Fréttatíminn - 01.06.2012, Page 76
KOMDU MEÐ MÁLIN og við
hönnum, teiknum og gerum
þér hagstætt tilboð
VIÐ KOMUM hEIM tIL þíN,
tökum mál og ráðleggjum
um val innréttingar.
Þú velur að kaupa inn-
réttinguna í ósamsettum
einingum, samsetta, eða
samsetta og uppsetta.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500Mán. - föst. kl. 09-18 - Laugard. kl. 11 - 15
ÁBYRGÐ - þJÓNUStA
5 ár á innréttingum, 2 ár á raftækjum.
Fríform annast alla þjónustu. (trésmíða-
verkstæði, raftækjaviðgerðaverkstæði)
BJÓÐUM EINNIG VÖNDUÐ RAFTÆKI Á VÆGU VERÐI
ELDAVÉLAR - OFNAR - hELLUBORÐ - VIFtUR & hÁFAR - UPPþVOttAVÉLAR - KÆLISKÁPAR
AFS
LÁt
tUR20%
AF R
AFt
ÆK
JUM
Grunnteikning: 1351/1/2 Kitchen - Hnota - 2 Prentað: 23.05.2012
Verk: Fríform - Auglýsing
Mælikvarði: Fit to frame
Nettoline
Køkken
9 Torino Valnød
Björn Leví - Fríform ehf
Askalind 3,
201 Kópavogur
Sími: +354 562 1500 Fax: +354 544 2060
Kennitala:
Okkar tilv.:
Viðskiptamaður
Fríform - Auglýsing
Sími. Fax
ATH. Teikningin er aðeins leiðbeinandi. Dýptarmál eru án skápahurða. NB! Taka þarf mál. Blaðsíða:1 (1)
Okkar tilv.:
1
2
5
U61-
FS
70
6-
U
S
T5
3-
K
S
60
-
U
S
T5
3-
UHK90-
TP195-
KH40-
FS1956-
SV0301
TP
70
-
O
80
-
O
50
-
O
50
-
FS
70
3-
LO
60
-
TG62-
34 400 600 16 600 600 900
1150 1500 500
3150
90
0
50
0
60
0
50
0
16
10
0
80
0
50
0
60
0
50
0
16
SÚPER INNRÉTTINGATILBOÐ
30% AFSLÁTTUR AF hINUM
VINSÆLU OG VÖNDUÐU
“TORINO” hURÐAGERÐUM
BAÐtORINO hurðirnar fást í hnotu, ljósri eik og hlyni.
VERÐDÆMI: Þessi innrétting kostar kr. 323.900,-
( borðplötur, vaskur, blöndunartæki ekki innif.)
AFS
LÁtt
UR30%
AF t
ORI
NO
hUR
ÐAG
ERÐ
UM
Þrívíddarmynd: 1351/1/1 Kitchen - Eik Torino - 1 Prentað: 23.05.2012
Verk: Fríform - Auglýsing
Björn Leví - Fríform ehf
Askalind 3,
201 Kópavogur
Sími: +354 562 1500 Farsími: +354 898 0830 Fax: +354 544 2060
Kennitala:
Netfang: blv@friform.is
Website: friform@friform.is
Nettoline
Køkken
12 Torino Eg
Viðskiptamaður
Fríform - Auglýsing
,
Sími. Fax
Heimasími Farsími
ATH. Teikningin er aðeins leiðbeinandi. Okkar tilv.: Blaðsíða:1 (1)
AÐEINS 323.900
hnota, eik eða hlynur
ÖNNUR TILBOÐ
hALDA ÁFRAM
20%
eLdhúS - bAð - ÞvottAhúS - fAtASKápAr
AfSLáttur Af öLLuM öðruM
hurðAgerðuM
www.friform.is
Plötudómar dr. gunna
Valtari
Sigur Rós
Aftur á nudd-
stofuna
Ágætis byrjun hefur jafnan
verið talin besta plata Ís-
landssögunnar. Þar blandað-
ist nuddstofu- ambient
fyrstu plötu Sigur Rósar við
ægifagrar melódíur svo út
varð töfraformúla melódísks
tilfinningaflæðis, sem sveitin
hefur sótt í síðan. Sigur Rós
fór ansi langt í popp-átt á
síðustu plötu (og líka Jónsi
á sólóplötunni), en nú er
skellt á nefið á poppinu og
djúpslökun tekin á gömlu
nuddstofunni. Þótt nóg sé
af fallegu fíniríi og gamal-
kunnum rísanda/hníganda,
þá er sterkasta tilfinningin
við Valtara sú að strákarnir
hafi gert þetta allt áður og
þá af meiri ákefð og upp-
átækjasemi. Vissulega ágæt
plata frá frábærri hljómsveit
en heimsmeistarinn í lang-
stökki fær engin verðlaun
nema hann stökkvi lengra
en síðast.
Kiriyama Family
Kiriyama Family
Snekkju-popp
Íslenska hljómsveitin Ki-
riyama Family er gríðarlega
„erlendis“: Nafnið, lögin
sungin á ensku og stíllinn
er nett blanda af allskonar
grúvknúðu mjúk-poppi sem
við þekkjum frá útlöndum
en hefur ekki verið spilað
hérlendis af neinu ráði
fyrr en nú. Margt er sett í
pottinn. Heyra má áhrif frá
frönskum hipsteraböndum
eins og M83 og Phoenix,
eitís gáfumannapoppi Talk
Talk og Prefab Sprout og
seventís kókaín-á-snekkju
músík Fleetwood Mac og
Steely Dan. Kiriyama Family
er þétt og velspilandi band
og hnoðar áhrifunum saman
í mjög sterka frumraun þar
sem glimandi slagarar eins
og Weekends og Sneaky
Boots standa upp úr í
byrjun en restin vex við
hlustun. Ljómandi gott og
skemmtilegt.
rainy day in the Park
Joe Dubius
Blautt í sveitinni
Andri Már Sigurðsson í
hljómsveitinni Contalgen
Funeral, sem gerir út frá
Sauðárkróki, stígur hér fram
sóló sem Joe Dubius, en fær
eftir sem áður aðstoð hjá
félögum sínum í bandinu.
Platan er í svipuðum stíl
og það sem hin skagfirska
kántrísveit er kunn fyrir, en
sækir að auki
í blús, þjóðlagatónlist og
hvítt soul. Andri syngur á
ensku með ágætri söng-
rödd sem hann beitir á
fjölbreyttan hátt af öryggi.
Á plötunni hljómar hann
bæði hress, bjartsýnn, lífs-
reyndur og sorgmæddur og
undirstrikar þar með fíling
plötunnar, sem byrjar í bjart-
sýnum hressleika en þróast
yfir í regnblauta depurð.
Menn spila vel og platan á
mjög fína spretti þótt hún
slæpist stundum fulllengi í
þaulkönnuðu lognbelti tón-
listarstefnanna.
Æfa bara í
Breiðholti
„Það verður tekið á. Ég lofa frábærri
stemningu. Við munum spóla yfir allt
sem við höfum gert og kanna hvort það
steinliggi ekki líkt og áður,“ segir Axel
Hallkell Jóhannesson, Langi Seli, um
komandi afmælistónleika Langa Sela
og skugganna á Bar 11 um helgina. Tón-
leikarnir verða bæði í kvöld, föstudag,
og á morgun, laugardag en tilefnið er
25 ára afmæli sveitarinnar.
Aðspurður um líftíma hljómsveitar-
innar segir Seli að hann og félagar hans
hefðu ekki hugsað mikið um það þá.
„Við tókum einn dag í einu og gerum
það reyndar enn,“ segir Seli. Rúmt ár er
síðan hljómsveitin kom saman síðast á
almennilegum tónleikum en hún tróð
upp í Edrúhöllinni fyrir skömmu – sem
einhvers konar upphitun fyrir afmælis-
tónleikana. „Við erum eins og gorkúlur.
Alltaf í jörðinni og sprettum upp við
ákveðin skilyrði.“
Og hljómsveitin æfir enn á sama stað
og áður. „Við erum í Breiðholtinu.
Andlegur reynsluheimur bandsins er
í Breiðholtinu, við sömdum sjálfan
þjóðsöng Breiðaholtsins, Breiðholts-
búggí og jafnvel þó að við séum allir
fluttir þaðan þá verður maður að finna
fyrir blokkunum, fyrir steinsteypunni,“
segir Langi Seli en bætir þó við að eina
breytingin sé æfingatíminn. „Nú æfum
við klukkan níu á morgnanna. Í gamla
daga var maður að fara að sofa á þeim
tíma.“ -óhþ
É g er enn ungur og ferskur og fullur af hugmyndum og energí,“ segir Sævar Karl Ólason listmálari.
Sævar Karl opnar sýningu á verkum sínum
á laugardag í Listamenn gallerí að Skúlagötu
32. Sýningin ber yfirskriftina Nekt og meira
en á sama tíma verður Sævar með sýninguna
Kroppar á Mokka. „Á sýningunni eru myndir
sem ég hef unnið á síðustu tíu mánuðum. Þær
eru byggðar á teikningum af nöktum mód-
elum, módelteikningum, sem ég hef unnið að
í München. Teikningarnar verða til sýnis á
Mokka,“ segir Sævar.
Sævar Karl var um langt árabil kunnur kaup-
maður. Hann seldi herrafataverslun sína árið
2007 og hefur síðan þá verið búsettur, ásamt
Erlu Þórarinsdóttur eiginkonu sinni, til skiptis
í München og Reykjavík.
„Ég var alltaf mjög vinnusamur og tók mér
sjaldan frí. Ég seldi áður en allt fór til andskot-
ans og þá tók annað við hjá mér. Undanfarin
fjögur ár hef ég verið með hugann við málara-
listina. Mér finnst þetta svo skemmtilegt og
það á að sjást í litanotkuninni og pensilstrok-
unum,“ segir Sævar Karl.
Aðspurður segist Sævar hafa mótast nokkuð
af dvöl sinni í Þýskalandi. „Vissulega smitast
ég af Þjóðverjum. Þeir eru meistarar í málverk-
inu og hafa verið um aldir.“ En þó þau hjónin
njóti dvalarinnar meðal þýskra togar fóstur-
jörðin alltaf í þau: „Á sumrin er hvergi betra en
að vera hér. Veðurfarið og birtan eru yndisleg.“
Sævar Karl hefur haldið nokkrar sýningar
undanfarin ár í Þýskalandi og Austurríki auk
sýningar á Sólon. En þetta er hans stærsta sýn-
ing til þessa. Til marks um það pantaði hann
galleríið fyrir einu og hálfu ári og hefur verið
með hugann við sýninguna allan þann tíma.
Stefan Zeiler, lærifaðir Sævars, skrifar inn-
blásin inngangsorð í glæsilega sýningarskrá
sýningarinnar. „Ég legg allt í þetta – líf og sál,“
segir listamaðurinn.
Allar myndir á sýningunni eru til sölu og
Sævar Karl er spenntur að sjá hver viðbrögð
fólks verða: „Það er gaman að fá þetta tækifæri
til að kynna mína list – að leyfa fólki að sjá hvað
ég er að gera.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
myndlist sæVar Karl ólason oPnar málVerKasýningu
Leggur líf og sál í myndlistina
Sævar Karl Ólason hefur notið lífsins eftir að hann seldi þekkta herrafataverslun sína. Hann er afkastamikill málari eins og sjá má
á sýningu sem hann opnar á laugardag.
Sævar Karl Ólason er spenntur að sjá hvernig fólk kann að meta málverk á sýningunni Nekt og meira sem opnuð verður í Listamenn gallerí á laugardag. Ljósmynd/Hari
Langli Seli og skuggarnir á morgun-
æfingu. Ljósmynd/Hari
60 dægurmál Helgin 1.-3. júní 2012