Fréttatíminn - 01.06.2012, Page 74
B rúðumeistarinn Bernd Ogrodnik er mikill lista-maður; smíðar brúður af
mikilli kúnst og stýrir þeim af
listfengi. Þeir sem fara til að sjá
sýningu hans og félaga á Gamla
manninum og hafinu eiga í vænd-
um mikinn leikhúsgaldur því þar
er samspil leikmyndar, hljóðs, lýs-
ingar og myndar svo sem skugga-
myndum og svo brúða og brúðu-
meistarans einstök.
Eins og blöndun listforma og
ólíkra miðla hljómar spennandi
getur mönnum reynst hált á því
svellinu; bíóbrellur á leiksviði eiga
til að virka þrúgandi á þessa list
augnabliksins og skapa óæskileg
hugrenningatengsl. Í þessari leik-
sýningu gengur hins vegar allt
upp; hið lifandi og kvika leikhús
fær notið sín til fullnustu þó leik-
raddirnar séu á hljóðrás og „leikar-
arnir“ ekki af holdi og blóði. Egill
Ólafsson er sögumaður og fer jafn-
framt með hlutverk gamla manns-
ins, Santiagos og fer á kostum. Val-
geir Skagfjörð leggur drengnum
til rödd og gerir það með ágætum.
En, stjarna sýningarinnar er Bernd
sem er sýnilegur áhorfendum þar
sem hann stýrir brúðum sínum af
mikilli alúð og ást á viðfangsefninu.
Leikmyndin er, trú hefð brúðuleik-
hússins, einskonar kassi, reyndar
með minni glugga til hliðar þar sem
eru vistarverur Santiagos en þrátt
fyrir það nær Bernd í samvinnu við
leikstjórann Þórhall Sigurðsson og
með samspili við snjalla og fagra
leikmyndina auk lýsingar að skapa
furðu mikla dýpt; þorpið, víðerni
hafsins og djúp þess verða ljóslif-
andi.
Sýningin byggir á nóvellu Hem-
ingways, sígildri sögu en fram
kemur í fremur snautlegri leikskrá
að hún hafi fært höfundinum bæði
Pulitzer-bókmenntaverðlaunin og
bókmenntaverðlaun Nóbels. (Til
dæmis kemur þar ekkert fram um
hver þýðir en handrit er skráð á
Bernd Ogrodnik.) Þar er jafnframt
vakin athygli á sögunni sem segir
að innblástur hafi Hemingway fund-
ið í sögu Gunnars Gunnarssonar,
Aðventu, en biblíuvísanir sögunn-
ar eru kannski eftirtektarverðari.
Þar er að finna ýmis kristin tákn úr
krossfestingarsögunni.
Gamli maðurinn upplifir enda
miklar þjáningar. Hann hefur róið
lengi án þess að fá fisk á færi sitt.
Heppnin hefur yfirgefið hann og
faðir vinar hans, drengsins Manol-
ins sem róðið hefur með Santiago,
hefur skipað honum að finna sér
annað skip. Gamli maðurinn rær
einn til sjávar, lengra en nokkru
sinni fyrr og fær risastóran oddnef
til að bíta á agnið. En sá mikli sigur
breytist í sáran ósigur; eftir langa,
stranga og sársaukafulla viðureign
við oddnefinn nær hann loks að
drepa þennan mikla fisk. En San-
tiago nær ekki að koma honum upp
í fley sitt og verður að endingu að
sjá á eftir honum í hárkarlakjafta.
En þar með er ekki öll sagan sögð
því í ósigrinum er jafnframt að finna
sigur; þetta er, þrátt fyrir háan aldur
Santiagos, einskonar þroskasaga – í
gegnum bardagann við hinn verð-
uga andstæðing, sem er uppá líf og
dauða, hefur hann fengið fullvissu
þess að hann sé þrátt fyrir allt mað-
ur með mönnum sem á þess kost
að lifa í sátt við menn og náttúru.
Orrustan tapaðist en stríðið ekki.
Eða eins og segir í áðurnefndri
leikskrá: „Maðurinn er ekki gerður
til að bíða ósigur. Það er hægt að
granda manni en ekki sigra hann.“
Hlutskipti Manolins er að taka við
merkinu eftir Santiago, sem gæti
vísað til hringrásar lífsins.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Niðurstaða:
Leikhúsgaldur sem menn ættu ekki
að láta fram hjá sér fara. Brúðu-
leikhús fyrir fullorðna áhorfendur
en förunautur minn, tíu ára stúlka,
naut sýningarinnar ekki síður en sá
fullorðni.
Gamli maðurinn og hafið
Handrit, brúðugerð, sviðsmynd og flutningur: Bernd Ogrod-
nik Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson Ljósahönnun: Lárus
Björnsson Sögumaður: Egill Ólafsson Raddir: Egill Ólafsson
og Valgeir Skagfjörð Sviðsmynd og leikmunir: Frosti Frið-
riksson, Högni Sigþórsson og Bernd Ogrodnik Hljóðupp-
taka: Halldór Bjarnason Að sýningunni standa Brúðuheimar
í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Undur brúðuleiksins
Kúlan í ÞjóðleiKhúsinu: Gamli maðurinn oG hafið
Sparneytinn, orkuokkur A+ eða A++
Lágvær, aðeins 39-41 dB (A)
Bakteríudrepandi húðun á innra byrði
Glerhillur, sem þola meira en 25 kg. þunga
Fullkomin þjónusta (eigið verkstæði).
Mán.- föst. kl. 9-18
Laugardaga 11-15
Askalind 3 · 201 Kópavogur · Sími: 562 1500
Gerð F-22
HxB=145x60 cm
196 ltr. frystir
Hvítur.........92.900
Gerð C-29
HxB=145x60 cm
267 ltr. kælir
Hvítur ......77.900
B
ET
R
I S
T
O
FA
N
Hvítur ....81.900
Stál..........91.900
Hvítur ....89.900
Stál.......109.900
Gerð RF-27
HxB=150x60 cm
173 ltr. kælir
54 ltr. frystir
Gerð RF-32
HxB=176x60 cm
233 ltr. kælir
54 ltr. frystir
Hvítur ....94.900
Stál.......115.900
Gerð RF-36
HxB=195x60 cm
233 ltr. kælir
88 ltr. frystir
Nýja kæliskápalínan frá
NÝ
SENDING
LÆGRA
VERÐ
LÍTTU Á VERÐIÐ!
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–JVJ. DV
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 sýningar á 11.900 kr.
með leikhúskorti
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30
Mið 6/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 1/9 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið)
Fim 7/6 kl. 20:00
Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 1/6 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
“Létt og
ánægjuleg.”
-The Guardian
“Einstök mynd.”
-The New York Times
JULIETTE
BINOCHE
í L’Heure d’été
eftir Olivier
Assayas
ALLT Á SÉR SÍNA TÍÐ
SUMARTÍÐ
58 menning Helgin 1.-3. júní 2012