Fréttatíminn - 01.06.2012, Page 73
Helgin 1.-3. júní 2012
Sextándi ilmurinn
væntanlegur
Fyrrum raunveruleikastjarnan Paris
Hilton hefur verið lítið í sviðsljósinu
undanfarna mánuði en ástæðu þess
rekja menn helst til þess hversu vel
hún sinnir vinnunni og sínu helsta
áhugamáli; hún hefur sökkt sér niður
í viðfangsefnið.
Seinna á þessu
ári mun stjarnan
hefja sölu á nýjasta
ilmi sínum, sem að
sögn er krafmikill
og frískandi, en
hann er sá sext-
ándi í röðinni sem
frá henni kemur.
Paris framleiddi
sinn fyrsta ilm árið
2004, sem hefur
selst von úr viti um
heim allan, og safnað 195 milljörðum
króna með ilmvatnssölunni einni. Ár
hvert koma einn til tveir skemmtilegir
og ólíkir ilmir frá henni sem alltaf
njóta mikilla vinsælda; bæði meðal
kvenna, karla og jafnvel barna. Er ekki
nema von að hún haldi þessum við-
skiptum áfram, þar hefur hún fundið
fjölina sína.
Kringlan | Smáralind
Gerir endur-
komuna eftir-
minnilega
Um síðustu helgi mætti söngkonan
Beyonce aftur á svið, í New Jersey, eftir
nokkurra mánuða – glæsileg eins og áður.
Þar rokkaði hún um sviðið sem aldrei fyrr
með sinni einstöku framkomu íklædd
búningum frá tískuhúsinu Ralph & Russo.
Sumir búningarnir vöktu meiri athygli en
aðrir og þá sérstaklega sá sem skreyttur
var fimm hundruð þúsund Swarovski-dem-
öntum; andvirði tuga milljarða króna. Hinn
rándýri klæðnaður virtist ekki draga úr
söngkonunni nema síður væri og dró hún
hvergi úr hreyfingunum í takt við sönginn.