Bændablaðið - 01.08.2013, Page 29

Bændablaðið - 01.08.2013, Page 29
29 Rétt þykir á þessum vettvangi að taka ögn upp þráðinn varðandi Heimafóðurverkefnið, stöðu þess nú og væntingar. Þróun og smíði hinnar færanlegu kögglunarsamstæðu Stefáns Þórðarsonar í Teigi (Fóðurvinnslan ehf), sem hefur verið studd eftir megni af Félagi áhugafólks um Heimafóðurverkefnið (FáH), er nú komin á það stig að geta ferðast hvert á land sem er og boðið upp á kögglun á heyi, hálmi, byggi og viðarkurli, svo fremi að hráefnið nái að lágmarki 83% þurrefni, eins og áður hefur fram komið. Það sem meira er, tekur ekki nema nokkrar mínútur að koma samstæðunni úr flutningsstöðu í vinnslustöðu og öfugt. Þetta er vissulega búið að taka lengri tíma en áætlað var í fyrstu, sem helgast einkum af því að erfiðlega hefur gengið að fjármagna smíðina lengst af, ekki síst hin síðustu ár, auk þess sem lítið af nægilega þurru hráefni hefur fallið til vinnslunnar, einkum þar sem þurrhey hefur verið aðaluppistaðan. Bygghálmur til undirburðar hefur því komið meira inn í vinnsluna sl. erfiðleikaár í heyskap og verið er í vaxandi mæli að gefa gaum að kögglun á viðarkurli til undirburðar og eldsneytis. Jafnframt því er verið að skoða möguleika á að koma upp staðbundinni þurrkunar- og vinnslustöð í tengslum við hitaveitu á Héraði. Í þessu efni er FáH í samstarfi við aðila eins og Héraðs- og Austurlandsskóga, Hitaveitu Egilsstaða og Fella og Atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs og er meiningin að þar verði hægt að fullþurrka og vinna úr áðurnefndum hráefnum og lengja þar með vinnslutíma samstæðunnar og tryggja betur en ella rekstur hennar. Þar sem uppistaðan í vinnslu þessari er þó og hefur verið kögglun á þurrheyi, oft með nokkurri íblöndun, gefur auga leið að andstætt því sem var fyrir nokkrum árum, þegar mikið heyjaðist, jafnvel svo mikið að menn töluðu um vandamál í því sambandi (samanber nýyrðið ,,ofheyjun“, sem þá skaut upp kollinum), hefur hið gagnstæða verið meira og minna landlægt undanfarin 2-3 ár. Í kjölfar lítilla sem engra fyrninga og heyskorts sums staðar, að viðbættu kali í vor, víða norðan- og austanlands, viðist lítið lát ætla að verða á þessu ástandi. Ljósi punkturinn er þó sá að víðast hvar hefur viðrað vel fyrir grassprettu það sem af er þessu sumri og yfirleitt verið þurrksælt fyrir norðan og austan. Sú staðreynd að saman fer að kögglunarsamstæðan er komin í startholurnar og nokkuð bjartara er yfir heyskaparhorfum sums staðar en áður, býður Fóðurvinnslan ehf upp á þjónustu sína, eins og endurtekin auglýsing frá henni í þessu tölublaði Bændablaðsins ber vott um. Undir lokin má geta þess að sjálfsagt er að menn þurrki hey sín almennilega, þegar góður þurrkur gefst, ef ske kynni að þeim þætti kögglun vænleg í lok heyskapar, fyrir svo utan það að alltaf getur verið gagnlegt að eiga vel þurrt hey, kögglað eða ókögglað, með öðru til að auka fjölbreytni gróffóðursins. Áhugasamir um þessa vinnslu og kynni að vanhaga um nánari upplýsingar um fyrirbærið, eru eindregið hvattir til að hafa samband við Stefán í síma 893 7426, auk þess sem undirritaður er ætíð reiðubúinn til skrafs og ráðagerða um Heimafóðurverkefnið og möguleika þess (sími 897 2358, netfang: toti1940@gmail.com) Þórarinn Lárusson fyrrv. ráðunautur Lesendabásinn Heimafóðurverkefnið, staða þess og væntingar Mynd / Þórarinn Ólafsson Eins og glöggir lesendur muna er nú leitað heimilda um fyrstu ár súgþurrkunartækninnar hérlendis, sjá t.d. Bændablaðið 7. feb. sl. bls. 33. Enn er höggvið í þann knérunn; nú með ljósmynd, sem líklega er ekki auðveld í greiningu. Ljósmyndin er komin úr fórum Ágústs Jónssonar rafvirkjameistara, mikilvirks frumkvöðuls súgþurrkunar- tækninnar hérlendis. Karl, sonur Ágústs, færði okkur myndina. Hún er mjög sennilega tekin hérlendis og sýnir að því er virðist nýlega smíðað súgþurrkunarkerfi (stokkakerfi) í allstórri hlöðu, kerfi sömu gerðar og Ágúst sagði fyrir um með fyrstu teikningum sínum og kynningarlíkani. Okkur leikur forvitni á að vita hvort einhver glöggur lesandi kynni að kannast við myndefnið. Helst væri að greina staðinn af sérstæðu hlöðuopinu (baggagatinu?) sem minnir raunar mjög á tuttugustu aldar kirkjuglugga. Vindaugað til hægri er líka fremur óvenjulegt á hlöðu: Eins og að þar sé „franskur“ gluggi. Óvíst er hvernig myndin prentast en af frummyndinni má sjá að burðarvirki hlöðunnar hefur verið timburgrind (járn- eða timbur- klædd?). Sýnilega hefur verið vandað til verka því svo virðist sem gólf hlöðunnar sé timburklætt. Vitað er að fyrstu súgþurrk- unartilraunirnar hérlendis voru gerðar á Vífilsstöðum og þá að Reykjum í Mosfellssveit og í Tilraunastöðinni á Akureyri. Gæti það gefið bendingar um staðinn? Önnur býli í Mosfellssveit, svo og býli í Árnessýslu gætu líka komið til athugunar megi marka heimildir um útbreiðslu aðferðarinnar. Kannast einhver heldri borgari við þetta umhverfi frá sínum sælu æskudögum – þegar fortíðin lá utan áhugasviðs að mestu en fram- tíðin, björt og spennandi, átti alla athyglina? Hafa má samband í síma 894 6368 eða um netfangið bjarnig@ lbhi.is Bjarni Guðmundsson Landbúnaðarsafni Íslands Kannast einhver við myndefnið? Refurinn og lífríkið Ég vil þakka öllum sem hafa tjáð sig um þá plágu sem refurinn er, hér um slóðir og víða um landið. Þetta eru ekki bara fjárbændur, þetta eru líka æðarbændur og dýravinir og bara allt hugsandi fólk í landinu. Það er mín skoðun að bændur eigi betra skilið en að hafa dýrbít í fénu sínu allan þann tíma ársins sem það er ekki á húsi. Hvað verður um allt féð sem vantar? Ekki kemur til nytja það sem tófan étur. En þetta er fjárhagshliðin. Hvernig skyldi ánum líða sem mega horfa upp á að lífið sé murkað úr afkvæmum þeirra? Það er heldur ekki falleg sjón þegar fé kemur af fjalli á haustin; helbitið, ekkert nema beinin og gæran en samt lifandi. Það er ekki snefill af væntumþykju eða virðingu fyrir dýrum ef manni er sama um svona nokkuð. Svo kemur hin hliðin: Menn hælast um yfir því að hafa náð læðu og að hún hafi verið full af mjólk. Þá er hún að afla fæðu fyrir yrðlingana sína; þar kemur önnur dýraníðslan og ekki sú besta. Ég hef margbent á að fækka eigi tófunni á veturna meðan hún er geld. En það er eins og að berja hausnum við steininn. Á meðan þessi villimennska líðst, þá heldur þetta bara áfram að versna. Nú er það komið í tísku að taka litla yrðlinga úr grenjum og ala þá heima á bæjum. Þetta ætti að banna með lögum. Þessum veslingum er gefið á vissum tímum daglega yfir sumarið, síðan er þeim sleppt undir veturinn og þá eiga þeir að bjarga sér sjálfir. Þvílíkur óþverraskapur! Þetta eru villt dýr og eiga að fá að vera það. Takmörkunin á fjölguninni á að fara fram á veturna, þá á að skjóta tófuna meðan hún er geld. En að drepa foreldrana frá afkvæmum sínum sem deyja svo úr sulti, það er skammarleg dýraníðsla sem á ekki að líðast. Það er ekkert meira að skjóta tófu en önnur dýr, sé það gert á heiðarlegan hátt og á réttum tíma. Það sér hver heilvita maður hve dapurlegt það er að að tófunni skuli leyft að eyða öllu fuglalífi á stórum svæðum, svo er sauðkindinni kennt um að hún éti eggin úr hreiðrunum! Flest er nú hægt að bera á borð fyrir mann, þótt enginn eða fáir trúi þessu nú reyndar. Síðan kemur Ester Unnsteinsdóttir með þá kenningu að það séu bara tvær tófutegundir hér. Ég get bent henni á að það eru að minnsta kosti þrjú litaafbrigði hér í kringum mig og hafa verið lengi. Víkjum aftur að rúsínunni í pylsuendanum – að kindurnar éti eggin úr hreiðrunum og því fækki fuglunum og sumar tegundir séu horfnar. Hafa ekki fuglar og fé lengst af verið á sama tíma í þessu landi? Öllu er nú hægt að reyna að telja fólki trú um, ef þá nokkur trúir þessu kjaftæði. Ástæðan fyrir allri vitleysunni er að síðan tíðarfarið í landinu batnaði, þá hefur tófunni stórfjölgað. Það er kannski til fólk sem vill heldur hlusta á tófugagg en fuglasöng en vonandi sér heilbrigt fólk að við erum ekki á réttri leið. Það þarf að borga mönnum vel fyrir að fækka tófunni, það er enginn að tala um að útrýma henni. Ragna Aðalsteins, Laugabóli. Myndir / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.