Læknablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 24
114
LÆKNABLAÐIÐ
ritað um. Telja sumir það lítils
virði, en aðrir að það veiti
nokkra hjálp, þó þvi aðeins,
að það sé gefið i stóruin
skömmtum. Meðal hinna siðar-
nefndu er Berdal (með 45 til-
felli 1949). Honum tókst að
lækna s. m. acuta með hálfu
færri ástungum, ef dælt var
inn í holuna 100—200 þús. ein.
af penicillini eftir skolun, en
ef ekkert lyf var notað. Ein-
kennilegt finnst mér, að hann
lieldur því fram, að innihaldið
i sinus hafi orðið sterilt eftir
fyrstu penicillin-inndælingu,
livaða sýkill sem valdur var
að bólgunni og hvort sem hann
reyndist næmur fvrir peni-
cillini in vitro eða ekki. Hann
taldi þó vafasamt, hvort rétt
væri að beita þessari meðferð
við allar kj.h.hólgur án fylgi-
kvilla, hæði vegna þess, að þær
læknast oft á stuttum tima án
lyfja, og að penicillin-ofnæmi
getur myndazt í h. u. m. h. 10.
hluta þeirra, sem lyf þetta nota
„lokalt“. Um verkanir aureo-
mycins, notað á þennan liátt,
hef ég litla reynslu og ekkert
séð ritað, en í amerískum rit-
um hef ég lesið um góðan á-
rangur af því gefnu per os..
Yfirleitt hef ég ekki notað
antihiotica við sinusitis í byrj-
un, nema í svæsnum tilfellum.
Aftur á móti tel ég rétt að
reyna það, ef lítill eða enginn
árangur er af 5—10 ástungum.
Hef ég þá gefið 400 þús. ein. á
dag í vöðva eða 200 þús. í sinus
eftir skolun. Virðist mér nokk-
ur lijálp hafa verið að því,
einkum ef það var gefið i hol-
una sjálfa, þó ekki liafi ég nein-
ar tölur um það enn.
I von um að geta vinzað úr
þau tilfelli, sem penicillin gæti
læknað, fekk ég gerð nokkur
næmispróf á sýklum í kj.holu-
grefti í rannsóknarstofu Há-
skólans. Því miður varð ég að
liætta við það fljótlega, þar eð
rannsóknarstofan hafði fengið
mikið verkefni við næmispróf
á berklasýklum,og gat ekki
annað meiru í bili.
Þótt engin lyf séu notuð, þarf
að jafnaði aðeins fáar ástung-
ur til að lækna s. m. acuta, og
hefur mér talizt svo til, að á
mínum sjúklingum hafi aðeins
þurft 4—5 að meðaltali. Öðru
hvoru koma þó fyrir tilfelli,
sem ekki batna við einar 10 á-
stungur og í framhaldi af því
penicillingjöf + ástungur i 1
—2 vikur. í slíkum tilfellum
hef ég gert svonefnda Claoués-
aðgerð (Cl.aðg.) á kj.liolunni.
Aðgerðin er í því fólgin, að
gert er op frá nefi, gegnum
meatus inferior, inn i sinus.
Síðan er liolan skoluð daglega
með boginni pípu, sem stung-
ið er inn gegnum þetta o]i.
Eftir skolunina hef ég stund-
um blásið sulfa og penicillin-
dufti inn i holuna, en ekki slcal
ég fullyrða neitt um þýðingu
þess, og e. t. v. er það varhuga-