Læknablaðið - 01.06.1955, Síða 38
62
LÆKNABLAÐIÐ
6. mynd. Hægar stórar bylgjur og einstaka „spike“ með apparent phase
reversal" um hægri frontal elektróðu. Frá 9 ára barni með ört versn-
andi focal epilepsi.
vegna fyrst í stað gefið eðlilegt
heilarit.
Reikna má með, að 85% heila-
æxla valdi óeðlilegu heilariti, og
hjá 70% er hægt að staðsetja
æxlið nokkurn veginn rétt. Æxli
í stóra heilanum valda venjulega
breytingum sömu megin í heilá-
ritinu. Þau æxli, sem erfiðast
er að staðsetja, eru æxli, sem
sitja í fossa posterior. Þau valda
oft bilateral syncron breyting-
um í heilaritinu, eða breyting-
arnar geta verið staðsettar
gagnstætt æxlinu, eins og t. d.
við æxli í litla heilanum.
Þegar staðsetja á æxli með
heilariti, er farið eftir því, hvar
breytingarnar eru mestar, sem
oftast eru delta-bylgjur (1—3 á
sek.) og hvar þessar bylgjur
eru stærstar. Ef notuð er bipol-
artækni, kemur fram svonefnt
apparent phace-reversai um
æxlið, þ. e. a. s. í stað þess að
vera í takt, koma bylgjurnar
hver á móti annarri. Einnig er
staðbundið inaktivitet merki um
staðbundnar breytingar, t. d. ef
leitt væri frá 2 elektróðum, sem
lægju yfir æxlið, mundi ekki
verða skráð neitt aktivitet frá
þeim eða mjög lítið.
Það, sem hér hefur verið sagt
um æxli, á mikið til einnig við
um aðrar fyrirferðaraukningar
inni í hauskúpunni.
Akut encephalitis og meningi-
tis valda dreifðum breytingum á
heilaritinu, og hægt er að fylgj-
ast með gangi sjúkdómanna með
endurteknum heilaritum, hvort
þeir batna, verða kroniskir, eða
enda með abscess.
Intra-cranial blæðingar eða
æðastíflur valda breytingum,
sem venjulega hverfa hjá 80%
sjúklinganna, eftir stuttan tíma,
ef þeim batnar.
Meiösl á höfði.
Traumata valda staðbundnum
eða dreifðum breytingum, sem
standa mismunandi lengi eftir
því, hve miklum skemmdum þau
hafa valdið. Ef um er að ræða
minniháttar trauma, sjást stað-
bundnar breytingar, sem hverfa
eftir nokkra daga. Eftir meiri
háttar trauma sjást dreifðar
breytingar, sem geta orðið stað-
bundnar eftir nokkra daga og