Læknablaðið - 01.06.1955, Blaðsíða 31
L Æ K N A B L A Ð I Ð
55
Electroencephalographia
(Heilaritun)
Erindi flutt í læknafélaginu Eir 28. apríl 1955.
Það eru nú liðin 26 ár síðan
þýzki geðveikralæknirinn Hans
Berger birti fyrstu ritgerð sína
um elektroencephalogram hjá
mönnum, og 20 ár síðan þeir
William Lennox og F. Gibbs
fluttu fyrsta fyrirlesturinn um
sérstakar breytingar á heilariti
samfara epilepsi köstum. Var
það svonefnt „spike and wave
complex“, sem fylgdi petit mal
kasti.
Á þessum aldarfjórðungi er
búið að rannsaka fylgni elektro-
encephalografiskra breytinga og
ýmissa ytri og innri aðstæðna,
therapy of tuberculosis is dis-
cussed. The importance of a long
term chemotherapy before and
after resectional surgery is
stressed esp. is a long term
postoperative chemotherapy
advisable in those cases where
some visible or palpable disease
is left behind at the time of sur-
gery.
The operations: segmental
resections, lobectomies and
pneumonectomies are described
briefly. The importance of a
good postoperative prophylaxis
and care is stressed. The posto-
perative complications are men-
tioned. Chamberlains statistics
is quoted.
svo sem aldurs, svefns og vöku,
ýmissa sjúkdóma og lyfja.
Það eru auðvitað fyrst og
fremst ýmsir sjúkdómar í heil-
anum, sem valda breytingum á
heilaritinu, sem oft getur verið
hjálp í og nauðsynlegt að vita
um í sambandi við greiningu og
meðferð sjúkdóma eins og t. d.
epilepsi, tumores, encephalitis,
meningitis, lues, abscess, atrofi,
æðasjúkdóma í heila og trauma
cerebri. Einnig má hafa gagn af
heilaritinu við differential diag-
nosis á ýmsum geðsjúkdómum,
alls konar höfuðvei-k, migrene,
yfirlið, hysterisk krampaköst o.
s. frv. Oft er nauðsynlegt að
endurtaka heilarit til að fylgj-
ast með þeim breytingum, sem
hugsast gæti að fyndust.
Ymsir kvillar utan taugakerf-
isins geta valdið breytingum á
heilaritinu. Er þar um að ræða
kvilla, sem valda fysiologiskum
og biokemiskum breytingum,
sem hafa áhrif á heilann, t. d.
hypoglykemi, truflanir á sýru
— basa jafnvæginu, efnaskipta-
truflanir o. fl. endokrin trufl-
anir. Heilarit barna og unglinga
eru næmari fyrir öllum slíkum
breytingum, og nægir í því sam-
bandi að minna á, að áhrif hyp-
erventilations alkalosunnar eru