Læknablaðið - 01.06.1955, Side 53
L Æ K N A B L A Ð I Ð
77
llúð- ug kyii.sji'ikriúmatleiltl
lleílsuvermlar^iöðvar Itevkjjavíkur
tók til starfa 15. des. 1954. Er
hún opin daglega kl. 1—2 nema
laugardaga ld. 9—10.
Deildin starfar á sama hátt
og poliklinikar fyrir húð- og
kvnsjúkdóma i nágrannalönd-
unum, sem veita ókeypis lækn-
ishjálp. Sérstök álierzla er lögð
á varnir og læknishjálp við
kynsjúkdómum og óskar deild-
in eftir sámstarfi við héraðs-
lækna og starfandi lækna um
rannsóknir og eftirgrenslan
um upptök þessara sjúkdóma.
Á það skal sérstaklega bent að
á 2 síðustu árum hefir gonorr-
lioe færst aftur í vöxt hér á
landi, þrátl fyrir liin nýju og
fljótvirku lyf. Sömu fregnir
berast einnig frá nágranna-
löndum vorum.
Þó penicillin o. fl. antibiotisk
lyf séu fljótvirk og máttug gegn
þessum sjúkdómi eru recidiv
þó alltíð og koma ofl ekki fram
fyrr en eftir 2—3 vikur. Þess
vegna er nauðsynlegt að fylgj-
ast með sjúklingunum í 3—4
vikur, eftir að lækningu er lok-
ið. Hjá konum þarf að fram-
kvæma ekki færri en 2 smá-
sjárrannsóknir frá þvagrás og
legopi, eftir að lækningu er
lokið, til þess að viðunandi
geti talizt, t. d. á 7. og 21. degi
frá síðustu lyfjadælingu.
Þeir læknar, sem taka gon-
orrhoe-sjúklinga í lækningu, en
hafa ekki tök á, eða tima til, að
framkvæma þessar rannsókn-
ir, ættu því að senda sjúklinga
þessa deildinni til rannsóknar.
Allar rannsóknir og læknis-
hjálp er veitt sjúklingum að
kostnaðarlausu.
Læknar deildarinnar eru
Hannes Guðmundsson og
Hannes Þórarinsson, hjúkrun-
arkona frú Salóme Pálmadótt-
ir og eru læknar og aðrir aðilar
beðnir að snúa sér til þeirra
með öll mál, sem deildina
varða.
Alþjóðaþing barnalækna
1956
(Internat. Congress of pædia-
trics), Kaupmannahöfn 22.—
27. júlí 1956.
Tilkynning um þing þetta
hefir L. í. borizt frá danska
sendiráðinu. Nánari upplýsing-
ar hjá stjórn L. 1.