Læknablaðið - 01.04.1953, Síða 28
118
LÆKNABLAÐIÐ
í nefið í mealus inf. Hin að-
gerðin er Claoués-aðgerð, þar
sem einungis er búinn til gluggi
í meat. inf., eins og ég gat um
í samb. við meðferð á s. m.
acuta.
Margir byrja strax á fyrr-
nefndri aðgerð, þegar ástung-
ur ekki duga, en aðrir láta sér
nægja Cl.aðg. eða antrostomia
eins og hún einnig er nefnd.
Þessi aðgerð er kennd við
Frakka, sem fyrstur Evrópu-
manna fann upp á að gera stór-
an glugga á kj.holu í meat. inf.
og ritaði um það árið 1902. Hún
er allmikið notuð í ýmsum
löndum, einkum Bandaríkjun-
um, og er að vinna á, að ég
hygg. Antrostomia er oftast
gerð í staðdeyfingu. Uppruna-
lega var notaður til þess meit-
ill og hamar, en opið víkkað
með raspi. Sumir gera það enn
á þennan hátt. Síðar liafa ver-
ið búnar til ýmis konar bit-
tengur til þess arna.
Sú töng, sem ég nota aðal-
lega, er kennd við Kugler. Með
henni er hægt að stinga gat á
beinið og bíta af veggnum
framávið, upp- og niðurávið.
Hún er svo grönn að auðvelt
er að koma henni inn undir
concha inf., jafnvel á 5—10 ára
börnum. Til þess að stækka
gluggann afturávið og niður-
ávið nota ég auk þess Hajeks
sphenoidal-bittöng. Þessi að-
gerð hefur ýmsa kosti. Hún
er auðveld, fljótleg, sársauka-
lítil og krefst ekki legu eða
sj úkralnisvistar.
Hún getur að vísu ekki kom-
ið algerlega í stað rad.aðgerðar,
en ég álít, að með því að reyna
hana fyrst, megi komast hjá
mörgum rad.aðgerðum. Ef
Claoués-aðg. ekki dugar, má
alltaf gripa til rad.aðgerðar á
eftir, en hve lengi á að bíða
og bve oft á að skola eftir
antrostomiuna, svo að útséð
sé um lækningu með þeirri
aðgerð, verður varla sagt með
vissu. Mér hefur reynzt, að sé
liolan ekki orðin hrein, eða
því sem næst, eftir 20—30 dag-
legar skolanir, séu líkur til
bata orðnar litlar, og ráðlegt
að hugsa til stærri aðgerðar.
En ekki er þetta einhlítt, því
komið hefur fyrir, að óráð-
þæginn sjúkl. hefur horfið
nokkra mánuði og komið svo
aftur með hreina holu. Það
verður ekki við öllu séð.
Stundum hef ég leyft utan-
bæjarfólki að fara heim til sín
fljóllega eftir aðgerðina, og áð-
ur en útferð var bætt, ef það
hefur ekki átt þess kost að vera
lengur að heiman. Þegar ég
svo hef atliugað sinus vikum
eða mánuðum síðar hefur
hann ofl eða oftast verið orð-
inn hreinn.
Ég tel rétt að byrja með Cl.-
aðg., en ekki rad.aðg. á öllum
kroniskum kj.h.bólgum, af
ýmsum ástæðum.
Ein er sú, að ekki er rétt,