Læknablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 36
126
LÆKN ABLAÐIÐ
og lék Ólafur undir á hannoni-
um.
Snyrtimennska Ólafs, sem
hreif mig sem barn, einkenndi
liann, jafnt í fasi sem klæða-
burði, alla tíð. —
Ólafur Jón Thorlacius var
fæddur í Saurbæ í Evjafirði.
Faðir hans, séra Jón Thorla-
cius sóknarprestur, féll frá er
Ólafur var þriggja vetra. Flutt-
ist hann þá með móður sinni,
Kristinu Tómasdóttur, að Mel-
gerði í Eyjafirði, og síðar að
Möðruvöllum í Hörgárdal. Úr
Möðruvallaskóla brautskráðist
hann 1883, og lauk stúdents-
prófi 1889.
Ólafur hóf læknisfræðinám
við Kaupmannahafnarháskóla,
en hvarf síðan heim og lauk
prófi við Læknaskólann í
Reykjavík 1896. Eftir það var
hann á fæðingarstofnuninni og
spítölum í Kaupmannahöfn við
framhaldsnám til 1897. Hóf þá
læknisstörf í Keflavikurlækn-
ishéraði, í fjarveru héraðs-
læknisins. Aukalæknir í Suð-
urmúlasýslu varð hann sama
ár. Skipaður héraðslæknir í
Berufjarðarhéraði árið 1900, og
liélt því starfi til 1928. Fluttist
þá til Reykjavíkur, og hjó þar
siðan.
Sama liaust (1928) var hann
skipaður eftirlitsmaður með
berklavörnum og berklahæl-
um, og jafnframt eftirlitsmað-
ur lyfjabúða til 1939. Þing-
maður Sunnmýlinga var hann
1903 til 1907.
Arið 1898 kvæntist Ólafur
Thorlacius Ragnhildi dóttur
Péturs Eggerz, kaupmanns í
Akureyjum á Breiðafirði. Það
var jafnræði með þeim Ólafi
og Ragnliildi, fór saman hjá
báðum glæsileiki, góðar gáfur
og mannkostir. Iijónaband
þeirra var ástúðlegt með af-
brigðum, og fjölskyldulíf og
heimilisbragur allur eftir þvi.
Af börnum sínum urðu þau að
sjá fjórum á bak. Þrír svnir
eru á lífi.
Ólafur var mikill framfara-
maður. Tók hann virkan þátt
í framkvæmdum i atvinnu- og
félagsmálum í héraði sínu.
Hann var meðstofnandi kaup-
félagsins á Djúpavogi og fyrsta
útgerðarfélagsins, sem gerði
þar út stóran mótorbát til fisk-
veiða.
A Búlandsnesi bjó Ólafur
góðu búi, og bætti jörðina á
allan liátt. En ekki safnaði
hann auði. Heimilið var alltaf
þungt, og gestnauð svo mikil
að slíks eru fá dæmi, enda var
gestrisni þeirra hjóna og hjálp-
fýsi frábær.
Fyrir nokkrnm árum varð
Ólafur fvrir því jiunga áfalli
að missa annan fótinn vegna
arteriosclerosis. Sami sjúk-
dómur dró liann til dauða eftir
stutta, en erfiða legn á Land-
spítalanum.
Við fráfall þessa vinsæla