Læknablaðið - 01.06.1955, Side 9
LÆKNABLADID
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: GUÐMUNDUII THORODDSEN. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON (L. í.) og BJARNI JÓNSSON (L. R.)
39. árg. Reykjavík 1955 3.—5 frkl
Skurðaðgerðir við tubercuiosis
pulmonum
Eftir Hjalta Þórarinsson
Erindi flutt í Læknafélagi Reykjavíkur.
Hugmyndin um resectio pul-
monum við tuberculosis er
meira en hálfrar aldar gömul
og fljótt fóru menn þá að reyna
þessar aðgerðir. En ekki eru
liðin meir en 15—20 ár frá því
að tókst að sigrast algerlega á
ýmsum þeim vandamálum, sem
alltaf eru samfara aðgerðum á
líffærum í brjóstholi.
Hið physiologiska ástand í
brjóstholinu, þ. e. hinn nei-
kvæði þrýstingur, var erfiðast-
ur þrándur í götu, er skurð-
læknar voru að reyna að leggja
undir sig þetta svæði líkamans.
Opinn pneumothorax, hvort
sem um er að ræða af slysum
eða aðgerðum, þola sjúklingar
ekki. Loftið sogast inn í brjóst-
holið við innöndun, lungað
þeim megin fellur saman og
verður óstarfhæft mediastinum
ýtist yfir til hinnar hliðarinn-
ar, svo að lungað þeim megin
getur fljótt orðið óstarfhæft
líka. Þetta var mönnum ljóst
og við þessu varð að finna ráð.
Skömmu eftir síðustu aldamót
fann hinn hugvitssami dr.
Sauerbruch upp lágþrýstiklefa
sinn, sem gerði mögulegt að
framkvæma aðgerðir á líffær-
um í brjóstholi. Þetta markaði
merk tímamót í sögu brjóst-
holsaðgerða og varð Sauerbruch
fyrstur manna til að gera ýms-
ar aðgerðir í brjóstholi. Lág-
þrýstiklefinn hefir nú verið
leystur af hólmi af anestesia
intubationis intratrachealis með
yfirþrýstingi.
Með bættri meðferð fyrir og
eftir aðgerðir og auknum skiln-
ingi á aðgerðunum sjálfum er
nú svo komið, að menn hika ekki
lengur við að ráðast í hinar
vandasömustu aðgerðir á líf-
færum í brjóstholi.
Erindi þessu er ætlað að fjalla