaður að bóna línur í
veiðibúð sinni.
Þ ó konur séu, enn sem komið er, í talsverðum minnihluta meðal stangveiðimanna er
Oddný Magnadóttir síður en svo
einhver nýgræðingur við að sveifla
flugustöng. Í sumar eru komin 24
ár síðan hún byrjaði að veiða. Og
þar nýtur hún þess að eiginmaður
hennar, Hilmar Hansson, er einn af
helstu fluguveiðigeggjurum lands-
ins.
„Fyrsta stefnumótið sem Hilli
bauð mér á var í Korpu (Úlfarsá).
Og þar sat ég klukkan sjö að morgni
með veiðistöng í annarri og þenn-
an mann sem ég þekkti ekki neitt í
hinni. Um hádegi fór ég síðan heim
með nýgenginn maríulax og annan
til og eftir það hef ég veitt með Hilla“
segir Oddný og kvartar ekki undan
því að hafa lengstum verið kona í
karlaheimi. „Ég á í einstöku sam-
bandi við karlana, sem sýna mér
endalausa virðingu og hrista ekk-
ert hausinn yfir mér þegar ég veit
ekki neitt. Ég hef eignast alveg frá-
bæra vini í gegnum veiðina og búð-
ina og tel ég mig afar lánsama að
eiga marga af þessum strákum að.“
Og Oddný segir að þátttaka kvenna
hafi aukist með árunum: „Konur eru
orðnar mjög virkar í veiði og við eig-
um margar alveg svakalega flottar
veiðikonur. Allskonar veiðifélög og
klúbbar eru í kringum konurnar og
það er frábært að fylgjast með þeim
þegar þær eru að græja sig upp fyrir
túrana. Allt útpælt og mikil þekking
í gangi.“
Ætluðu aldrei að stofna búð
Veiðidellan leiddi þau hjón út í að
stofna veiðibúð. Það stóð þó aldrei
til heldur höguðu aðstæður því svo
að þau neyddust nánast út í þá starf-
semi: „Við ætluðum aldrei að opna
búð. Þetta byrjaði sem lítil netversl-
un vorið 2009 með flugurnar hans
Jóns Inga Ágústssonar, en þegar
fólk var farið að mæta heim til okk-
ar á öllum tímum sólahrings til að
skoða og kaupa ákváðum við að taka
í gagnið bílskúrinn okkar og breytt-
um honum í litla verslun og bættum
við norska veiðivörumerkinu Guidel-
ine. Það tók ekki nema sumarið að
sprengja utan af okkur skúrinn og
þá var tímabært að stækka. Í janúar
2011 opnuðum við síðan Veiðiflugur
á Langholtsvegi 111.“
Oddný gerir ekki lítið úr því að
mikil samkeppni sé á sviði veiði-
verslunar, og hún er oft á tíðum
hörð. „Sérverslanir veiðimanna eru
margar, útivistarverslanir eru marg-
ar með stórar veiðideildir og jafnvel
heilt olíufélag er á þessum markaði.
Við tökum samt ekki þátt í því verð-
stríði sem geisar á markaðnum, en
leggjum þeim mun meiri áherslu á
gæðin og að bjóða þá bestu þjónustu
sem völ er á. Það hefur skilað okkur
lengst.“
Er allt í lagi með stangirnar,
Oddný?
En, það er um að gera að þýfga hina
reyndu veiðikonu um það sem snýr
að veiðinni sjálfri. Þá með hefð-
bundnum stangveiðispurningum.
„Stærsti fiskur sem ég hef veitt er
18 punda hængur sem ég tók í Stóru
Laxá við hinn margfræga Stapa á
Iðunni sem nú er horfinn. Þetta var
brjálæðislega skemmtileg viðureign
og nýgengin silfraður hængur sem
náði mér nánast í öxl. Ómetanlegt!“
Oddný segir að sér þyki Þverá
skemmtilegasta á sem hún veiðir.
„Og svo á Svartá í Húnavatnssýslu
stóran part í mér og þar hef ég tekið
marga fallega fiska. Hver er eftir-
lætis flugan? Stardust eftir Art Lee
og svo er Ossa líka í uppáhaldi enda
svolítið mín fluga, hnýtt af Hilla fyrir
18 árum síðan og orðin allfræg. Sú
veiðistöng sem er í mestu uppáhaldi
er perluhvíta LpXe RS stöngin sem
ég eignaðist í fyrra. Hún er draum-
ur.“
Sú spurning hver sé uppáhalds
veiðifélaginn telst fremur heimsku-
leg, það er að sjálfsögðu Hilli en þar
á milli ríkir endalaus þolinmæði á
báða bóga, að sögn Oddnýjar, sem
ekki kemst hjá því, fremur en aðrir
veiðimenn, að splæsa einni stuttri
veiðisögu á lesendur: „Já, það gæti
verið sagan af því þegar ég veiddi 18
pundarann í Stóru og því sem á eftir
kom. Þetta var á þeim árum að svona
fiskar voru bara teknir með heim og
við Hilli vorum á leiðinni yfir mikið
vað og í frekar ömurlegu veðri. Ég
var látin taka stangirnar og Hilli bar
fiskinn og þar sem við erum að feta
okkur upp úr ánni og í skriðum með-
fram ánni dett ég fram fyrir mig og
á andlitið. Hilmar snarstoppar, snýr
sér við og kallar: Er allt í lagi með
stangirnar Oddný? Ég hef ekki borið
margar stangir fyrir Hilla eftir það.“
Snillingar á Veiðimessu
Þau hjónin ætla að efna til mikillar
Veiðimessu 2012 sem stendur yfir
þessa helgi, hefst á laugardaginn
með því að sjálfur Klaus Frimor
kastsnillingur kynnir Exceed-stöng-
ina sem hann hannaði. Síðan rekur
hver atburðurinn annan, kynning
á Guideline-veiðivörum og Patag-
onia-veiðifötum, veiðileyfakynning
frá SVFR, Strengjum og Hregg-
nasa svo eitthvað sé nefnt. „Og svo
rekur hver atburðurinn annan. „Við
verðum með kynningu á reyktum og
gröfnum laxi frá Reykhúsinu Reyk-
hólum. Ási og Gunni Helgasynir
kynna og selja Leitina af stórlaxin-
um og veiðiklóin Bubbi Morthens
tekur nokkur lög fyrir gesti. Klaus
Frimor verður með kastsýningu á
túninu fyrir neðan Langholtsskóla
við Holtaveg. Þar sýnir hann allar
útfærslur af köstum og nokkur kast
trikk sem engin má missa af.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
ritstjorn@frettatiminn.is
FluGa Vikunnar
Black Ghost Sunburst
laxveiðitímabilið að hefjast
Opnað verður fyrir veiði í Norðurá í Borgarfirði næst-
komandi þriðjudag, 5. júní. Formaður Stangveiðifélags
Reykjavíkur mun taka fyrsta kastið, að því er fram kemur
í Skessuhorni. Þar segir enn fremur að menn hafi þegar
séð til laxa víða í ánum enda margir óþreyjufullir að hefja
veiðarnar. Frést hefur af löxum í Elliðaánum, í Laxá í
Kjós og um síðustu helgi sáu menn laxatorfu vaða inn
með Seleyri, gegnt Borgarnesi. „Þetta eru sennilega,“
segir í fréttinni, „laxar á leiðinni upp í Norðurá, Grímsá
eða Kjarrá. Þá er lax mættur í Flókadalsá í Borgarfirði
sem þykir frekar snemmt.“ - jh
StanGVEiði Hjónin saman í veiðinni í nær aldarfjórðung
Fyrsta stefnumótið
var í laxveiði
Oddný Magnadóttir kallar ekki allt ömmu sína. Hún rekur, ásamt eiginmanni sínum Hilmari Hanssyni,
veiðibúðina Veiðiflugur. Þó það hafi verið að breytast á undanförnum árum er veiðimennskan enn
óttalegur karlaheimur. Oddný lætur þá hins vegar ekki komast upp með neinn moðreyk. Um helgina
blæs hún, á vegum verslunarinnar, til heljarinnar veiðimessu þar sem fram koma stórstjörnurnar
Bubbi Morthens, tvíburarnir Gunni og Ási Helgasynir að ógleymdum kastsnillingnum Klaus Frimor.
Jakob Bjarnar
Grétarsson
ritstjorn@
frettatiminn.is
Laxveiðimenn er farið að klæja í puttana.
00000
Veiðikortið
37 vötn
Eitt kort
6.000 kr.
www.veidikortid.is
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
H E LGA R BL A Ð