Fréttatíminn - 01.06.2012, Page 68
LOL
Miley Cyrus
og Demi
Moore fara
með aðal-
hlutverkið
í unglinga-
grínmyndinni LOL sem
fjallar um Lolu (Miley Cyrus)
og vini hennar sem lifa í
unglingaheimi hver hverfist
um Facebook, YouTube og
Itunes. Unglingarómantíkin
er allsráðandi, sambönd byrja
og enda á Facebokk eða í sms-
skilaboðum og svo má ekki
gleyma foreldrunum sem eru
ekki bara skrítnir heldur líka
óþolandi afskiptasamir. Móðir
Lolu, sem leikin er af Demi
Moore, les dagbókina hennar
og kemst að því að gjáin á
milli samskiptamáta þeirra
hefur breikkað meira en hana
grunar.
Aðrir miðlar: Imdb 1,7,
Rotten Tomatoes 50%
52 bíó Helgin 1.-3. júní 2012
FrumsýndAr
Oren Peli skellti sér á jólakorta-
lista hryllingsmyndaunnenda
með Paranormal Activity fyrir
tveimur árum. Sú mynd náð mikl-
um vinsældum í hryllingi sínum
en ólíkt henni hefur nýjasta mynd
Peli, Tsjernóbýl-dagbækurnar,
ekki náð sama flugi. Peli skrifar
handritið og framleiðir myndina
sem fjallar um sex ungmenni á
bakpokaferðalagi í Evrópu. Þau
ákveða að taka örlítinn krók á
ferðalag sitt og skoða sig um í
yfirgefnum bæ nálægt kjarnorkuverinu í Tsjernóbýl þar sem kjarnorkuslysið fræga varð
árið 1986. Þegar bíll leiðsögumannsins deyr drottni sínum komast þau að því að þau
eru ekki ein í þessum yfirgefna bæ og ballið byrjar með tilheyrandi hryllingi og tryllingi.
Myndin hefur ekki fengið góða dóma og þykir sem kusk hafi komið á hryllingshvítflibba
Peli með myndinni. Hinir innvígðu eiga þó samt örugglega notalega kvöldstund með Peli
og félögum hans.
Aðrir miðlar: Imdb 5,9, Rotten tomatoes 25%, Metacritic 31%
Kjarnorkuhrollur í Tsjernóbýl
Maður áttar sig ekki almennilega
á hvað þeim Will Smith, Tommy
Lee Jones og leikstjóranum Barry
Sonnenfeld gengur til með að ryðj-
ast fram með þriðju Men in Black-
myndina núna, fimmtán árum eftir
að þeir Smith og Jones stigu fyrst
fram í svörtum fötum og komu
böndum á bandbrjálaðar geim-
verur sem ganga lausar á jörðinni.
Sérstaklega sætir þetta furðu þar
sem önnur myndin um þá félaga
var beinlínis léleg og því vandséð
tilefnið til þess að sleppa þeim laus-
um á ný.
Men in Black III er óttaleg bragð-
dauf samsuða en virkar þó þolan-
lega sem sumarfroða fyrir þá sem
eru með nettan sólsting og vilja
tylla sér í myrkan sal í tvær klukku-
stundir eða svo. Þeir J (Smith) og K
(Tommy Lee Jones) skemmta sér
enn við að eltast við geimverur í
nafni hins opinbera. Heldur syrtir
þó í álinn þegar ófétið Boris, forn
fjandi K, sleppur úr rammgerðu
fangelsi á Tunglinu og snýr sér
strax að eyðingu jarðar, en K trufl-
aði einmitt þau áform hans þegar
hann skaut af honum handlegg og
handsamaði 40 árum áður.
Boris þessi hefur aðgang að
tímavél og skellir sér aftur til árs-
ins 1969 og kálar K sem gufar þá
vitaskuld upp í samtímanum og eng-
inn kannast við hann nema J sem
saknar félaga síns sárlega. Þegar
geimverupakk Borisar herjar á jörð-
ina leggur J saman tvo og tvo og fær
út að hann þurfi að elta Boris aftur
til 1969, bjarga K og þar með heim-
inum. Létt dagsverk fyrir mann í
svörtum jakkafötum og Smith er
sjálfum sér líkur og ekkert sérstak-
lega ánægjulegur félagsskapur eins
og K hefur svo-
sem reynt að
benda honum á
frá 1987.
Tímaflakks-
vinkill inn er
ágætlega út-
færður og þeir
Tommy Lee Jones og Josh Brolin
fleyta Smith í gegnum myndina
þannig að nokkuð vel má við una.
Brolin leikur K á yngri árum í fortíð-
inni og fer alveg á kostum þar sem
hann leikur beinlínis Tommy Lee
Jones með dásamlegum tilþrifum
í látbragði og raddbeitingu. Jones
sjálfur er svo að sjálfsögðu traustur
að vanda og þessir tveir og tvöfaldur
K bjarga því sem bjargað verður. Og
heiminum með.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíódómur men in BlAck iii
Tvöfaldur K reddar málunum
Frumsýning Prómetheus
Uppruni mannsins
með geimveruívafi
s tórmyndin Prómetheus í leikstjórn Ridley Scott er fyrsta stórmynd sumarsins. Scott sest ekki í leikstjórastólinn fyrir neitt
minna en stórmyndir – ferill hans er markaður
slíkum. Þessi 74 ára gamli jálkur á að baki Alien-
bálkinn, Blade Runner og Gladitor meðal ann-
arra og sprettur hér fram á sjónarsviðið með vís-
indatrylli af dýrari gerðinni. Geimverur, vondar
að sjálfsögðu, geimskip og uppruni mannsins er
viðfangsefni Scotts að þessu sinni. Sagan hverf-
ist um geimskipið Prómetheus sem skottast til
fjarlægs heims eftir að hafa fundið stjörnukort
við fornleifauppgröft. Tilgangur ferðarinnar
er hvorki meira né minna en að finna uppruna
mannkynsins en í staðinn fyrir þá vitneskju
finna ferðlangarnir vísi af hættu sem getur eytt
mannkyninu. Upphaflega átti myndin að vera
framhald af Alien-myndaröðinni en eftir að skipt
hafði verið um handritshöfunda var ákveðið að
skapa sjálfstæða mynd.
Leikhópurinn er stjörnum prýddur. Óskarsverð-
launaleikkonan Charlize
Theron er í stóru hlut-
verki en aðalhlutverkin
eru í höndum Michaels
Fassbender og Noomi
Rapace sem Íslendingar
þekkja úr mynd Hrafns
Gunnlaugssona r Úr
skugga hrafnsins og síðar
Millenium-þríleiknum þar
sem hún lék Lizbeth Sa-
lander á eftirminnilegan
hátt. Á ýmsu gekk með-
an á tökum stóð en eins
og frægt er orðið var Ís-
land einn af tökustöðum
myndarinnar. Myndað var
við rætur Heklu og Detti-
foss var til dæmis lokaður
í nokkra daga meðan á
tökum stóð. Fréttatíminn
greindi frá því að Scott
var á tímabili kominn með
upp í kok af stjörnustælum Charlize Theron og
vildi helst skjóta hana. „Færið mér langdrægan
riffil með sjónauka svo ég geti skotið þessa t#$u
sjálfur,“ sagði Scott í hljóðnemann svo allir starfs-
menn við myndina heyrðu. Leikararnir heyrðu
þó ekki neitt, Scott stóðst freistinguna og lét ekki
verða af því að skjóta hina suður-afrísku þokkadís.
Eins og flestir vita leikur Ísland stórt hlutverk í
myndinni. Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst
eru myndskeiðin frá Íslandi alls um fimmtán mín-
útna löng og mun Ísland tákna upphaf alheims-
ins sem og veröld geimveranna. Upphaflega átti
að mynda þessi atriði í Marokkó en vegna ólgu í
heimi Araba var ákveðið að mynda á Íslandi. „Hér
er allt svo stórskorið og líkt því sem var á Júra-
tímabilinu [fyrir 200 milljónum ára til 145,5 millj-
ónum ára] og það hafði úrslitaáhrif,“ sagði Scott
um þá ákvörðun að velja Ísland.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Noomo Rapace við tökur á myndinni.
Stjörnur myndarinnar Charlize Theron, Noomi Rapace og Michael Fassbender
ásamt Ridley Scott við kynningu myndarinnar í París.
Piranha 3DD
Aðdáendur hryllingsgaman-
myndarinnar Piranha 3D geta
farið að láta sig hlakka til því
sjálfstætt framhald myndarinnar
Piranha 3DD kemur í kvikmynda-
hús á næstu vikum. Eins og þeir
muna sem sáu fyrri myndina þá
olli jarðskjálfti því að stórar glufur
mynduðust í botni Viktoríuvatns
með þeim afleiðingum að hinir forsögulegu piranha-
fiskar tóku að streyma upp í vatnið. Þeir átu allt sem
hreyfðist og því miður fyrir suma strandgestina þá lentu
þeir á matseðlinum. En ef einhver hélt að vandinn hefði
verið leystur þá kemur annað í ljós þegar fiskakvikind-
unum tekst einhvern veginn að komast inn í vinsælan
vatnsskemmtigarð þar sem hundruð manns eru saman
komin til að gera sér glaðan dag. Enn á ný kemur til kasta
lögreglustjórans Fallons að finna leið til að hemja þennan
ófögnuð áður en hann étur alla gestina og skemmir ekki
bara fjölskyldustemninguna heldur setur allt efnahagslíf
strandbæjarins á hliðina. Þeir Ving Rhames og Christopher
Lloyd eru þeir einu af aðalleikurum fyrri myndarinnar sem
snúa aftur í framhaldinu en auk þeirra leikur til dæmis
David Hasselhoff sjálfan sig.
Aðrir miðlar: Imdb 4,9, Rotten Tomatoes 8%,
Metacritic 41%