Læknablaðið - 01.06.1955, Síða 52
76
L Æ K N A B L A Ð I Ð
Taxíi li é r a A s 1 æ k n a
(Frá nefnd þeirri, er á síðasta
aðalfundi L.I. var kosin til að
semja um breytingu á taxta
héraðslækna).
Eins og kunnugt er var kos-
in nefnd á síðasta aðalfundi L.
I. til þess, í samráði við stjórn
L. I., að leita samninga og semja
við heilbrigðisstjórnina um lag-
færingu á taxta héraðslækna.
Árangur af starfi nefndar-
innar og stjórnar L. í. er aug-
lýsing frá heilbrigðismálaráðu-
neytinu 25./2. 1955, þar sem
taxtinn er hækkaður um 66%%,
almennt viðtalsgjald í kr. 10,00
og annað tilsvarandi. Er það
skoðun nefndarinnar og stjórn-
ar L. I. að við þennan taxta
megi una, meðan verðlag ekki
breytist að ráði svo kaupgjalds-
vísitala hækki verulega.
önnur atriði, sem nefndin
fór frám á að fá lagfærð —
vinnutímalagfæring, ferðataxti
og grein um að láta taxtann
í framtíðinni breytast með
kaupgjaldsvísitölu samkvæmt
þar um gerðum reglum — er
ekki minnst á í ofangreindri
auglýsingu og því ekki tekin
bein afstaða til þeirra í henni.
Aftur á móti hefir nefndin
samið við tryggingarnar um
heildarsamning — milli héraðs-
lækna og sjúkrasamlaga á
nokkrum stöðum — um greiðslu
pr. númer. Þar kemur greini-
lega fram að tryggingarnar líta
svo á að 12 klst. vinnutími kl.
8—8 beri að telja nægan til
venjulegra starfa og að sjálf-
sagt sé að endurskoða taxtann,
ef verulegar kaupgjaldsbreyt-
ingar verði.
Um ferðataxtann var ekki
tækifæri að ræða í þessum
samningi, þar sem þar er að-
eins um innanbæjar praxis að
ræða.
Vér vonum því að þessi um-
ræddu atriði fáist lagfærð að
fullu áður en langt um líður og
væntum að héraðslæknar uni
við taxtann og fylgi honum
eins og hann er nú.
Heilbrigðisskýrslur
1911-1928
Upplög þessara árganga Heil-
brigðisskýrslna hafa verið talin
þrotin fyrir löngu, og sumir ár-
gangarnir hafa árum saman
reynzt með öllu ófáanlegir. Nú
hafa nokkrar leifar upplaganna
óvænt fundizt, og eru þær í
vörzlum landlæknis. Læknar og
aðrir, sem haldið hafa saman
Heilbrigðisskýrslum, en er vant
einhverra þessara árganga í
safn sitt, munu fyrst um sinn
geta fyllt skörðin með því að
snúa sér til skrifstofu land-
læknis.