Læknablaðið - 01.04.1953, Qupperneq 31
LÆKNABLAÐIÐ
121
skola vegna stíflu í ostium eða
að hraða þurfti meðferð af ein-
hverjum ástæðum, t. d. tíma-
leysi sjúklings.
Af þessum 140 náði ég i 95
til eftirskoðunar, hálfu til ö1/^
ári eftir aðgerð, og höfðu 17
Iiaft aeut, en 78 kroniska kj.h,-
bólgu, ]). e. sjúkd.tími > 3 mán-
uðir.
Þær 17 kj.holur, sem bráð
bólga hafði verið i, voru allar
hreinar við eftirskoðun. Með-
al þeirra voru 2 á ofnæmis-
sjúklingum. Voru 4 þeirra opn-
ar, en 13 lokaðar.
Viðvíkjandi hinum 78 kron-
isku holum skal ég geta þess,
að 55 reyndust albata, 7 með
vott af grefti eða slimi, en
sjúkl. annars óþægindalausir.
Eftir eru þá 16. Var gerð
Lue-Caldwells-aðg. á 8 þeirra
og mun ég minnast sérstaklega
á þær hér á eftir.
Hinar 8 höfðu meiri eða
minni útferð, þó hafði ástand
sjúklinganna batnað að ýmsu
leyti. Ég ráðlagði þeim öllum
radical aðgerð. Einn sjúkling-
anna, gömul lashurða kona,
treysti sér ekki í þá aðg., enda
óþægindalitil. Tveir voru hörn
9 og 10 ára gömul. Foreldrar
þeirra vildu fresta aðgerð. Á
4 eru fvrirhugaðar rad.aðgerð-
ir og á þeirri einu, sem þá er
ótalin gerði ég Luc.Caldwells-
aðg. og resectio sinus ethmoi-
dalis, nú eftir síðustu áramót.
Það var asthmasjúkl. með
polypa og þrengsli í nefi. Hol-
an er nú hrein og líðan öll
miklu betri og asthma nær
horfið.
Við eftirskoðunina reynd-
ust 44 holur opnar af 70
kroniskum, sem aðeins fengu
Claouésaðg. Athyglisvert er, að
um þriðjungur þeirra, sem
urðu alhata, höfðu greinileg
einkenni ofnæmis.
Þá kem ég að þeim 8
holum, sem ég gerði Luc-
Caldwell aðg. á. Þrjár þeirra
urðu fljótlega hreinar, aðrar
þrjár þvi nær hreinar, en þó
ekki fyllilega (1—2 árum eftir
aðg'.) og tvær með nokkra, nær
stöðuga útferð 2 árum eftir að-
gerð. Þessar 2 síðastnefndu
holur tilheyrðu báðar sama
sjúkl., ungum manni með mik-
ið ofnæmi. Ég gerði einnig
resectio sinus ethmoilalis bila-
teralis á honum.
Or öllum þessum 8 holum
tók ég slímhúðina algerlega.
Auk þess gerði ég resect. septi
nasi á 2, þar sem mikil heyja
á septum hindraði frjálsan að-
gang að meatus inf. og klippti
af fremri enda conchae inf. í
einu tilfelli, þar eð hún var
mjög fyrirferðarmikil.
Það verða varla dregnar
neinar almennar ályktanir af
árangrinum af þessum 8 rad.-
aðg. Til þess er talan of lág.
En ekki finnst mér hann mjög
glæsilegur, þar sem aðeins 3
liolur urðu alveg hreinar og