Læknablaðið - 01.05.1957, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ
29
Danir ekki átt, því að hvar sem
hann fór flutti hann með sér
þekkingu og menningu hins
fágaða Dana, sem menn dáðust
að fvrir lærdóm hans og mennt-
un, jafnframt því sem þeir
höfðu ánægjuna af því að um-
gangast svo skemmtilegan og
þægilegan mann. Með þekkingu
sinni, lipurð og velvild tókst
honum að koma ýmsum málum
í gegn þar sem öðrum hafði ekk-
ert orðið ágengt og þannig áttu
margar þjóðir honum að þakka
miklar framfarir í heilbrigðis-
málum.
Fram til þess síðasla var Dr.
Madsen starfandi að hugðarefn-
um sínum. Á s.l. ári birti hann
ritgerð með svni sínum, Sten,
sem lika er læknir, og fjallaði
hún um barnaveiki í Danmörku.
„Difteri fra 23.695 til 1“ heitir
ritgerðin og gefur titillinn til
kynna hvernig eldri höfundur-
inn hefir upplifað að sjá barna-
veiki vera einn liinn skæðasta
morðingja í landinu og verða
síðan algerlega útrýmt.
Thorvald Madsen var kvænt-
ur Misse Madsen, fædd Gad,
hinni ágætustu lconu, sem lifir
mann sinn. Með henni átti hann
dótturina Flsebeth, sem er gift
hofjægermester Tesdorpf og
synina Sten, lækni, Torben, for-
stjóra fyrir Minerva Film og
Niels Gregers, sem hefir ávaxla-
rækt í Danmörku.
Siðast þegar ég hitti Dr. Mad-
sen, i Khöfn, í nóv. sl., var hann
hinn hressasti og var að tala
um hvernig infektionssjúkdóm-
arnir væru algerlega að líða
undir lok. ísland var eitt af
þeim fáu löndum sem hann
liafði aldrei heimsótt. Ég heyrði
á honum að hann langaði mikið
til að koma hingað og minntist
á það við kollega mína í lækna-
deild. Fekk það góðar undir-
tektir og í marzmánuði barst
honum bréf frá rektor með boði
um að koma hingað og flytja
erindi í háskólanum. Ætlaði
hann að flytja erindi um „per-
sónulegar endurminningar um
ýmsa brautryðjendur sýkla-
fræðinnar“. Hann var einn af
sárafáum mönnum enn á lífi,
sem liafði þekkt Pasteur, Ivoch,
Löffler og von Behring, verið
aðstoðarmaður Ehrliehs og haft
persónulegan kunningsskap við
flesta þeirra manna, sem hæst
bar þegar sýklafræðin var í
uppsiglingu.
Því miður fengum við ekki
tækifæri til að sjá Dr. Madsen
hér og heyra erindi hans. Hann
hafði reynzt mörgum okkar svo
vel og gert allt sem liann gat
til þess að greiða götu okkar í
hvívetna. Hvenær sem við þurft-
um á hjálp stofnunar hans að
halda var hún ávallt hoðin og
velkomin og margir íslenzkir
læknar liöfðu fengið tækifæri
til þess að æfa sig og þjálfast
á stofnun hans.
Minning lians mun lengi uppi
verða, því að enginn norrænn