Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 62
46 bækur Helgin 1.-3. júní 2012
RitdómuR EldaR kvikna
Glæpasagan Leikarinn
eftir Sólveigu Pálsdóttur
situr á toppi kiljulista
Eymundsson fyrir síðustu
viku. Þetta er fyrsta bók
Sólveigar.
lEikaRinn á toppnum
RitdómuR Það kEmuR alltaf nýR daguR
B irtingarmynd sveitanna í skáldsögum síðari tíma er býsna þversagnakennd. Í
nýrri skáldsögu, frumraun Unnar
Birnu Karlsdóttur sagnfræðings,
Það kemur alltaf nýr dagur, blasir
þversögnin við: Kona á miðjum aldri
hefur dvalið í Bandaríkjunum frá því
innan við tvítugt, eignast þar bónda
og börn, auð og starf, en óvænt upp-
brot verður á lífi hennar þar vestra og
hún flýr heim í heiðardalinn, kölluð
þangað til að fylgja föður sínum til
grafar, manninum sem var orsök þess
að hún fór af landi brott áratugum
fyrr. Og á gamla bernsku heimili sínu
tekst hún á við sjálfa sig, lífshlaupið,
allt sem hún hefur misst og átt, gefið
frá sér og glatað. Hún snýr aftur til
umhverfis sem hún hatar, flúði frá
og finnur því lengi allt til foráttu en á
þar samt heima, þar finnur hún ró um
síðir. Kynslóðir okkar tíma upplifðu
allar sveitirnar eftir að vélvæðingin
hófst uppúr stríði, það eru aðeins þeir
allra elstu sem muna olíufýringuna,
kolavélarnar, vatnsburð, lélega salern-
isaðstöðu og einangrun vegleysunnar.
Frumraun Unnar er ekki löng, ríf-
lega tvöhundruð síður, fyrstu persónu
frásögn, fleyguð skáletruðum minn-
ingarleiftrum, glampandi og skerandi
flest hver. Útgefandinn hefur afráðið
að skella bókinni á markað núna og í
kilju, vafalaust í þeirri von að sumar-
sult lesenda megi metta með nýrri ís-
lenskri skáldsögu eftir konu um konu
— forframaða en komna hingað heim,
rétt af miðjum aldri — er það ekki
kjörfæða fyrir þá sem ráða öllu á ís-
lenskum bókamarkaði: Læsar konur?
Unnur er líka prýðilega ritfær, hún
vindur fléttuna áfram af fyrirhyggju,
lætur ekki of mikið uppi en bitar
í lesandann upplýsingum um ævi
konunnar, magnar persónu hennar
áfram þótt dalirnir í geðlægð hennar
og sorg hafi mátt vera dýpri, sam-
bandsleysið við móðurina sé nokkuð
óljóst, raunar ótrúverðugt. En í heild
er þetta ágætlega heppnað, ekki stór-
brotið en áhugavert og lesandinn vill
vita örlög söguhetjunnar, fylgir henni
af spekt.
Allar aukapersónur eru fjarlægar,
meira að segja faðirinn sem trónir
yfir öllu, ljósasta persónan utan sögu-
mannsins er systirin elsta sem var
heima, fjær eru bandarískur eigin-
maður, gamall kærasti, tvö börn eru
langt langt í burtu, eiginlega bara
útlínur og miðað við boðskiptatilveru
verðbréfasala, en það starfaði konan
við áður en hún flúði, er ótrúverðugt
hversu sambandslaus hún er við börn
sín. Þessi kona er kalin á hjarta og
þíðir seint í hennar sálartötri. Hér er
framvinda persónunnar keyrð áfram
í atburðum, öllum hversdagslegum
en um síðir raðast þeir í langa slóða
og skilur höfundurinn lesandann eftir
sáttan í sögulok.
Hvers vegna er mikilvægt að nýir
höfundar fái gott brautargengi,
einkum konur? Jú okkur veitir ekki af
víðari sýn gegnum skáldskap, einkum
frá hendi þeirra sem eru óskrifað blað
og eru lausir við þá fordómamúra
sem skikkan bókmenntastofnunar
reisir umhverfis nöfnin. Því er það
gleðilegt að Gerður Kristný skuli vera
með í kjaftaþætti á Rás 2 með Andra
flandrara, og eins er gleðilegt að úr
akademíunni stígi kona og skrifi vel
læsilega bók um tveggja heima sýn
kvenna í mörgum skilningi. Heiti
bókarinnar er sótt í lyktir sögunnar
og stendur vel fyrir sínu þar, en sem
heiti á skáldsögu sem er jafn athyglis-
verð er það máttlaust og kápan er
sömuleiðis ekki aðlaðandi.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Komin heim með slitna skó
Mishermt var hér á síðunni í síðustu viku
að útgáfum Skírnis, tímarits Hins ís-
lenska bókmenntafélags, hafi verið fjölg-
að ár hvert úr einni í tvær í ritstjórnartíð
Halldórs Guðmundssonar sem nú er
lokið. Hið rétta er að það var Vilhjálmur
Árnason, prófessor og heimspekingur,
sem var ritstjóri Skírnis 1987-1994, sem
tók upp á þessari nýbreytni.
Biðja verður þá Vilhjálm og Halldór
afsökunar á þessari flausturslegu mis-
sögn. Heiður þeim sem heiður ber og í
þessu tilviki á Vilhjálmur hann. Er leið-
réttingu hér með komið á framfæri með
tilhlýðilegri afsökunarbeiðni þess sem
lyklana slær. -pbb
Leiðrétting
Í tengslum við sýningu í Hafnarborg hefur Crymogea
sent frá sér bók um húsasmíði Hreins Friðfinnssonar
myndlistarmanns. Bókin er harðspjalda, fallega frágengin
og prentuð og lýtur ritstjórn Ólafar K. Sigurðardóttur,
forstöðukonu Hafnarborgar. Í bókinni er húsasaga
Hreins rakin frá upphaflega verkinu sem byggði á lýsingu
Þórbergs Þórðarsonar í Íslenskum aðli á húsi Sólons
Guðmundssonar á Ísafirði, þar sem innvols húss sneri út.
Eftir því reisti Hreinn hús í Hafnarfjarðarhrauni. Næstu
útgáfu verksins vann Hreinn í Frakklandi og þá var ytra byrðið komið útvortis.
Er raunar synd að það snotra smáhýsi skyldi ekki framleitt í fullri stærð sem
„multiple“. Þriðja gerð verksins var svo aftur reist í Hafnarfjarðarhrauni og var þá
einungis boðið upp á útlínur hússins. Af þessari húsaþyrpingu á verkaskrá Hreins
eru færðar til í bókinni ljósmyndir, greinargerð um tilurð verksins á íslensku og á
ensku og loks ritgerð eftir Frederic Paul um þetta þríeina verk. -pbb
Þrjú hús í röð
Þegar litið er aftur má sjá að Eldar kvikna, önnur bókin í þrí-
leik Suzanne Collins um Hungurleikana, hefur verið hlaðin
meira lofi og notið snarpari vinsælda en fyrsta kafli þessa
bálks. Ef leitað er á Google kemur í ljós að eftirvænting vegna
kvikmyndarinnar sem er í burðarliðnum, og verður samkvæmt
plani frumsýnd 22. nóvember 2013, er þegar orðin mikil. Ís-
lenski útgefandinn hefur enda í snarhasti látið þýða annan hlut-
ann og hefur Guðni Kolbeinsson leyst það verk snöfurlega af
hendi. Þýðingin er komin út, bæði í kilju og hörðu bandi og er
það til marks um að stefnt er á góða sölu þegar í vor, frameftir
sumri og komandi jólatíð. Sagan öll er reyndar fyrirferðarmikl
í bókaverslunum á frummálinu og íslenska þýðingin gengur vel
í sölu.
Afkomutölur eru eitt, gæði sögunnar annað. Collins er
snjall og hugkvæmur höfundur og mörg merki sjást í þessum
öðrum hluta verksins að hún hefur lagt í þessa vegferð með
njörvaðar áætlanir, hér rekur ekkert á reiðanum. Sagan er öllu
flóknari þótt hún skiptist í þrjá hluta: Sigurför Peet
og Katniss um umdæmi harðstjórnar- og þræla-
ríkisins sem þau búa í þar sem þau sjá með eigin
augum hvaða kjör íbúum umdæmanna tólf eru
búin, óvæntur snúningur þar sem þau eru kölluð
til undirbúnings nýrra leika þar sem þau verða enn
að keppa við erfiðari aðstæður í hvelfingu leik-
anna og loks barátta þeirra með ófyrirsjáanlegum
kaflalokum þar sem lesendum er enn ýtt á fremstu
brún. Persónugalleríið er hér ívið stærra en áður
og útheimtir af lesanda góða eftirtekt, sagan er
smátt og smátt að dýpka í persónusköpun, flóknari
atburðarás og síðast en ekki síst að lesenda verður
ljóst að hann getur ekki treyst á að höfundurinn
hylmi ekki yfir umbreytingum í þræðinum. Þetta
er dúndur stöff, vísar í fantasíuheima sem ungir
lesendur, tíu ára og uppúr, verða að hafa ríka skynj-
un fyrir – kvikmyndir, myndasögur, tölvuleikir og
fantasíur hafa séð fyrir því. Í keyrslu sinni á les-
andanum hefur Collins séð vel fyrir hinu stóra og
smáa, smáum tækjum, smáatriðum í klæðnaði, allri stemningu.
Þetta eru ekki flóknar bókmenntir, en ræða af hreinskilni um
boðanir: Vernd lífs, skilning og umburðarlyndi, þolgæði og val;
hvenær lendir þú í þeirri stöðu að verða að velja. Kjósi forráða-
menn að halda bókum að ungum lesendum er tækifærið núna.
Fárið er rétt að komast á skrið hér og því ekki að nýta sér það?
Og það sem betra er; þessi sögubálkur hentar vel til upplestrar
og samveru ungra og eldri lesenda því fátt er betra en að lesa
saman upphátt og njóta samverunnar þannig. Alla vega ætla
ég að gera þá tilraun, óttast bara að bókin verði rifin af mér
og skeiðað framúr af þeim huganum sem er bráðastur að vita
hverju framvindur í þessari frábæru afþreyingu. -pbb
Bráður bani
Það kemur alltaf
nýr dagur
Unnur Birna Karlsdóttir
Bjartur, 209 síður, 2012.
Eldar kvikna
Suzanne Collins:
Guðni Kolbeinsson þýddi
JPV, 395 síður, 2012.
Unnur Birna Karls-
dóttir.
Frumraun Unnar er ... fyrstu
persónu frásögn, fleyguð skáletr-
uðum minningarleiftrum, glamp-
andi og skerandi flest hver.
Vilhjálmur Árnason, prófessor og heimspekingur.
Skráning hafin á skrifstofu
Jónsmessuhátíð Útivistar 22.-24. júní
Bókun á skrifstofu í síma
562 1000 eða á www.utivist.is
Upplifðu Útivistargleði