Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 58
42 prjónað Helgin 1.-3. júní 2012
Handþvottur – ekkert að óttast
PrjónaPistill Hugsa þarf vel um það sem er viðkvæmt og vandað
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Prjónað
á krílin
Ómótstæðileg bók fyrir verðandi
mæður, ömmur, frænkur ...
• Fl íkur á nýbur a upp í ársgömul börn
• Tuskudýr og Teppi
• prjónak ennsl a og gó ð r áð
v ið sem prjónum komust ekki hjá því að þvo í hönd-um. Handþvottur er ekkert
mál – ef maður kann það. En hvers
vegna vex þetta svo mörgum í aug-
um? Handþvottur er hluti af því að
hugsa vel um það sem er viðkvæmt
og vandað, tala nú ekki um ef búið
er að leggja mikla vinnu í það með
handprjóni.
Ef málið snýst um að leiðast að
þvo í höndum þá þarf hugarfars-
breytingu. Þú sleppir að horfa á
eina sápuna í sjónvarpinu og skellir
þér í þvottahúsið eða baðherbergið
þar sem er góður vaskur og nýtur
þess að sápuþvo prjónuðu flíkurnar
í staðinn. Lítur á þetta sem slökun.
En hvernig á að þvo?
Hér eru almenn ráð fyrir þá sem
prjóna eða fá prjónaða flík að gjöf. Ég
hef ekki tölu á þeim sem hafa keypt
fallegt garn og lagt mikla vinnu í að
prjóna á barnabörnin og horfa svo
uppá flíkina eyðilagða í þvotti. Annað
hvort er flíkinni hent í vél með hand-
klæðunum á of háum hita og þæfð
eða sett í vél með gallabuxunum og
kemur lituð og snjáð út, að minnsta
kosti ekki meðhöndluð rétt.
Hér koma þvottaráð fyrir þá sem
finnst þetta eitthvað mál en vonandi
breytist það eftir þennan lestur.
Þessi þvottaráð eiga við um allt sem
er prjónað, hvort sem það er hand-
eða vélprjónað, heimagert eða keypt
úr búð. Hér mun ég tala út frá ull því
flestir á Íslandi prjóna úr ull, en ráð-
leggingarnar eiga eins við um silki
eða annað viðkvæmt efni.
Ef flíkin er keypt í búð þá ættu að
fylgja þvottaleiðbeiningar. Það má
búast við því að miðinn sýni bala
með hönd ofan í sem þýðir hand-
þvottur eingöngu eða bala með 30°C
eða 40°C undir sem þýðir að þvo má
í vél við þetta hitastig. En að auki eru
oft strik undir balanum sem þýðir að
setja eigi þvottinn á kerfi fyrir við-
kvæman þvott.
Vélþvottur
Ef þið eigið þvottavél með góðu ullar-
þvottakerfi þá er um að gera að nota
það fyrir allt sem má fara í vél. Þar
með taldar allar flíkur úr superwash-
ull. Ullarþvottakerfin (stundum köll-
uð ullarvagga) eru hönnuð þannig
vélin þvær mjög varlega og þvotta-
hreyfingarnar eru því vægar. Þá verð-
ur núningurinn í lágmarki, en hann
getur þæft, slitið eða myndað hnökur
á flíkum. Það má ekki setja neitt ann-
að með í vélina en ullarflíkina – eina
eða fleiri. Ef gallabuxur væru settar
með mynda þær núning sem getur
skemmt ullarflíkina fyrir utan hætt-
una á að þær geti látið lit. Sem sagt
bara ullarflíkur í líkum litum fara
saman í vélina.
Notið aðeins sérstaka ullarsápu.
Venjuleg þvottaefni eru ekki ætl-
uð fyrir ullar- og silkiþvott og geta
skemmt. Það er hægt að fá alls kyns
ullarþvottalög sem freyðir lítið og
hentar því í vélþvott.
Ullarþvottakerfið tekur ekki eins
langan tíma og önnur kerfi og vind-
uhraðinn er meiri til að ná sem mestu
vatni úr flíkunum. Ef peysurnar eru
úr silki eða fíngerðar og vélprjón-
aðar gæti verið betra að stilla vind-
uhraðann á færri snúninga svo peys-
an krumpist ekki eins mikið. Fyrir
grófari peysur skiptir þetta ekki eins
miklu máli. En hins vegar þarf að
taka flíkina sem fyrst úr vélinni og
leggja hana flata til þerris. Helst með
handklæði undir eða einhverju sem
drekkur í sig raka. Gott að halda
til haga stórum handklæðum, þótt
slitin séu, til þessara nota. Strjúka
svo með flötum lófa yfir flíkina til að
slétta hana og teygja í rétta stærð. Ef
flíkin hefur stækkað í þvotti (sumt
garn getur blásið út í þvotti) þá þarf
að þjappa henni saman þegar hún
er lögð til þerris. Mikilvægt að hafa
góða loftræstingu þar sem flíkin er
þurrkuð og snúa henni við af og til
þar til hún er þurr í gegn. Þeir sem
vilja vanda sig mæla þurra flík áður
en hún er þvegin og teygja hana svo
í rétta stærð aftur eftir þvottinn. Það
sama á líka við um handþvott.
Eitt mikilvægt atriði sem á bæði
við um vél- og handþvott. Þegar flík-
in er færð úr vélinni eða vaskinum
má alls ekki halda á henni þannig
að teygist á henni. Þá getur hún af-
lagast. Notið fat undir hana alla á
milli staða.
Handþvottur
Ef þvottabalinn með hönd ofan í er
á miðanum þarf að handþvo. Allan
lopa þarf að handþvo, alla alpakaull,
alla mohairull, flest silki og yfirleitt
alla venjulega ull sem er ekki super-
wash. Superwash-ullin hefur verið
meðhöndluð þannig að hún á ekki að
þófna við vélþvott. Margir kjósa að
handþvo vélþvæga ull því það tekur
því ekki að setja vélina í gang fyrir
eina litla barnapeysu svo dæmi sé
tekið. Handþvotturinn sparar stund-
um orku og tíma. Svo eru aðrir sem
hafa komist upp á lag með að vélþvo
lopapeysur en það á við um þá sem
eiga vélar með mjög góðu ullarþvotta-
kerfi. Fleiri þvo lopapeysur í höndum
og láta vélina um að vinda. Þá er
nauðsynlegt að hafa fatið undir þegar
rennblaut flíkin er borin á milli vasks
og vélar svo hún togni ekki.
Eftir prjón borgar sig að þvo til að
jafna lykkjurnar. Handprjónuð peysa
verður oft mun fallegri eftir fyrsta
þvott. Hægt er að fá þvottalög sem
jafnar ph-gildið í garninu og ekki
þarf að skola úr sem gerið verkið enn
þægilegra og fljótlegra.
En hvernig veit maður hvað má
vélþvo og hvað ekki? Þeir sem prjóna
sjálfir eiga miðann af garninu og sjá
þar hvernig má þvo. Ef flíkin er gjöf
og ekki fylgja með þvottaupplýsing-
ar, skaltu spyrja gefandann. Ef í vafa
skaltu handþvo.
Það tekur 10 mínútur að handþvo
litla barnapeysu og hún þarf ekki
mikið pláss til að þorna, getur verið
á eldhúsborðinu yfir nótt ef því er
að skipta. En ef margar flíkur safn-
ast saman tekur það auðvitað lengri
tíma, en aðallega þarf meira pláss
til að leggja til þerris. Það má aldrei
hengja upp prjónaða flík. Þá getur
hún tognað og aflagast.
Ef handlaugin á baðherberginu
er lítil getur verið betra að nota eld-
húsvaskinn eða vask í þvottahúsi ef
hann er til staðar. Notið ylvolgt vatn
eða kaldara en þið mynduð nota í bað-
vatn eða um 30°C. Það er mikilvægt
að hitastigið á vatninu sé jafnt og því
borgar sig að láta renna í vaskinn að
fullu og setja þvottalöginn í áður en
flíkin er sett ofan í. Það eru til margar
tegundir af mildum ullarþvottalegi á
markaðnum, meðal annars sérstök-
um fyrir lopann því það er meiri fita
í honum en öðru bandi. Ef allt þrýtur
má alltaf nota hárþvottalög.
Hreyfið flíkina varlega í vatninu.
Ef verið er að þvo flík eftir prjón þarf
bara rétt aðeins að láta hana liggja
stutta stund og setja í eitt eða fleiri
skolvötn ef notaður er hefðbundinn
ullarþvottalögur sem freyðir. Ef flíkin
er óhrein þarf að hreyfa aðeins lengur
í vatninu og gæta þess að nudda ekki.
Lyftið flíkinni upp úr vaskinum á fat
á meðan að skipt er um skolvatn og
gætið þess að ekki teygist á neinu.
Mistök sem margir gera er að grípa
um annan enda peysunnar og toga
hana upp úr vatninu og dýfa henni
niður aftur til að skola og endurtaka
þetta. En forðist þetta því þá teygist á
peysunni. Eftir því sem flík er lausar
prjónuð þeim mun meiri hætta er á að
hún teygist þá þarf að fara gætilega.
Nýþvegin flíkin er tekin varlega
upp úr síðasta skolvatninu og sett á
fat. Mesta vatnið er kreist (ekki und-
ið) úr. Setjið stórt handklæði á gólfið,
leggið blauta flíkina á handklæðið,
rúllið því upp og ef þetta er stór flík er
gott að ganga berfætt á handklæðinu
þar til það er orðið blautt í geng. E.t.v
þarf að endurtaka þetta með þurru
handklæði, fer eftir stærð peysunnar
og þykkt handklæðisins.
Þið sjáið á vatninu ef flíkin lætur lit.
Ef flíkin er einlit skolar maður þar til
vatnið verður tært. Ef flíkin er marg-
lit og hætta er á að liturinn renni á
milli þarf að hafa mikið vatn, hraðar
hendur og skola oft og hreyfa vatn-
ið stöðugt. Að síðustu skiptir miklu
máli að ná sem mestu vatni úr flík-
inni áður en hún er lögð til þerris því
oftast rennur liturinn til eftir þvottinn
þegar hún liggur flöt. Skynsamlegt
væri að setja þannig flíkur í vinduna í
vélinni til að minnka áhættuna á því.
Og hafa örugglega eitthvað undir sem
drekkur í sig rakann. Gamalt húsráð
sem er enn í fullu gildi er að setja ör-
lítið borðedik í síðasta skolvatnið til
að skerpa á litunum.
Eftir þetta er flíkin lögð til þerris á
þurran stað á þurrt handklæði sam-
anber leiðbeiningar hér að ofan um
vélþvottinn.
Í þessu er reynslan besti skólinn
og vonandi verður þetta til að hvetja
ykkur til að þvo í höndum þegar þess
þarf. Ef einhver hefur gefið ykkur
eða barninu ykkar handprjónaða
peysu sem búið er að leggja mikla
umhyggju og vinnu í þá á hún skilið
að fá góða umhirðu. Gangi ykkur vel!
Handþvottur er hluti af því að hugsa
vel um það sem er viðkvæmt og vandað
og búið er að leggja mikla vinnu í með
handprjóni.
Ef málið snýst um að leiðast að þvo í höndum þá þarf hugarfarsbreytingu.
Allan lopa þarf að handþvo, alla
alpakaull, alla mohairull, flest silki og
yfirleitt alla venjulega ull sem er ekki
superwash.
Guðrún Hannele
Henttinen
hannele@ storkurinn.is