Læknablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
123
hreyfanlegt (9. mynd A). Þetta
var bersýnilega óskurðtækt
krabbamein, en þar sem konan
var lögzt í rúmið vegna verkja
i holhendinni og handleggnum,
var ekki hægt um vik að koma
henni í geislameðferð. Var því
nfráðið að reyna hormóngjöf
fyrsí um sinn, ef verða mætti
til þess, að hún yrði að minnsta
kosti rólfær. Hún tók stilboe-
strol í nokkra daga, en fékk
uppköst af því og mikla van-
Iíðan, svo að testosteron var þá
reynt í staðinn. í tæpa tvo mán-
uði fékk hún 50 mg. þrisvar í
viku, en árangur var enginn, að
því er bezt varð séð, því að á
beim tíma safnaðiV- allmikill
bjúgur á handlegginn (9. mynd
B), báðir æxlishnútarnir stækk-
uðu og sár tók að myndast á
frumæxlinu. Hún var lögð á
sjúkrahús 10. sept. og fjórum
dögum síðar var vinstri gland.
suprarenalis numin burt með
skurði, í þetta skipti án þess að
12. rif væri tekið. Síðan voru
báðir eggjastokkar teknir gegn-
um miðlínuskurð, og að lokum
var frumæxlið ásamt mesíöll-
um brjóstkirtlinum skorið
burtu. Við vefjarannsókn
fannst lítið differentierað
krabbamein (10. mynd). Kon-
an fékk þarmalömun eftir að-
gerðina og var um skeið mjög
Iangt leidd, en bjarnaði þó við,
oa 22. okt. var gerð adrenalec-
íomia hægra megin, einnig án
þess að rif væri tekið. Þegar
10. mynd. Sjá síðari sjúkrasögu.
búið var að nema nýrnahett-
una burtu og binda áj+ti fvrir
stutta, en allviða bláæð, senr
legið bafði beint frá kirtlinum
inn íi vena cava, rifnaði hún
af. og blóðstraumur fossaði út
um gatið. Blæðingin stöðvað-
ist af grisjutróði, senr var svo
skilið eftir og ekki tekið fyrr
en eftir rúma viku. Blæddi þá
ekkert, en talsverður gröftur
rann úr sárinu.
Ekki er annað hægt að segja
en konunni heilsaðist vel eftir
þessa aðgerð, þótt hún fengi
allmiklu minna cortison en
fyrri sjúkrasagan greinir. Var
í því efni stuðzt við revnslu
Hellströms o. fl. Þykkiklið í
holhendinni virtist minnka
nokkuð fyrst í stað, en aldrei
nóg til þess, að bjúgurinn í
lrandleggnum rénaði að ráði.
I öndverðum desember fór
konan ofurlítið að s)íga fram
úr rúminu og ráðgerði að kom-