Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.05.1957, Page 18

Læknablaðið - 01.05.1957, Page 18
4 LÆKNABLAÐIÐ MYND 1. Þverskurður af þekju frá portio vaginalis uteri. ar voru þessar aðferðir svo ó- nákvæmar, að ekki þótti fært að byggja sjúkdómsgreiningu á þeim í einstökum tilfellum. Það var þvi ekki fyrr cn Papani- colaou og Traut liöfðu birt at- huganir sínar árið 1943 (1), að greining illkynja meina með skoðun á einstöknm frumum fór að ryðja sér til rúms að nokkru ráði. Uppliaf þeirra rannsókna voru athuganir Papanicolaou á cycliskum hreytingum í vaginalslímhúð kvenna og dýra, sem hirtar voru 1928 og 1933 (2,3). Papani- colaou tók leggangaslím, strauk út á gler og litaði. Með því móti gat liann sýnt fram á, að útlit frumanna í leggangaslíminu hreyttist í samræmi við hreyt- ingar á vakastarfsemi kynkirtl- anna. Endrum og eins rakst Papanicolaou á undarlega útlít- andi frumur, sem hann ekki kannaðist við, að ættu heima í cðlilegu. leggangaslími. Þegar nánar var að gáð, höfðu sumar af konum þeim, er fruniur þess- ar fundust lijá, krabbamein i leginu. Þetta leiddi svo til þess að hann hóf kerfisbundna leit að krabbameinsfrumum, en fyrstu niðurstöður sínar um það efni hirti hann ásamt Traut, eins og áður segir. Aðrir fylgdu fordæmi Papanicolaou og má þar fremsta telja Dr. Rutli Graham og samstarfsfólk henn- ar í Boston (4), Gates og Warr- en frá Harvard (5) og Ayre frá Montreol (6). Aðferð Papani- colaou var síðan upp tekin í ýmsum Evrópulöndum, hæði í Bretlandi og á meginlandinu. Af mönnum, sem í þeim lönd- um hafa ritað um þetta efni, má nefna Waclitel (7), Schust- er (8) og Oshorn (9) í Bret- landi, og Igel (10) og Limburg (11) í Þýzkalandi. Fyrst framan af voru sjúk- dóma- og meinafræðingar af skiljanlegum ástæðum mjög vantrúaðir á gagnsemi frumn- rannsóknanna í samhandi við greiningu illkynja meina. — Reynslan hafði kennt þeim að oft er erfitt að ákvarða, hvort um illkynja æxli er að ræða eða ekki, jafnvel þótt hluti af æxl-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.